14.04.1988
Sameinað þing: 69. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6444 í B-deild Alþingistíðinda. (4442)
453. mál, ráðstafanir gegn atvinnuleysi á Suðurlandi
Flm. (Óli Þ. Guðbjartsson):
Hæstv. forseti. Ég vil leyfa mér að mæla fyrir annarri till. til þál. á þskj. 803 um ráðstafanir gegn atvinnuleysi og fólksfækkun á Suðurlandi. Flm. ásamt mér eru hv. þm. Margrét Frímannsdóttir, Albert Guðmundsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Guðmundur Ágústsson og Hreggviður Jónsson. Till. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að kjósa níu manna nefnd til þess að leita allra leiða til að snúa við þeirri óheillaþróun sem undanfarið hefur orðið á Suðurlandi, einkum austan Þjórsár, um atvinnuleysi og fólksfækkun.
Nefndin vinni með fulltrúum sveitarstjórna, atvinnurekenda, bænda og launþegasamtaka á Suðurlandi ásamt Byggðastofnun að þessu verkefni.
Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“
Í örstuttri grg. með þessari till. til þál. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Öllum er kunnugt að landsbyggðin á nú æ meir undir högg að sækja í samskiptum og samkeppni við höfuðborgarsvæðið. Óvíða hefur þessi óheillaþróun leitt til jafnmikils vanda sem á Suðurlandi, einkum austanverðu. Þrjár meginástæður eru einkum taldar liggja þar til grundvallar:
1. Samdráttur og annar vandi í landbúnaði.
2. Samdráttur og raunar stöðvun í virkjanaframkvæmdum.
3. Rekstrarvandi í iðnaði, einkum vefjariðnaði. Enda þótt vandi fólks víða á landsbyggðinni sé mikill í samanburði við höfuðborgarsvæðið mun óhætt að fullyrða að hvergi er hann jafnmikill og á fyrrnefndu svæði.
Þess vegna er ljóst að úrbóta er ekki að vænta nema hart verði brugðist við og allra hugsanlegra leiða sé leitað til að þessari þróun verði snúið til betri vegar.
Til þess þarf samstillt átak mjög margra aðila, bæði í héraði og stjórnkerfi ríkisins.
En tækist hér vel til gæti það viðreisnarstarf einnig orðið öðrum héruðum til hagsbóta og þar með lagt grunn að raunhæfri, hagstæðri byggðaþróun.
Til að stuðla að því samstillta átaki er tillaga þessi flutt.“
Hér lýkur, hæstv. forseti, þessari stuttu grg. fyrir þessu stóra máli. Ég segi stóra máli, enda þótt ég dragi ekki dul á þá skoðun mína að hér er einungis um hluta miklu stærra máls að ræða, þ.e. landsbyggðarvandans í öllum hans margbreytileik.
Mönnum er kunnugt um að orðsendingar hafa gengið á milli Byggðastofnunar og forsrn. um þetta mál, ekki síst nú nýverið, bæði um málið í heild og einnig þann hluta sem hér er sérstaklega tekinn til meðferðar. Allt er það góðra gjalda vert. En ljóst er að miklu meiri aðgerða er þörf en þar eru enn sýnilegar ef von á að vera til úrbóta í þessu efni.
Þó að drepið sé á örfá aðalatriði í þessari örstuttu grg. sem ég áðan las er þó sérstaða þessa svæðis enn ótalin - sérstaða sem ein sér ætti að nægja til að menn gæfu atvinnuþróun landshlutans meiri gaum en ella. Þar á ég við þá staðreynd sem einkennist af hafnleysi suðurstrandlengjunnar allt frá Þorlákshöfn til Hornafjarðaróss. Lífhöfn Vestmannaeyja er vitaskuld fyrir landi en breytir þó ekki því að einhæfni atvinnulífs á Suðurlandi, einkum í austursýslunum, er meiri og viðkvæmari fyrir sveiflum en annars staðar gerist á Íslandi.
Í þessu sambandi vil ég ekki gera lítið úr þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur austan fjalls á undanförnum árum og áratugum, í því að skapa skilyrði til hagstæðrar atvinnuþróunar með uppbyggingu á sviði mennta-, heilbrigðis- og samgöngumála. En á árunum 1967–69, þegar skyndilega kreppti að hér á landi og varð atvinnubrestur, þá varð þetta svæði einna fyrst fyrir barðinu rétt eins og nú hefur orðið af sömu frumástæðu, einhæfninni í atvinnulífinu.
