12.04.1988
Efri deild: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6219 í B-deild Alþingistíðinda. (4267)

390. mál, Kennaraháskóli Íslands

Guðmundur Ágústsson:

Herra forseti. Ég vil eins og þeir sem hér hafa talað á undan mér fagna þessu frv. sem ég tel í flesta staði til mikilla bóta. Ég vil taka undir það sem komið hefur fram hjá öðrum þingmönnum um þau atriði sem sérstaklega ber að fagna í frv., en ég vil samt ekki úttala mig um einstakar greinar frv. Mér sýnist þó á því sem fram hefur komið hjá hæstv. menntmrh. og í grg. með frv. að hér sé á ferð frv. sem fullnægi þeim kröfum sem gera verður til Kennaraháskóla Íslands, þessarar merku menntastofnunar.

Mér gefst tími til að fara nánar í einstakar greinar þar sem ég sit í menntmn. og vona að þar eigi sér stað umræður um frv. og okkur gefist tækifæri til við 2. umr. að fara nánar út í einstaka liði.