12.04.1988
Neðri deild: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6236 í B-deild Alþingistíðinda. (4290)
293. mál, áfengislög
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Við mig hafði samband fyrir páska mætur sjálfstæðismaður úr Reykjaneskjördæmi sem hafði þar fyrr á árum gegnt trúnaðarstörfum í sveitarstjórnum og löngum setið á þeirra kjördæmissamkomum. Erindið var að biðja mig að sjá til þess að nöfn þeirra 138 lækna sem lýsa sig mótfallna sölu sterks öls á Íslandi komist í þingtíðindin. Þetta er og gert út frá jafnréttissjónarmiði. Mér sýnist að það verði ýmis heimaverkefni hjá hv. 1. flm. þessa frv. í hans kjördæmi fyrir næstu kosningar en ætla nú ekki að blanda því saman við þetta, en með leyfi forseta tel ég einsýnt að ég verði við þessu því auðvitað er eðlilegt að það komi fram að á Íslandi var stór hópur lækna svo viti borinn að hann snerist gegn þessu frv. Ég vil því, með leyfi forseta, lesa hér upp álit sem borist hefur og er undirritað af Guðmundi Sigurðssyni heilsugæslulækni, Seltjarnarnesi. Bréfið er til forseta sameinaðs Alþingis, Þorv. Garðars Kristjánssonar.
„Meðfylgjandi eru undirskriftalistar 138 lækna sem lýsa sig mótfallna sölu sterks öls á Íslandi og beina þeim tilmælum til hv. alþm. að þeir geri ekki slíka tilraun í áfengismálum mögulega. Undirritaðir læknar lýsa sig mótfallna sölu sterks öls á Íslandi og óttast afleiðingar verði núgildandi banni aflétt. Rök benda til þess að sterkur bjór muni auka á áfengisvanda þjóðarinnar sem er ærinn fyrir. Hér með er þeim tilmælum beint til hv. alþm. að þeir geri ekki slíka tilraun í áfengismálum mögulega.“
Kannski er rétt að geta þess að um 40% af útgjöldum Íslendinga, ríkisútgjöldum, fara til heilbrigðismála. Þá hef ég lesturinn á þessum nöfnum, með leyfi forseta:
Alma Anna Þórarinsson, Landspítala. Andrés Magnússon, Landspítala. Anna Björg Halldórsdóttir, Landspítala. Anton Pétur Þorsteinsson, Landspítala. Arnar Hauksson, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Arnbjörn Ólafsson, Heilsugæslustöð Suðurnesja. Auðbergur Jónsson, Eskifirði. Auðólfur Gunnarsson, Landspítala. Ásmundur Brekkan, Landspítala. Ásmundur Magnússon, Heilsugæslustöð Miðbæjar, Baldur Baldursson, Heilsugæslustöð Hólmavíkur. Bergný Marvinsdóttir, Landspítala. Bergþóra Sigurðardóttir, Heilsugæslustöð Ísafjarðar. Bjarni Jónasson, Heilsugæslustöð Garðabæjar. Björn Þ. Þórðarson, Vesturbæjarapóteki. Björn Önundarson, Tryggingastofnun ríkisins. Bolli Bjarnason, Heilsugæslustöð Borgarness. Bragi Stefánsson, Heilsugæslustöð Dalvíkur. Brjánn Á. Bjarnason, Landspítala. Bryndís Benediktsdóttir, Heilsugæslustöð Garðabæjar. Brynjólfur Hauksson, sjúkrastöðinni Fitjum. Brynjólfur Ingvarsson, Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Davíð Gíslason, Vífilsstöðum. Eggert Brekkan, Sjúkrahúsi Neskaupstaðar. Einar Jónmundsson, Landspítala. Esra S. Pétursson, Domus Medica. Friðrik Vagn Guðjónsson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Friðrik Sveinsson, Reykjalundi. Gauti Arnþórsson, Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Geir Guðmundsson, Heilsugæslustöð Ísafjarðar. Gísli Ingvarsson, Heilsugæslustöð Grundarfjarðar. Gísli Á. Þorsteinsson, Landspítala. Grétar Guðmundsson, Landspítala. Guðbrandur Kjartansson, Vífilsstöðum. Guðfinnur P. Sigurfinnsson, Heilsugæslustöð Seltjarnarness. Guðjón Jóhannesson, Landspítala. Guðmundur Ö. Einarsson, Landspítala. Guðmundur Georgsson, Tilraunastöð Háskólans að Keldum. Guðm. S. Jónsson, Landspítala. Guðmundur T. Magnússon, Landspítala. Guðmundur Rúnarsson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Guðmundur Sigurðsson, Heilsugæslustöð Seltjarnarness. Guðmundur Karl Snæbjörnsson, Landspítala. Guðmundur H. Þórðarson, Heilsugæslu Hafnarfjarðar. Guðmundur Þorgeirsson, Landspítala. Guðrún Jónsdóttir, Borgarspítala. Guðrún Kristjánsdóttir, Heilsugæslustöðinni Djúpavogi. Guðsteinn Þengilsson, Sunnuhlíð. Gunnar Guðmundsson, Landspítala. Gunnar Rafn