Enda þótt vandinn undir lok 7. áratugarins hafi verið ærinn tókst þá á tiltölulega stuttum tíma að snúa þróuninni til betri vegar með fremur einföldum aðgerðum sem fyrst og fremst byggðust á samstilltu átaki býsna margra bæði í héraði og ekki síður í stjórnkerfi ríkisins, rétt eins og hér er lagt til að gera.
Ástæður fyrir vandanum undir lok 7. áratugarins voru af allt annarri rót en nú er við að etja. Þá var ein meginástæðan skyndilegt verðfall á einni aðalafurð í útflutningnum. Verkefnið var m.a. að þreyja þorrann og góuna og missa ekki móðinn auðvitað í þeirri trú að það él stytti upp um síðir sem og varð.
Nú er vandinn allt annars eðlis þó að afleiðingar séu e.t.v. svipaðar a.m.k. á því svæði sem ég hef hér sérstaklega gert að umtalsefni.
Ég gat í grg. með till. þriggja meginástæðna. Ég hikaði ekki við að fullyrða að samdrátturinn í landbúnaðinum og sú ótrú og sá óhugur sem óhjákvæmilega hefur fylgt í kjölfarið sé sá ógæfuvaldur sem illvígast er við að fást.
Mig langar til að geta fáeinna þróunartalna af svæðinu frá seinustu árum. Fyrst vildi ég geta þess að árið 1985 voru íbúar á Suðurlandi 20 088. Þeim hafði þá fækkað um 52 frá árinu áður, eða um 0,3% þó svo að meðaltalsfjölgun á landinu væri 0,7%. Árið eftir, 1986, er íbúatalan á Suðurlandi komin niður í 20 065. Enn hefur þeim fækkað um 23, eða 0,1% enda þótt meðaltalsfjölgun á landinu sé 0,8%. Og á sl. ári, 1987, heldur þróunin áfram í sömu átt. Nú er íbúafjöldinn kominn niður í 19 965, hefur þá fækkað á milli ára um 100 manns, eða um 0,5%. Þó svo að meðaltalsfjölgun íbúa á landinu sé 1,4% er fækkun á Suðurlandi um 0,5%.
Ef við lítum nánar á þessar aðstæður í sýslunum austanverðum og síðan í þéttbýlinu þar kemur þetta í ljós: 1986 búa í Vestur-Skaftafellssýslu 1324 sálir. Þeim hafði þá fækkað um tíu frá árinu áður, um 0,7%, þó svo að fjölgun hafi orðið 0,8% að landsmeðaltali. Í fyrra, 1987, er íbúafjöldinn kominn niður í 1285, enn hafði fækkað um 39 eða um 2,9% þó svo að landsfjölgunin hefði verið 1,4%.
Í Rangárþingi lítur þetta þannig út: 1986 búa 3465 manns í Rangárþingi. Hafði þá fækkað frá árinu áður um 83 eða um 2,3%. Og enn minni ég á að það er fjölgun á landsmælikvarða um 0,8%. 1987 hefur enn fækkað í Rangárþingi og þá niður í 3383 eða um 82 á einu ári eða um 2,4% fækkun þó svo að landsmeðaltalsfjölgunin hafi verið 1,4%.
Nú gætu menn ályktað sem svo að þetta væri í þessum dreifbýlissýslum. Það væri ekki svona í þéttbýli þessa svæðis. En ef við litum svolítið nánar á málið og lítum á Rangárvallahrepp eða Hellu á Rangárvöllum lítur dæmið þannig út: 1986 búa þar 784 sálir. Það hafði fækkað um 19 frá árinu áður eða um 2,4%. Þó er landsfjölgunin 0,8%. 1987 fækkar enn á Hellu, niður í 756 manns, um 28, um 3,6% fækkun í þéttbýli annars þorpsins í Rangárvallasýslu þó svo að landsmeðaltalsfjölgunin sé 1,4%.
Á Hvolsvelli gerist nákvæmlega sama þróunin. 1986 búa þar 734 menn, hafði fækkað um 15 frá árinu áður, um 2,0%. 1987 fækkar enn, niður í 705, um 29 manns, um 4% fækkun frá árinu áður.
