13.04.1988
Efri deild: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6302 í B-deild Alþingistíðinda. (4341)

432. mál, Ríkisendurskoðun

Guðmundur Ágústsson:

Herra forseti. Hv. 9. þm. Reykn. knúði mig hingað upp. Hann sagði berum eða óberum orðum að við þm. Borgarafl. værum verndarar spillingarinnar. Ég taldi það koma skýrt fram í ræðu minni að ég væri ekki á móti eftirliti, alls ekki, hvort sem það eru læknar eða aðrir aðilar. Ég taldi einmitt nauðsyn á eftirliti með þeim fjármunum sem ráðstafað er á vegum ríkisins. Hins vegar var ég ekki sammála því hvernig þessu eftirliti skyldi hagað og á því er nú grundvallarmunur. Og því miður verð ég að segja að það sem fram kom í ræðu hv. 9. þm. Reykn. hafi verið útúrsnúningur einn.

Ég vil ekki fara ofan í seinni ræðu hv. 4. þm. Vestf., en ég tel að hér á Alþingi eigi, eftir því sem tök eru á, að fara fram málefnalegar umræður og hver geti haldið fram sínum skoðunum hverjar svo sem þær eru, hvort þær eru réttar, hvort þær eru rangar og á hverju sem þær byggjast. Ég taldi hér áðan að ég hefði með rökum sýnt fram á þær skoðanir sem ég hefði á þessu frv. Hvort þær eru réttar eða rangar, það kannski skiptir ekki öllu í því hvað aðrir halda, en þetta er mín skoðun og ég tel það enn og aftur og sé ekki að í neinu hafi verið sýnt fram á að þær séu ekki réttar.