Jónsson, Heilsugæslustöðinni Húsavík. Gunnar Þór Jónsson, Borgarspítala. Gunnsteinn Stefánsson, Heilsugæslustöðinni Egilsstöðum. Gylfi Haraldsson, Laugarási, Biskupstungum. H. Linnet, Landspítala. Halla Þorbjörnsdóttir, Landspítala. Halldór Hansen, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Halldór Jónsson, Heilsugæslunni Álftamýri. Hallgrímur Magnússon, Landspítala. Hannes Blöndal, Rannsóknarstofu Háskólans í líffærafræði. Haukur Heiðar Ingólfsson, Heilsugæslu Hafnarfjarðar. Haukur Þórðarson, Reykjalundi. Heimir Bjarnason, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Helgi Guðbergsson, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Helgi Hauksson, Heilsugæslunni Þorlákshöfn. Helgi Kristbjarnarson, Landspítala. Helgi Valdimarsson, Landspítala. Hilmar Jóhannsson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Hjálmar Freysteinsson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Hjalti Þórarinsson, Landspítala. Hjördís Jónsdóttir, Reykjalundi. Hjörtur Þ. Hauksson, Heilsugæslustöð Ólafsfjarðar. Hrafn Tulinius, Rannsóknarstofu Háskólans í heilbrigðisfræði. Hörður Þorleifsson, Landakotsspítala. Inga Björnsdóttir, Heilsugæslustöð Akureyrar. Ingvar Þóroddsson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Jakob Jónasson, Landspítala. Jóhann Heiðar Jóhannsson, Landspítala. Jóhann Tómasson, Heilsugæslustöðinni Mosfellsbæ. Jóhannes Bergsveinsson, Landspítala. Jón Guðgeirsson, Vífilsstöðum. Jón Gunnlaugsson, Seltjarnarnesi. Jón G. Stefánsson, Landspítala. Kristín E. Jónsdóttir, Landspítala. Kristrún R. Benediktsdóttir, Landspítala. Lárus Helgason, Landspítala. Ludvig Guðmundsson, Heilsugæslustöð Seltjarnarness. Magnús Ásmundsson, Sjúkrahúsi Norðfjarðar. Magnús B. Einarsson, Reykjalundi. Magnús Jóhannsson Rannsóknarstofu Háskólans í lyfjafræði. Magnús Ólafsson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Magnús Karl Pétursson, Landspítala. Magnús Skúlason, Landspítala. Magnús Þorsteinsson, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Margrét Guðnadóttir, Landspítala. Marinó P. Hafstein, Landspítala. Marta Lárusdóttir, Landspítala. Nikulás Sigfússon, Rannsóknarstöð Hjartaverndar. Oddur Bjarnason, Landspítala. Ól. Bjarnason, Landspítala. Ólafur Bjarnason, Landspítala. Ólafur Grímsson, Landspítala. Ólafur Hergill Oddsson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Ólafur Ólafsson, landlæknir. Ólafur Stefánsson, Heilsugæslustöðinni Egilsstöðum. Ólafur Þór Ævarsson, Landspítala. Ómar Örn Jónasson, Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Óttar Guðmundsson, Sjúkrastöðinni Vogi. Páll Sigurðsson, heilbrigðisráðuneytinu. Pálmi Frímannsson, Heilsugæslustöðinni Stykkishólmi. Pálmi Hallgrímsson, Krabbameinsfélagi Íslands. Pétur Hauksson, Reykjalundi. Pétur Pétursson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Pétur Skarphéðinsson, Heilsugæslustöðinni Laugarási, Biskupstungum. Ragnhildur Ingibergsdóttir, Kópavogshæli. Reynir Valdimarsson, Heilsugæslustöð Akureyrar. Sigmundur Sigfússon, Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Sigurður Gunnarsson, Heilsugæslustöðinni Þórshöfn. Skúli Johnsen, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Stefán Haraldsson, Landspítala. Stefán B. Matthíasson, Heilsugæslustöð Seltjarnarness. Stefán Þórarinsson, Heilsugæslustöðinni Egilsstöðum. Svanur Sveinsson, Domus Medica. Sveinn Rúnar Hauksson, Dornus Medica. Sverrir Bjarnason, Landspítala. Sverrir Jónsson, Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Tómas Helgason, Landspítala. Úrsúla L. Sehaaber, Landspítala. Viðar Toreid Kárason, Landspítala. Víkingur Arnórsson, Landspítala. Ýr Logadóttir, Landspítala. Þór Halldórsson, Landspítala. Þórarinn Gíslason, Landspítala. Þórarinn Hannesson, Landspítala. Þórarinn Tyrfingsson, Sjúkrastöðinni Vogi. Þórður Harðarson, Landspítala. Þorkell Jóhannesson, Rannsóknarstofu Háskólans í lyfjafræði. Þorsteinn Blöndal, Landspítala, Þorsteinn Sv. Stefánsson, Landspítala.
