12.04.1988
Efri deild: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6232 í B-deild Alþingistíðinda. (4284)
403. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breyt. á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda. Þetta mál á sér þann aðdraganda að þann 8. febr. skipaði hæstv. félmrh. starfshóp til að gera tillögu um breytingu á 26. gr. laga nr. 73/1980, um tekjustofna sveitarfélaga. Breytingin átti að fela í sér að ákvörðun og ábyrgð á innheimtuhlutfalli útsvara yrði í höndum sveitarstjórnarmanna sjálfra. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúi Sambands ísl. sveitarfélaga, fulltrúi fjmrn., auk fulltrúa frá félmrn.
Í áliti þessa starfshóps kom fram að hægt væri að ná þessu markmiði eftir ýmsum leiðum. Hins vegar var það ljóst að af hálfu skattkerfisins var lögð mikil áhersla á að halda reglum um staðgreiðslu skatta sem einföldustum og þar á meðal að innheimtuhlutfall í staðgreiðslu yrði hið sama fyrir allt landið.
Í tillögum starfshópsins er reynt að samræma áðurnefnt markmið, þ.e. að hafa eitt innheimtuhlutfall í staðgreiðslu fyrir allt landið og að sveitarfélögin fengju það í sinn hlut sem þau sjálf ákveða innan ramma laganna. Af þessum sökum gengu tillögur starfshópsins í þá átt að þegar fjmrh. ákveður samkvæmt heimild í 32. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, hvernig skiptingu á bráðabirgðagreiðslu útsvars til sveitarfélaga skuli hagað verði miðað við hundraðshluta þann sem viðkomandi sveitarfélag hefur ákveðið að verði álagningarhlutfall útsvars í viðkomandi sveitarfélagi.
Starfshópurinn samdi frv. til laga um breyt. á lögum nr. 73/1980, um tekjustofna sveitarfélaga þar sem gerðar eru tillögur um breytingar á 26. gr. staðgreiðslulaganna til þess að ná framangreindu markmiði. Hæstv. félmrh. hefur þegar mælt fyrir því frv. og vísa ég til þess sem fram kom í máli hennar.
Starfshópurinn taldi að til samræmis þyrfti að gera nokkrar breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Frv. sem er til umræðu er byggt á þeim hugmyndum. Frv. gerir ráð fyrir því að ákvörðun um innheimtuhlutfall útsvars verði byggð á ákvörðunum sveitarfélaga um það hvaða útsvarsprósentu þau ætla í reynd að nota á viðkomandi staðgreiðsluári. Innheimtuhlutfall útsvars í staðgreiðslu verður þannig vegið meðaltal af ákvörðunum allra sveitarfélaga á landinu. Samkvæmt þessu er innheimtuhlutfall útsvars í staðgreiðslu hið sama á öllu landinu. Hins vegar munu skil á bráðabirgðagreiðslu útsvars til sveitarfélaga verða miðuð við þann hundraðshluta sem sveitarstjórn hefur ákveðið að verði álagningarhlutfall útsvars í sveitarfélögunum.
Spurningum hefur verið varpað hér fram um það hvaða áhrif þetta muni hafa í framkvæmd, hvort þetta muni þýða að minni sveitarfélög með meiri tekjuþörf muni í reynd ákveða hærri útsvarsálagningu eða hvort reyndin verði sú að þau reyni að samræma sjónarmið sín um álagninguna fyrir fram. Fari svo að sum sveitarfélög, þó einkum hin minni, ákveði hærri útsvarsálagningu þýðir það það fyrir gjaldendur þeirra sveitarfélaga að þeir koma til með að þurfa að greiða viðbótarútsvar í eftiráálagningu staðgreiðslukerfisins. Menn geta haft misjafnt mat á því hvernig sveitarfélögin leysa þennan vanda. Vandinn er þó raunverulega í því fólginn að bæði ríki og sveitarfélög hafa þarna sama tekjustofn og þetta mál leysir þann vanda ekki. En að svo miklu leyti sem menn hafa áhyggjur af ólíkri stöðu sveitarfélaga eða þeim mikla aðstöðumun sem orðinn er annars vegar á höfuðborginni og hins vegar minni sveitarfélögum vítt og breitt um landið verður það ekki leyst með því að víkja frá grundvallarreglunni um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Það mál varðar þá fyrst og fremst nýskipan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og gæti falið í sér þá hugmynd að sérstaða höfuðborgarinnar yrði viðurkennd með þeim hætti að hún ætti ekki hlutdeild í þeim sjóði og hann væri notaður sem eiginlegt jöfnunartæki, m.a. til þess að vega upp þann mun sem í reynd er á höfuðborginni og öðrum sveitarfélögum, þar sem höfuðborgin ber ægishjálm yfir þau sveitarfélög öll svo sem ljóst má vera af fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar á þessum vetri sem hefur til ráðstöfunar til eignamyndunar eða fjárfestingar, ein sér sem sveitarfélag, því sem næst jafnháa upphæð og ríkið ver til allra verklegra framkvæmda, þar með taldar millifærslur ríkisins til sveitarfélaga, og allra framlaga til byggingarlánasjóða húsnæðislánakerfisins.
Herra forseti. Þetta er vissulega skattamál og ætti þess vegna að vísa því að lokinni þessari umræðu til hv. fjh.- og viðskn. En þar sem þetta er í raun og veru sama málið og hæstv. félmrh. mælti fyrir áðan tel ég þrátt fyrir allt eðlilegt vegna inntaks málsins að það fái umfjöllun í sömu nefnd og frv. um tekjustofna sveitarfélaga og legg því til að málinu verði vísað til hv. félmn.