12.04.1988
Efri deild: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6225 í B-deild Alþingistíðinda. (4274)

402. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Með framlagningu þessa frv. nú í lok þingsins er verið að staðfesta það, sem reyndar kom fram í ræðu hæstv. félmrh., að við þurfum ekki að búast við því að ný tekjustofnalög taki gildi á þessu ári eða fyrir næstu áramót. Það er verið að leggja hér fram smáhluta af hugsanlegum tekjustofnalögum, hugsanlegum breytingum á tekjustofnalögum, og þar með verið að staðfesta, eins og kom fram í ræðu hæstv. ráðherra, að við þurfum ekki að búast við því að ný tekjustofnalög sjái dagsins ljós fyrr en á næsta ári.

Ákvæði þessa frv. eru, eins og ráðherra nefndi líka, um það að losna við afskipti hæstv. ráðherra af ákvörðunum um útsvarsálagningu. Þetta er sem sagt eitt af frelsisfrumvörpunum sem núverandi ríkisstjórn hefur jafnan á reiðum höndum og er tilbúin að flytja í ýmsri mynd. (Gripið fram í.) Þetta er víxlun á frelsi. Það getur verið.

Ég held að þau ákvæði að fella niður vald ráðherra yfir því hver útsvarsprósenta skuli vera þurfi ekki endilega að vera af hinu góða. Ég tel mjög vafasamt að það sé æskilegt að ríkasta sveitarfélag landsins hafi möguleika á að lækka útsvarsprósentu sína niður fyrir það sent almennt gerist í landinu á þann veg og með þeim afleiðingum að samanburðurinn við ríkasta sveitarfélagið, sem við vitum hvert er, Reykjavík, verður óhagstæður fyrir meginhluta landsbyggðarinnar. Það er ekki verið að samþykkja þetta frelsi til þess að eitthvert fátækt sveitarfélag geti hækkað sitt álagningargjald. Það er alveg fráleitt að eitthvert fátækt sveitarfélag leysi sín fjárhagsvandamál með því að leggja einhverja sérskatta á sína íbúa. Þetta fátæka sveitarfélag yrði undir flestum kringumstæðum eitthvert landsbyggðarsveitarfélag sem er þannig á vegi statt með íbúa sína að þeir borga miklu hærri gjöld til sameiginlegra þátta en hér er t.d. á þessu svæði. Þetta frelsi er ekki að kalla á jafnrétti. Það er að kalla á að það geti orðið mismunun í skattlagningu í landinu. Ég held að það sé af hinu verra. Fyrir utan það að jafnvel þó að eitthvert sveitarfélag legði í þann illa séða hlut að hækka álagningarprósentuna, hafa hana fyrir ofan meðaltalið í landinu, þá gefur það auga leið að innheimta af gjaldendunum getur aldrei orðið á þann veg að hún innheimtist á gjaldárinu heldur verður að innheimta þetta eftir á.

Þó að sveitarstjórnirnar margar séu til ýmiss vísar og leggi ýmislegt á sig til að bjarga fjárhagsstöðu sveitarfélaganna efast ég um að þær leggi út í að leggja aukagjöld á gjaldendur sína, gjöld sem verða innheimt árið eftir. Mér finnst mjög ótrúlegt að nokkur leggi í það. Það verður leitað eftir því af sveitarfélögunum úti um landið að vera með sem næst meðaltölum.

Það kom fram hjá hæstv. ráðherra að Samband ísl. sveitarfélaga hefði lagt mjög að ráðherra að koma þessu frelsi á. Ég efast svo sem ekkert um að sú ágæta stofnun hafi beðið um það, enda finna flestir landsbyggðarmenn a.m.k. oft fyrir því að þessi ágæta stofnun, Samband ísl. sveitarfélaga, er fyrst og fremst stofnun sveitarfélaganna á þéttbýlissvæðinu við Faxaflóa, kannski fyrst og fremst á Reykjavíkursvæðinu.

Ég sé ekki ástæðu í sjálfu sér til að orðlengja frekar um þetta og ég mun ekki beita mér gegn frv. og sé ekki ástæðu til þess, þegar að því kemur að greiða atkvæði um það, að greiða atkvæði á móti því. En mér finnst alveg fráleitt að greiða atkvæði með því og mun lofa þessu frelsi að fara fram hjá mér og afbiðja mér að öllu leyti þennan þátt í sveitarstjórnarmálum. Ég held að það sé mjög langt frá því að verið sé að bæta stöðu sveitarfélaga á einhvern veg.