14.04.1988
Sameinað þing: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6406 í B-deild Alþingistíðinda. (4407)

366. mál, vegamál

Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans og mér fannst í þeim koma fram verulegur skilningur á þessum málum. Ég vil undirstrika þá skoðun mína að vegir og brýr sem við erum að byggja í dag eru ekki vegir sem við ætlum að leggja niður eftir 10 ár. Þetta eru vegir eða brýr sem við ætlum að haldi velli næstu 30, 40, 50 árin. Þess vegna er það mikil skammsýni ef menn nú með reiknireglum meta umferðina og umferðarþungann eftir þeim forsendum að það þurfi að vera svona mikil umferð til þess að hægt sé að gera tvíbreiða vegi og brýr. Höft á vegunum sem leysast kannski eftir 2–3 ár gerbreyta umferðarþunganum eins og mörg dæmi eru um.

Ég hvet ráðherra eindregið til að beita sér í þessu máli. Ég held að engin einasta stofnbraut á Íslandi muni verða með minni umferð en 100 bíla á dag.