13.04.1988
Efri deild: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6338 í B-deild Alþingistíðinda. (4349)
431. mál, virðisaukaskattur
Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Þessi umræða gefur í sjálfu sér ekki tilefni til mikilla orðræðna af minni hálfu, en það eru örfá atriði sem ég kemst þó ekki hjá að leiðrétta.
Í fyrsta lagi var því haldið fram að Alþfl. og sá sem hér stendur hafi skipt um skoðun frá því í desember 1986 á virðisaukaskatti. Þetta er misskilningur sem menn geta staðreynt með því að lesa með öðrum hætti og svolítið nákvæmar þá ræðu sem vitnað var í. Þar var því lýst yfir af hálfu Alþfl. að hann væri fylgjandi virðisaukaskatti, hefði verið það áratugum saman, hefur reyndar haft það á stefnuskrá sinni lengur en aðrir flokkar.
Hitt er rétt að því var lýst yfir að við gætum ekki stutt það frv. sem þá lá fyrir og ástæðurnar, sem fram voru bornar, voru tvær. Hin fyrri var sú að álagningarhlutfallið væri of hátt. Rökin voru þau að sú breikkun skattstofnsins sem í frv. fólst frá gamla söluskattskerfinu gæfi tilefni til lægri álagningarprósentu. Seinni ástæðan var sú að við lýstum óánægju með hliðarráðstafanirnar. Þær voru allt að 3 milljarðar kr. eða tæplega það að vísu og átti eingöngu að verja til niðurgreiðslna á landbúnaðarafurðaverði. Við lýstum þeim rökum að við kysum heldur að þessum hliðarráðstöfunum yrði skipt og það væri óhjákvæmilegt að auka mjög verulega fjölskyldubætur, þ.e. útborgun barnabótaauka.
Þessu tvennu hefur verið breytt. Þetta eru m.a. þau tvö atriði sem hafa tekið verulegum breytingum frá því að frv. var lagt fram árið 1986. Í fyrsta lagi er álagningarprósentan lægri. Spyrja má: Hvers vegna er hún ekki enn þá lægri? Svarið er það að við gerð fjárlaga fyrir árið 1988 stóðum við frammi fyrir því að að óbreyttu skattakerfinu gamla og miðað við það útgjaldastig sem Alþingi ákvað yrði halli á ríkisbúskapnum um 8 milljarðar kr. Það er svarið við því hvers vegna, við þær aðstæður sem nú eru á árinu 1988, er ekki hægt að ganga lengra en hér er gert í þá átt að lækka hlutfallið.
Að því er varðar hliðarráðstafanirnar eru þær með allt öðru sniði en þær voru áður. Þær eru bæði meiri og þeim er skipt og þá sérstaklega er það tryggt að tæplega 3 milljörðum kr. er varið til barnabóta og það er veruleg hækkun frá árinu áður, sem svarar rúmum milljarði. Þær tölur sem hv. þm. fór með í því efni um upphæð barnabóta per barn voru náttúrlega út í hött.
Ég þykist kenna þann tón í þessum umræðum að það fylgi ekki mikil sannfæring af sumra hálfu. Ég vil t.d. leyfa mér að nefna það að frv. var sem kunnugt er og fram kom í upphafi ræðu minnar lagt fram í fyrsta sinn haustið 1983 í fjármálaráðherratíð Alberts Guðmundssonar, formanns Borgaraflokksins, sem er reyndar eini maðurinn sem flutt hefur tillögu um undanþágulausan virðisaukaskatt og þar af leiðandi matarskatt án nokkurra hliðarráðstafana.
Í annan stað var þetta frv. undirbúið í fjmrn., ekki haustið 1983, heldur í fjármálaráðherratíð Ragnars Arnalds, fyrrv. formanns Alþb., sem entist að vísu ekki líf til þess, pólitískt, í þeirri ríkisstjórn til þess að leggja það fram. Hefur þetta eitthvað með það að gera að lífið líti öðruvísi út af tröppum Stjórnarráðsins en af Alþingistorfunni?
Spurningin um það hversu langan tíma Alþingi þurfi til þess að vinna að þessu máli. Rétt er það að ég hefði gjarnan kosið að það yrði lagt fram fyrr. Þó er það svo að það lifir mánuður af þessum þingtíma og hér er um að ræða lokaáfanga þeirrar skattkerfisbreytingar á óbeinum sköttum sem boðuð var í stjórnarsáttmála og hefur verið til linnulausrar umræðu a.m.k. frá því í nóvember eða desember á sl. ári. Þannig er þegar búið að útkljá af meiri hluta Alþingis deilumálin um hliðarráðstafanirnar. Það var afgreitt með skattkerfisbreytingunni þannig að í raun og veru höfum við ætlað okkur tíma frá desember - og til hvað? - miðs maí, ef þingið stendur svo lengi, til að fjalla um þessi mál. Gildistíminn er ekki fyrr en á miðju ári 1989 og mikið verk er fram undan við undirbúning á kynningu á framkvæmd á virðisaukaskattinum sem þýðir að við erum hér að ætla okkur miklum mun meiri tíma til umfjöllunar um þessi mál sem betur fer en tími vannst til eða aðstæður leyfðu okkur á sl. hausti.
