14.04.1988
Sameinað þing: 69. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6426 í B-deild Alþingistíðinda. (4428)
392. mál, úttekt vegna nýrrar álbræðslu
Guðmundur G. Þórarinsson:
Forseti. Ég kvaddi mér hljóðs áðan til að fara viðurkenningarorðum um fyrrv. iðnrh. og áform hans við stóriðju. Ég hef hins vegar orðið þess vísari nú eftir að hafa hlustað á hans orð að honum þótti lofið ekki gott. Ég verð að játa að ég áttaði mig ekki alveg á þessari tilvísun þingmannsins til sagnfræðinga og þeirra rannsókna á því sem hann hefði gert eða sagt. Ansi er ég hræddur um að ef niðurstaða þeirra sagnfræðinga ætti að vera eitthvað í þeim dúr sem fyrrv. iðnrh. vildi vera láta í sínum orðum, þá verði hann að ráða sovéska sagnfræðinga til að fá fram þá niðurstöðu.
Afstaða Alþb. hefur alltaf verið skýr í þessum málum, segir hv. þm. Hjörleifur Guttormsson. Því miður er ræðutíminn svo stuttur að ekki eru miklir möguleikar á að fara alveg ofan í það. En ég hygg að ég halli ekki á neinn þó að ég segi að enginn flokkur hefur haft stærri drauma um stóriðjuframkvæmdir og virkjanaframkvæmdir en einmitt Alþb. í ríkisstjórn. Þegar Alþb. hefur komið í stjórnarandstöðu hafa þeir að vísu gjarnan snúið blaðinu við og talað um stóriðjuriddara í öðrum flokkum og eitthvað slíkt og eru þá búnir að gleyma öllum fyrri orðum. Síðan stendur þessi hv. þm. hér upp í öllu sínu minnisleysi um eigin aðgerðir og sakar aðra um að minni þeirra hafi brostið. Ég held að það væri ansi gott fyrir menn að rifja þetta svolítið betur upp.
Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um áldeiluna hér áður fyrr, en ráðherrann fyrrv. drap aðeins á hana. Um það get ég aðeins sagt að þeim mun meira sem ég hef fjallað um það mál, bæði á innlendri grund og erlendri, því betur hefur mér orðið ljóst hvílíkt gífurlegt tjón þessi fyrrv. iðnrh. vann landi og þjóð með því hvernig hann hélt á þessu máli, ekki bara á þeim tíma heldur líklega um alla framtíð. Hefði hann ekki dregið þá samninga sem þá voru möguleikar á að gera hefðu unnist við hækkun samningsins fjármunir sem líklega dygðu til að leggja bundið slitlag á alla vegi á Austurlandi svo að ekki væri meira talið. Mikil er því sekt ráðherrans fyrrv. í því máli. Ekki veit ég að hve miklu leyti honum var sjálfrátt og ég ætla ekki að fara mikið út í það, en því miður var tjónið mjög mikið.
Varðandi þáltill. vil ég aðeins koma inn á það að í öllum sínum gífurlegu áformum um stóriðju datt fyrrv. ráðherra ekki í hug að láta vinna þau mál á svipaðan hátt og hér er um að ræða og hann leggur nú til. Hér er talað um úttekt á arðsemi álbræðslunnar, á þjóðhagslegri hagkvæmni. Þetta hefði verið tilvalið að gera líka þegar ráðherrann var sjálfur við störf og hafði þræðina í sínum höndum. Nú telur hann meiri ástæðu til að gera þetta og ekki skal ég draga úr því. Hins vegar hefur verið unnin skýrsla og verið gerðar ýmsar athuganir á hagkvæmni stóriðju.
Síðan er kveðið á um áhrif af byggingu orkuveranna á íslenskt efnahagslíf og þenslu og skuldastöðu. Ekki hefði verið síður ástæða til að athuga þetta miðað við þau gríðarlegu áform sem fyrrv. iðnrh. hafði uppi þegar hann fékkst við þessi mál.