Þá er lokið þessum lestri, með leyfi forseta.
Nú þætti mér mjög vænt um ef forseti kallaði til heilbrmrh. Ástæðan er sú að hann var svo hikandi í afstöðu sinni þegar hér voru greidd atkvæði að til þess að verja það fyrir sjálfs sín samvisku hvernig hann greiddi atkvæði þurfti hann nauðsynlega að gera grein fyrir atkvæði sínu. Mér þykir því mjög brýnt að hann verði til kallaður í salinn og hægt að ræða við hann á breiðari grunni um undirbyggingu þeirrar röksemdafærslu sem hann hér viðhafði.
Það liggur nefnilega fyrir að heilbrigðisstétt vors lands hefur skipst í tvær fylkingar í þessu máli. Önnur fylkingin er hlynnt því að þetta frv. verði samþykkt. Hin fylkingin, hinn þögli meiri hluti sem ekkert gerði í undirskriftasöfnun fyrr en þeir sem vildu bjórinn í gegn voru búnir að láta í sér heyra, hefur nú sent frá sér sitt álit og biðst undan þessari tilraunastarfsemi. Ég tel að í ljósi þessa sé mjög brýnt að eiga hér orðastað við hæstv. heilbrmrh. og vona að hann sé í húsinu og að þessi umræða geti haldið áfram. (Forseti: Ég get upplýst að hæstv. heilbrmrh. er í húsinu og ég hef látið hann vita þessar óskir, en ég hef haft þá reglu að láta ráðherra vita að þeirra sé óskað þó að þeir séu ekki flm. máls eða ábyrgðarmenn að öðru leyti. En ég hef komið orðum til hans.) Já.
Ég vil helst ekki þurfa að slá nein Íslandsmet í því að þegja í ræðustólnum, en mun hinkra við ef forseti hefur ekki einhverja þá tillögu fram að færa um að fresta um stund þessari umræðu þar til ráðherra er mættur. (Forseti: Mér hafa borist fréttir af heilbrmrh. Hann var kallaður í örstutt viðtal hér fram á gang og kemur innan örskammrar stundar hingað. Ég vænti þess að umræðan þurfi ekki að tefjast vegna þess, en hann er væntanlegur innan tíðar.) Það er eins og það sé hjónasvipur þessa stundina með Borgarafl. og Kvennalistanum. Ég veit ekki hvort það er pláss fyrir fleiri. (Forseti: Ég ítreka að hæstv. heilbrmrh. er væntanlegur í salinn, en jafnframt vil ég taka fram að honum ber ekki skylda til þess sem ráðherra að sitja við þessa umræðu þannig að það er ekki hægt að stöðva umræðuna þó að hann komi ekki. Hins vegar hefur hann sagt að hann muni koma eftir augnablik og ég mun enn hinkra. En ég vænti þess að það muni ekki þurfa að stöðva þessa umræðu. — Nú er heilbrmrh. genginn í salinn og vænti ég þess að umræðan geti þá gengið greiðlega fyrir sig.) Herra forseti. Það fer ekki á milli mála að hæstv. heilbrmrh. er genginn í salinn.
Ég gat um það áðan í minni ræðu að heilbrigðisstétt Íslands hefði skipst í tvær fylkingar með og móti því máli sem hér er til afgreiðslu, en þó sýnist mér sem stærri hópur og sá skynsamari fylgi því að standa gegn þessu frv. Hæstv. heilbrmrh. ráðstafar um 40% af fjárlögum Íslands. Ég beini þeirri spurningu til hans hvort hann telji að frv. geri að verkum að hann þurfi stærri hlut af fjárlögum ríkisins til síns kerfis eftir en áður eða hvort hann telji e.t.v. að þetta verði til að lækka meðalaldur Íslendinga og þannig hljótist óbeinn sparnaður af tiltækinu. Ég vil nefnilega undirstrika að við erum í dag með næsthæsta meðalaldur í heimi og sá heilbrmrh. sem tekur ákvörðun um það, að vísu með því að gera grein fyrir atkvæði sínu, að hleypa bjórnum inn í landið hlýtur að gera sér grein fyrir því að hans ábyrgð er stór. Hún er svo stór að hann getur ekki komið til Alþingis Íslendinga og sagt: Nú þarf ég meiri peninga vegna þess að þetta vandamál hefur vaxið. Hann einfaldlega getur það ekki. Það hlýtur að felast fjárhagsleg ábyrgð í því sem verið er að gera. Það er talið að þau sjúkrarúm sem áfengissjúklingar nota í dag kosti um 4 milljarða á ári án þess að farið sé út í hvað læknarnir sjálfir kosta sem vinna að þessu vegna áfengismála.