Þannig er svipuð þróun einnig austur í Vík í Mýrdal.
Þetta sýnir að þróunin á svæðinu er öll á sömu lund. Ég hef búið í rösklega 30 ár austur á Selfossi, kom ungur maður vestan af Vestfjörðum, og mér er það í minni þegar ég kom þangað austur hve bjartsýni var mikil. Það var fjölgun á hverju ári. Það var öfugt við það sem hafði verið vestur á Vestfjörðum.
Árið 1987, í fyrra, rann upp það fyrsta ár í sögu þessarar ungu byggðar á Selfossi sem verður fækkun, í fyrsta sinn líklega frá upphafi vega. Það fækkaði að vísu ekki mikið en um 19 manns á sl. ári á Selfossi frá árinu 1986. Það er í fyrsta sinn í sögu þeirrar byggðar. Það fer sem sagt ekkert á milli mála hvert stefnir, hvort sem er í strjálbýlinu ellegar í þéttbýlinu á þessu svæði.
Ef við lítum svo á aðra hlið þessa máls, atvinnuleysið, kemur þetta í ljós úr Rangárþingi: Ég er hér með fáeinar tölur frá ákveðnum mánuðum, september 1986, september 1987, janúar 1988, og ég vek athygli á því að þetta er í þéttbýli Rangárþings. Þetta er þegar sláturtíð stendur hæst. Á Hvolsvelli eru 240 atvinnuleysisdagar í september 1986. Í september 1987 eru þeir komnir upp í 425, í janúar 1988 600. Á Hellu eru þeir 187 í september 1986, 186 í september 1987, komnir upp í 583 í janúar 1988. Þróunin enn í sömu átt.
Ég hika ekki við að endurtaka það, sem ég sagði áðan, að vandinn á svæðinu er mikill og það verður ekki fengist við þennan vanda að viti öðruvísi en að það takist að samstilla marga þætti saman í einn farveg þegar þar við bætist að sú búháttabreyting sem að er unnið hefur reynst mun örðugri og seinvirkari en vonir hafa staðið til. Nægir í því efni að minna á örðugleika í loðdýrarækt og það hve lífvænlegasti vaxtarbroddurinn, fiskeldið, er gífurlega fjármagnsfrek atvinnugrein og sein að skila arði. Ég efast þó ekki um að einmitt á því sviði eru möguleikar okkar mestir í náinni framtíð og um langa framtíð og þar er Suðurland öllu heilli vel með í þróuninni, enda möguleikar á því sviði geysilegir nánast um allt héraðið. En til þess að sú þróun sem er þegar hafin nýtist landshlutanum í sambandi við þann vanda sem þáltill. fjallar um þarf miklu snarpari viðbrögð og einarðari stuðning með fjármagnsútvegun og ráðgjöf en enn hefur orðið staðreyndin.
Ég á ótalinn þann vanda sem ég tel þó einna þyngstan í skauti af þeim sem nú er við að fást á Suðurlandi sem og hvarvetna annars staðar á landsbyggðinni. Það er hinn mikli fjármagnskostnaður, afleiðingar af óréttlátri lánskjaravísitölu, lögunum nr. 13/1979. Tveir aðilar öðrum fremur verða þar fyrir barði. Húseigendur, einkum af yngri kynslóð, og þeir sem reyna að stunda atvinnurekstur af einhverju tagi.
Nú er svo komið að í þorpunum í Rangárþingi, Hellu og Hvolsvelli, eru mörg hús til sölu sem seljast ekki vegna ástandsins í atvinnumálum. Jafnvel munu þess dæmi að fólk hefur orðið að yfirgefa húseignir sínar og leita hingað á höfuðborgarsvæðið til atvinnu. Á meðan standa íbúðir þessa fólks auðar. Skuldirnar vaxa jafnt og þétt í öfugu hlutfalli við raunverulegt verðgildi eignanna.
Ég bið á því forláts, hæstv. forseti, hve mér varð tíðrætt um málið. Mér er sannarlega mikið niðri fyrir eins og væntanlega mörgum öðrum á þessu svæði. Ég vil vænta þess að að umræðu þessari lokinni verði till. vísað til síðari umr. og atvmn. og ég legg á það áherslu að fulltrúar í hv. atvmn. flýti störfum sínum þannig að þingið geti síðar sagt álit sitt á þessari till. — Ég hef loks lokið mínu máli.