14.04.1988
Sameinað þing: 68. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6408 í B-deild Alþingistíðinda. (4414)

383. mál, greiðsla fæðingarorlofs

Fyrirspyrjandi (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Allnokkru fyrir páska leyfði ég mér að bera fram fsp. til hæstv. heilbrrh. um tilhögun greiðslna í fæðingarorlofi, en eins og kunnugt er gildir sú regla samkvæmt lögum sem sett voru á Alþingi á sl. ári að greiðslur í fæðingarorlofi skuli annars vegar vera fæðingarstyrkur og hins vegar fæðingardagpeningar sem greiðast í fjóra mánuði við hverja fæðingu til móður sem lögheimili á hér á landi. Þetta skuli vera á árinu 1988. Frá 1. jan. 1989 skuli þessar upphæðir greiddar í fimm mánuði og frá 1. jan. 1990 í sex mánuði. Þegar sérstaklega stendur á geta greiðslurnar staðið lengur þegar til er að dreifa veikindum sem leiða af meðgöngunni.

Ástæðan til þess að þessi fsp. er fram borin er sú að mismunandi aðferð hefur verið viðhöfð nú á þessu ári að því er tekur til frádráttar frá greiðslunum vegna staðgreiðslu skatta og einnig kemur þá berlegar í ljós hvert óhagræði er af sérstakri vinnureglu sem gilt hefur þegar sótt er um greiðslurnar eftir fæðingu barns. En þá stendur svo á að greiðslurnar eru borgaðar út allar í einu lagi. Þetta kemur mjög illa út eftir að lögin um staðgreiðslu skatta tóku gildi því að þá er dregið af greiðslunum sem svarar því að hér væri um mánaðarlaun að ræða, þ.e. næstum 1/3 er dreginn frá samanlagðri upphæð greiðslna í fæðingarorlofi. Ef hins vegar sótt hefði verið um fyrir fæðingu barns hefði konan einungis fengið tiltekna fjárhæð á mánuði hverjum í fjóra mánuði og hefði þá lent innan við skattleysismörkin svo að það munar ekki neinum smáfjárhæðum fyrir tekjulitla móður að svona er farið að. Það svar sem hún fær hjá Tryggingastofnun er að þetta verði vissulega endurgreitt, en þetta verður endurgreitt eftir 11/2 ár í þeim tilfellum sem þetta hefur gerst á þessu ári. Vegna þess að ég tel að þetta sé fráleit framkvæmd leyfi ég mér að bera fram fsp. til hæstv. ráðherra um tilhögun þessara greiðslna. Vonast ég raunar til að þessu hafi nú þegar verið breytt.