Ég geri ráð fyrir því að hæstv. heilbrmrh. hafi verið með þessa hluti alla nokkuð á hreinu. Hæstv. dómsmrh. var nefnilega miklu klókari í sinni afstöðu hér í þinginu. Hann greiddi atkvæði á móti og getur þess vegna strax næsta haust komið og sagt: Nú þarf ég að fá peninga í fangelsisbyggingar á Íslandi. Nú þarf ég að fá peninga í fleiri stöðugildi fyrir lögregluþjóna þar sem þeir hafa ekki verið áður. Það er ekki mér að kenna þó að þetta hafi vaxið og þörfin hafi aukist. Það var Alþingi Íslendinga sem tók þessa ákvörðun.
Hæstv. heilbrmrh. hlýtur að gera sér grein fyrir því að hann tók með þessari afstöðu sinni ótvírætt ákvörðun gegn meirihlutavilja læknastéttarinnar í landinu og það er stór ákvörðun. Ég hygg að hæstv. ráðherra hafi ekki gert sér grein fyrir því hve margir Íslendingar, sem bundu við hann stórar vonir í þessu starfi sem hann er í, hafi orðið hikandi. Maðurinn sem boðaði að við ættum að auka okkar drykkju á vatni hefur nú gerst talsmaður þess að við eigum að efla bjórdrykkju í landinu. Og það þýðir ekkert að skorast undan ábyrgðinni. Ákvörðunin er tekin við nafnakall hér í þinginu. En hann hlýtur aftur á móti að verða að svara því hér og nú hvaða afleiðingar hann telur að þetta hafi á fjárlagaþörf til heilbrigðismála á Íslandi á næstu árum. Við því á þingið heimtingu á svari.
Það er nefnilega dálítil kaldhæðni að 1. flm. þessa frv. hefur löngum talað hér í þingsölum á þann hátt að hann sé maður hófsemdar í skattamálum. Þar á ég við hv. 2. þm. Reykn. En ef íslenska þjóðin á að halda áfram að greiða þá fjármuni sem hún hefur greitt á undanförnum árum til að vinna gegn áfengisböli í þessu landi, greiðslur sem jafnvel Danir hafa ekki treyst sér til að inna af hendi, þar fá menn ekki ókeypis sjúkravist á áfengisstofnunum, þá kostar þetta aukna skattheimtu á þjóðina. Það fer ekkert á milli mála. Og það væri stór ákvörðun ef menn nú á tímum mannúðar tækju þveröfuga stefnu og segðu: Nú borgum við ekki neitt lengur fyrir þá sem eru á þessum drykkjumannahælum eða afvötnunarstofnunum. - Ég væri ekki talsmaður þess að taka upp þá stefnu að hætta þeim stuðningi.
Ég tel aftur á móti að þeir sem hafa að yfirveguðu ráði, eins og ég veit að hæstv. ráðherra hefur gert í þessu máli, hann hefur hugsað sinn gang, ég ber ekki á hann neinn flausturshátt í þeim efnum, ég tel að þeir verði að standa þinginu skil á breiðum grunni hvers er að vænta því að það þýðir ekkert að koma hér og segja að einhver aðstoðarforstjóri hjá Heilbrigðismálastofnuninni hafi verið hissa á því að hafa ekki rekist á bjór á Íslandi. Það er yfirlýst stefna Heilbrigðismálastofnunarinnar að vinna að því að minnka áfengisneyslu í heiminum. Og það dettur engum óvitlausum Íslendingi í hug að halda því fram að þetta verði ekki til að auka neysluna. Meira að segja flm. tillögunnar, sem hér var borin upp og samþykkt, afskrifuðu fyrra frv. á þeirri forsendu að þeir töldu að grg. væri út í hött miðað við það sem texti frv. boðaði.
Ég vænti þess að hæstv. heilbrmrh. komi sér ekki undan því að svara þessum spurningum. Ég vænti þess að hann geri grein fyrir því hvort hann telji að þetta þýði að aukna fjármuni þurfi til heilbrigðismála á Íslandi eða ekki.