14.04.1988
Sameinað þing: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6395 í B-deild Alþingistíðinda. (4390)

314. mál, framkvæmdir við Reykjanesbraut

Samgönguráðherra (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Til mín hefur verið beint á þskj. 623 fsp. í þremur tölul. um framkvæmdir við Reykjanesbraut.

Varðandi 1. fsp. skal það tekið fram að ekki hafa farið fram sérstakar athuganir á hagkvæmni þess að tvöfalda Reykjanesbraut. Það má hins vegar að sjálfsögðu öllum vera ljóst að auðvitað væri hagkvæmt fyrir aksturinn ef tvöföld akbraut á Reykjanesbraut væri fyrir hendi.

Það sama gildir um lagningu rafknúinnar járnbrautar milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur. Samanburður á þessum tveimur kostum er því ekki mögulegur eins og hér er að vikið. En varðandi tvöföldunina á Reykjanesbraut skal upplýst að meðalumferð á þeim hluta hennar sem liggur milli Grindavíkurvegar og Keflavíkur er 4-5 þúsund bílar á dag, en það er talsvert undir þeim mörkum sem almennt er miðað við þegar metin er þörf á breikkun sambærilegra vega. Umferð um aðra hluta brautarinnar er verulega minni.

Varðandi 2. og 3. tölul. fsp. skal þess getið að að því hefur verið unnið að undanförnu að lýsa helstu gatnamót á Reykjanesbraut og gerð hefur verið áætlun um lagningu bundins slitlags á „axlir“ brautarinnar. Framhald þessara verka ræðst af fjárveitingu til vegamála og kemur því til athugunar við endurskoðun vegáætlunarinnar hér á þingi næstu vikur.