14.04.1988
Sameinað þing: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6394 í B-deild Alþingistíðinda. (4389)
314. mál, framkvæmdir við Reykjanesbraut
Fyrirspyrjandi (Jóhann Einvarðsson):
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 623 að flytja svofellda fsp. til hæstv. samgrh.:
„1. Hefur verið könnuð hagkvæmni þess að tvöfalda Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur og það borið saman við hagkvæmni þess að leggja rafknúna járnbraut á milli þessara staða?
2. Eru uppi áætlanir um að lýsa helstu gatnamót á Reykjanesbraut?
3. Er fyrirhugað að leggja slitlag á „axlir“ Reykjanesbrautar?"
Ástæður fyrir þessari fsp. eru náttúrlega margvíslegar. En fyrir nokkrum árum var flutt hér á þinginu till. til þál. um að kanna hagkvæmni þess að leggja rafknúna járnbraut á milli þessara staða, sem nýtti þá miklu raforku sem við höfum í landinu og í öðru lagi létti af brautinni þeim þungaflutningum sem núna fara þar um og þeim farþegaflutningum með stórum farþegaflutningabílum sem valda bæði miklu sliti og reyndar slysahættu á brautinni.
Þessi till. náði á sínum tíma ekki afgreiðslu hér á þinginu og þess vegna fór þessi könnun aldrei fram, en í umræðum á þeim tíma minnist ég þess að það var rætt að það væri, á þeim tíma a.m.k., ekki talið hagkvæmt að fara út í þessa framkvæmd.
Í umræðunni hefur mikið verið um það rætt líka að tími væri kominn til þess að tvöfalda Reykjanesbrautina vegna mikillar aukningar á umferð, og m. a. hafa verið fluttar um það tillögur hér á þinginu.
Þess vegna spyr ég: Hefur hagkvæmni þessara tveggja kosta verið könnuð og hún borin saman?
Í öðru lagi spyr ég um lýsingu á helstu gatnamótunum. Það er ljóst að á helstu gatnamótum brautarinnar, svo sem við Kúagerði, við Voga og við Grindavíkurafleggjarann er mikil slysahætta þegar veður eru slík að skyggni er slæmt eða mjög dimmt að kvöld- og næturlagi.
Ég hef kynnt mér það að það er ekki svo mikið fjárhagslegt atriði að lýsa t.d. þessi tvenn gatnamót og ég hef ekki orðið var við það að það sé neins staðar í áætlunum. Þess vegna spyr ég hvort áætlanir séu uppi um að lýsa þessi gatnamót. Það hefur núna verið gert t.d. á gatnamótum við nýja malbikunarstöð rétt hjá Álverksmiðjunni í Straumsvík og hefur það gert mikið gagn að mínu viti og ég tel að það þyrfti að flýta slíkum framkvæmdum.
Í þriðja lagi spyr ég hvort fyrirhugað sé að leggja varanlegt slitlag á „axlir“ Reykjanesbrautar. Það sem er kallað „axlir“ er malarlagið meðfram steyptu brautinni. Ég hafði ekki betra orð yfir þetta en axlir. Það hafa orðið mörg óhöpp er menn hafa lent í vandræðum sérstaklega að vetrarlagi þegar menn hafa misst bíla út fyrir steyptu brautina og hæðarmismunur hefur verið. Þetta hefur nokkuð verið lagað í Kúagerði þar sem slæm slys urðu núna fyrir ekki löngu síðan. En ég spyr: Hafa verið gerðar áætlanir um að taka þessar axlir í gegn með brautinni allri?
Ég vænti þess að ráðherra upplýsi mig um þessi atriði og þjóðina í heild því ég tel að hér sé um stórmál að ræða. Reykjanesbrautin hefur tekið mikinn toll í slysum á undanförnum árum enda umferð þar nokkuð hröð.