Að öðru leyti að því er varðar efnisatriði er af minni hálfu engu við að bæta. Deilurnar um matarskattinn hafa verið útkljáðar. Spurningunum um hver voru áhrif skattkerfisbreytingarinnar á hag heimilanna hef ég svarað af minni hálfu oftar en ég hirði um að endurtaka nú. Spurningar um kostnað við virðisaukaskattskerfið, um starfsmannafjölgun, um horfurnar á bættri innheimtu, um verðlagsáhrif, öllu hefur þessu verið svarað bæði í framsöguræðu og um það er ítarlega fjallað í grg. með frv.
Hv. þm. Halldór Blöndal svaraði fsp. sem snerti hlut rithöfunda og listamanna, þ.e. tónskálda, rithöfunda og málara, þannig að þar þarf ég út af fyrir sig engu við að bæta. (GA: Hvað með menninguna að öðru leyti?) Um menninguna er það að segja að það eru undanþágur að því er varðar hugverk listamanna, tónskálda, rithöfunda og málara og að því er varðar hins vegar samkomuhald eða annað þar sem fram fer sala á þjónustu er gert ráð fyrir skattskyldu eins og í öðrum tilvikum. Og það er að sjálfsögðu enginn menningarfjandskapur. Þetta er gamli ágreiningurinn um hvort það eigi að afla tekna í skilvirku kerfi sem er þá forsenda fyrir því líka að það er hægt að greiða út almennilega styrki af meiri rausnarskap, m.a. til menningar og annarra þátta, og ekki mikið meira um það að segja.
Eitt verð ég líka að leiðrétta sem fram kom í máli hv. 7. þm. Reykv. Hann hélt því fram að af minni hálfu hefði því verið lýst yfir að nú væri skattkerfisbreytingunni lokið og það ætti ekki að leggja hærri skatta á aðra, ekki hærri skatta á fyrirtæki o.s.frv. Ég tók skilmerkilega fram að því er varðar spurninguna um frekari tekjuöflun til að mæta því gati sem í þessu frv. felst upp á 1200 millj. að það verður gert með öðrum af tveimur leiðum eða báðum, með lækkun útgjalda eða frekari tekjuöflun. Í grg. er gerð grein fyrir þeim hugmyndum, þar á meðal hugmyndum sem eiga hald í stjórnarsáttmála, frv. um skattlagningu fjármagns- og eignatekna m.a.
Ég vek á því athygli að hlutur fyrirtækja í heildarskattlagningunni hefur aukist verulega, reyndar við skattkerfisbreytinguna hingað til. Það hefur verið hækkuð mjög verulega tekjuskattsálagning á fyrirtækjum og mótframlög eða styrkir eða tilfærslur fyrirtækja, úr þeim hefur nokkuð dregið. Þannig er þetta á misskilningi byggt.
Að því er varðar málflutning hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur staldraði ég sérstaklega við það að hv. þm. vitnaði í 18 ára gamla tímaritsgrein eftir Björn Matthíasson, hagfræðing í Seðlabankanum, sem vakti m.a. athygli á því að framkvæmd virðisaukaskattskerfis gerði strangari kröfur til bókhalds fyrirtækja. Það er laukrétt og ákaflega æskilegt því að undirrót skattamisferlis á Íslandi er að mjög verulegu leyti af þeim rótum runnin að kröfur um bókhald fyrirtækja eru ekki nægilega strangar og þar þarf einmitt nauðsynlega að bæta úr. Samt sem áður er það ekki ýkja flókið m.a. vegna þeirra tæknilegu breytinga sem orðið hafa í þeim efnum frá þeim tíma sem sú grein var skrifuð.
Herra forseti. Ég held að ég hafi ekki fleiri orð um þetta. Það er ljóst að það eru skiptar skoðanir, eins og fram kom í umræðunum, um skattkerfisbreytinguna.
Einni spurningu að lokum, herra forseti, var til mín beint, þ.e. um túlkun á 34. gr. um gjaldfrest. Ég tel mig reyndar hafa svarað því í framsöguræðu. Það var sérstaklega að því vikið og er reyndar um það fjallað í grg. frv. Þetta er aðgerð sem ég vakti athygli á að kallaði á frekari umfjöllun í nefnd og varðar fyrst og fremst spurninguna um verðlagsáhrif kerfisbreytingarinnar. Þar eru mínar hugmyndir þær að ræða þetta og koma þar á framfæri heimildarákvæði til fjmrh. Framkvæmdin yrði með mjög svipuðum hætti og varðar heimildina í tollalögum að því er varðar hraðafgreiðslu hjá þeim innflutningsaðilum sem gróflega má segja að annist u.þ.b. 80% af innflutningnum. Þetta er fyrst og fremst heimildarákvæði sem ætlunin er að leita eftir til að tryggja að verðhækkunaráhrifum hugsanlega af þessum sökum, fjárbindingu fyrirtækja, verði haldið í skefjum.