24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6176 í B-deild Alþingistíðinda. (4226)
384. mál, stefna Íslendinga gagnvart Evrópubandalaginu
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég þakka þann stuðning sem hefur hér komið fram við þessa þáltill. Ég þykist þess reyndar fullviss að ef fjölmennara hefði verið hér þá væri hann enn víðtækari, en hann er ágætur svo langt sem hann nær.
En vegna tveggja atriða sem hv. þm. Svavar Gestsson gerði að umtalsefni þá var ætlan mín að sjö manna nefnd dygði til þess að allir þingflokkar ættu þar fulltrúa. Ef það þykir of þröngt þá er ég sammála því að það verði fjölgað í nefndinni. Auðvitað kemur til álita að Alþingi sjálft kjósi en ég taldi það fyrirkomulag allt eins heppilegt að það væri skipað í nefndina eftir tilnefningu þingflokka eins og þarna er gert ráð fyrir.
Í annan stað: Samtök atvinnulífsins þýða í mínum huga bæði fulltrúar vinnuveitenda og vinnuseljenda, fulltrúar verkalýðshreyfingar og atvinnurekenda, þannig að ég hef þann skilning á því sem er sami skilningur og hv. þm. Svavar Gestsson vildi leggja í það orð og ég vona að það dugi sem útskýring á textanum.