12.04.1988
Efri deild: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6227 í B-deild Alþingistíðinda. (4276)
402. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég fagna þeim valddreifingarhugmyndum sem koma fram í frv. og tek undir með hv. síðasta ræðumanni, 6. þm. Reykn., að þarna er verið að flytja valdið heim í hérað og er það að óskum sveitarfélaganna að því er ég best veit.
Ég skil hins vegar mjög vel áhyggjur hv. 4. þm. Vesturl. um afkomu hinna smærri sveitarfélaga sem munu eiga í miklum erfiðleikum með að rísa undir sínum útgjöldum og þyrftu þá e.t.v. að leggja mun hærri skatta á sína þegna en önnur sveitarfélög. Þetta vita menn ef þeir vilja. Þetta er áhyggjuefni mjög margra á þessu þingi og kom ljóst fram í umræðu um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga í Nd. á sl. ári. Og ég lýsi áhyggjum vegna þessa efnis. Þennan vanda hlýtur að þurfa að leysa á einhvern hátt þannig að smærri sveitarfélögin geti séð sér farborða án þess að blóðmjólka þegna sína.
En ég tek undir valddreifingarhugmyndirnar og sjónarmiðin sem ríkja í frv. og lýsi stuðningi við þær hugmyndir frv.