14.04.1988
Sameinað þing: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6404 í B-deild Alþingistíðinda. (4405)

366. mál, vegamál

Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. samgrh. um vegamál, svohljóðandi:

„1. Eftir hvaða reglum eru stikur settar meðfram vegum?

2. Hverjar eru forsendur þeirrar ákvörðunar að mjókka stofnbrautir svo mikið að ekki er hægt að mætast á þeim nema önnur bifreiðin fari út af bundna slitlaginu?

3. Hefur ráðherra hugleitt slysahættu af því að byggja til skiptis á sömu stofnbrautinni brýr með einni akrein og tveimur akreinum?"

Ég tel að það sé nokkuð brýnt að samræmdar reglur séu á þessu sviði. Sumir fjallvegir með mikla umferð yfir veturinn eru óstikaðir, eins og t.d. Laxárdalsheiði sem er eins konar öryggisventill, ef svo mætti komast að orði, fyrir þá sem þurfa að komast suður frá Norðurlandi og Vestfjörðum þegar Holtavörðuheiðin er lokuð.

Ég vil líka vekja athygli á því að mér finnst það ekki raunhæft að leggja vegi með einni akrein á bundnu slitlagi og tel að þær aðgerðir beri vott um litla framsýni. Við sjáum stórar bifreiðar með aftanívagna koma eftir þessum vegum og smábíla sem hrökklast hreinlega út af. Það fólk sem fer héðan af höfuðborgarsvæðinu út á land til að njóta sumarfrís á þessum stöðum er yfirleitt ekki vant því að aka á malarvegum og ég er sannfærður um að þetta á eftir að kosta fjölmörg dauðaslys áður en lýkur.

Hitt atriðið sem veldur ekki síður undrun minni er það að byggja brýr sem eru ca. 11/2 akrein á breidd. Menn eru að keyra eftir stofnbraut, koma að brú sem er tvær akreinar, halda áfram í góðri trú og telja að næsta brú verði jafnbreið, en þá er hún allt í einu 11/2 akrein og ekki hægt að mætast. Þetta eru atriði sem ég tel að beri vott um skipulagsleysi og valdi mikilli slysahættu. Mér finnst nefnilega að menn gleymi því að það er hönnun umferðarmannvirkjanna sem ræður mestu um slysahættu í umferð, en ekki eitthvert auglýsingafár eða bifreiðaeftirlit. Það eru alger aukaatriði í þessu sambandi. Það er hönnun umferðarmannvirkjanna sem ræður úrslitum.