Áhrif á byggðaþróun í landinu. Nú hefur forsrh. nýlega falið Byggðastofnun að gera algera úttekt á byggðaþróun í landinu. Ekki þykir mér ólíklegt að það megi taka það inn undir. Það kemur mér spánskt fyrir sjónir að sjá glottsvipinn á þessum hv. þm. þegar minnst er á þá skýrslu. Ég hélt að hann hefði áhuga á byggðamálum og hefði áhuga á að tekið væri á þeim málum, upplýsingum safnað og reynt að vinna þessi mál. En nú ver hann sig með vandræðalegum hlátri úr sæti sínu.
Ég held að orkumálin séu þannig að raforkuverðið sé samningsatriði og menn hljóta að sjá að ekki verður samið um það hér úr sölum Alþingis. Það mál verður vafalaust til mikillar umræðu, bæði hér og víðar í þjóðfélaginu, áður en til ákvörðunar kemur. Varðandi aðild útlendinga og eignaraðild skal ég fúslega segja það að ég hefði kosið að Íslendingar ættu eignarhlut í þessu álveri, þessari stækkun og í þeim stóriðjufyrirtækjum sem hér rísa, ekki endilega ríkisstjórnin heldur Íslendingar almennt, fyrirtæki, einstaklingar og aðrir slíkir. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að hér er um svo gífurlega fjármuni að ræða að jafnvel þó að ég og hv. þm. Hjörleifur Guttormsson vildum láta okkur dreyma stóra drauma um það verður þar kannski ekki miklu við spornað. Sjálfsagt er hins vegar að athuga það. Enn er það inni í myndinni, a.m.k. á fyrstu skrefum, að það er ekki útilokað að Íslendingar komi inn í þetta hvernig sem tekst að tefla úr því og skal ég ekki leggja dóm á það.
Hins vegar er stefnan varðandi virk yfirráð ekki bara byggð á eignaraðild. Við sjáum af ýmsu öðru að ekki er einu sinni nægilegt að eiga meiri hluta ef menn ekki halda á virkum yfirráðum á öðrum sviðum. Þar koma svo fjölmörg önnur atriði inn í myndina, eins og ég veit að fyrrv. iðnrh. þekkir, sem hægt er að halda og skipta máli og þarf að skoða sérstaklega.
Þjóðhagsleg hagkvæmni stóriðju getur verið mikil ef samningar eru góðir. Ég hygg að Íslendingar þurfi að veiða u.þ.b. 700 þús. til 1 millj. tonn af loðnu á ári til að afla þess gjaldeyris sem álverið þó færir íslenskum þjóðarbúskap nú. Einu sinni hafði þessi ráðherra einhver orð um að það mætti loka því. Þá þyrftu menn að afla þess gjaldeyris á annan hátt. Þarna er því um stóra hluti að ræða.
Til eru tölur um það að stækkun álvers gæti greitt Blönduvirkjun algerlega upp á 19–20 árum. Á þeim tíma fengju Íslendingar kannski ekki mikinn arð af Blönduvirkjun, en 100 ár eftir það mundi Blönduvirkjun standa og mala gull fyrir komandi kynslóðir og eiga hlutdeild að því að lækka þannig orkuverð í framtíðinni.
Það er engin spurning um það að álverið greiðir tiltölulega há laun miðað við önnur fyrirtæki í landinu. Starfsaldur manna þar er langur, það er biðlisti eftir að fá þar vinnu, það er eftirsótt. Ég held því að menn verði líka að sjá jákvæðu hlutina í þessu samhengi þó að ég enn á ný ítreki að hér er um að ræða viðræður sem enginn getur enn fullyrt um til hvers leiða. Í þessa byggingu verður auðvitað ekki ráðist nema menn komist að þeirri niðurstöðu að það sé landi og þjóð til góðs. Stóriðjuframkvæmdir eru einn af þeim þáttum sem Íslendingar hljóta að hafa opin augu fyrir til að tryggja atvinnu- og efnahagslíf í framtíðinni.