11.04.1988
Sameinað þing: 67. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6195 í B-deild Alþingistíðinda. (4255)
388. mál, verkefnaskipting ríkis og sveitarfélaga
Flm. (Óli Þ. Guðbjartsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. sem ég hef leyft mér að flytja um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga ásamt öðrum þm. Borgarafl., Albert Guðmundssyni, Inga Birni Albertssyni, Kolbrúnu Jónsdóttur, Guðmundi Ágústssyni, Hreggviði Jónssyni og Aðalheiði Bjarnfreðsdóttur. Tillagan hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að kjósa milliþinganefnd, skipaða fulltrúum frá öllum þingflokkum á Alþingi, til þess að undirbúa frumvörp til laga um breytingu á verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Undirbúningsvinna þessi verði unnin í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga og enn fremur fulltrúa frá landshlutasamtökum sveitarfélaga.
Sérstök áhersla verði lögð á að kanna hug manna til verkefnaflutnings frá ríki til stærri eininga en einstakra sveitarfélaga.“
Í örstuttri grg. með tillögunni segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Sem kunnugt er hefur verið ákveðið að fresta afgreiðslu frv. um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á þessu þingi.
Allmargar sveitarstjórnir hafa sent þingmönnum ályktanir sínar af þessu tilefni og víðast kemur þar fram veruleg óánægja með skerðingu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Af því má ætla að margir telji óeðlilegt að nota Jöfnunarsjóðinn þannig sem eins konar skiptimynt í þessu efni.
Hvað sem um það er má augljóst vera að frekari undirbúnings er þörf ef takast á að þoka máli þessu til betri vegar á næsta þingi. Víðtæk samstaða um nær allt þjóðfélagið virðist þar raunar algjör forsenda. Í þeim tilgangi er tillaga þessi til þingsályktunar flutt.“
Við þetta er í sjálfu sér, hæstv. forseti, litlu að bæta. Öllum hv. alþm. er vafalaust vel í minni það frv. til laga sem hæstv. forsrh. mælti fyrir í hv. Nd. Alþingis þann 9. des. sl., um verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, og ekki síður hver örlög þess frv. urðu og ástæður þeirra örlaga. Hvaða skoðun sem menn annars hafa á þeim tillögum sem þar voru uppi hafðar og raunar öðrum þeim tillögum í þessu efni sem m.a. voru grundvöllurinn að nefndu verkaskiptingarfrv. og átti rót sína að rekja til tveggja nefnda sem störfuðu á vegum félmrn. og Sambands ísl. sveitarfélaga til vors 1987.
Þó að mjög margt athyglisvert hafi komið fram í niðurstöðum og tillögum frá þessu nefndastarfi fannst mér gegna sérstakri furðu að hvergi skyldi örla á vilja til að flytja verkefni frá ríki til stærri eininga, svæða ellegar umdæma en einstakra sveitarfélaga, svo mörg og misstór sem þau annars eru hér á landi, og það því fremur að þróun í þá átt hefur raunar átt sér stað hægt og bítandi án þess að löggjafi nr. hafi þar haft nokkra forustu. Aðstæður og þörf, stundum knýjandi þörf héraðsmanna, hafa knúið þá áfram. Ég nefni sem dæmi:
Undanfarin ár hefur samstarf sveitarfélaga, t.d. um byggingu og rekstur framhaldsskóla ellegar byggingu og rekstur heilsugæslustöðva, farið mjög vaxandi. Samstarfsumdæmi ellegar samlög af þessu tagi þurfa auðvitað alls ekki að fara saman, hvað þá við önnur umdæmi, svo sem dóms- ellegar skattaumdæmi, hvort sem er til álagningar eða innheimtu. Vitaskuld er hér um margt flókið mál til umræðu þar sem hagsmunir ríkis og sveitarfélaga eru saman fléttaðir. Það er því í raun eðlilegt að drjúgan tíma taki að laða fram lausnir sem menn geta sæmilega við unað. Leiðin til þess var sýnilega ekki að láta duga fremur einsýnt álit áðurgreindra nefnda þar sem viðtekin sjónarmið sem öðrum fremur ríkja hér við Faxaflóann voru látin nægja.
Forsenda þess að áfram miði til undirbúnings skynsamlegri lagabreytingu í þessu efni er að hæstv. ríkisstjórn og stjórnarandstaða beri gæfu til heiðarlegs samstarfs þar sem allir leggjast á eitt um að ná samkomulagi um þær meginleiðir er þorri manna fellir sig við.
Sjaldan hefur landsbyggðin átt jafnríka kröfu á því og nú að hið háa Alþingi og einkum meiri hluti þess brjóti odd af oflæti sínu og gangi til heiðarlegs samstarfs um það þjóðþrifamál sem hér er í litlu nefnt. Sá er tilgangurinn með þessum flutningi till. til þál. Hæstv. forseti, ég vænti þess að tillögunni verði að lokinni þessari umræðu vísað til síðari umr. og hv. félmn. Sþ.