14.04.1988
Sameinað þing: 69. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6457 í B-deild Alþingistíðinda. (4450)

453. mál, ráðstafanir gegn atvinnuleysi á Suðurlandi

Guðni Ágústsson:

Hæstv. forseti. Það er vegna ræðu hv. flm. Óla Þ. Guðbjartssonar sem mér fannst kannski að hefði hlustað illa á mína ræðu áðan. Ég hvorki hæddi eða níddi þennan tillöguflutning. Ég ásaka hann í engu. Hann átti þessa leið, hún var göfug, og ég hef ekkert út á það að setja. En ég sagði það sem ég meina, að ég tel að það sé í þessu máli að tefja það og mér finnst að það hafi komið hér fram í umræðum að menn eru um það sammála að á byggðavandanum þurfi að taka í heild sinni þar sem við förum í almennar aðgerðir sem styrkja byggðirnar í landinu. Framhaldið kann að vera fólgið í störfum nefnda í héraði, stjórnmálamanna og fleiri og fleiri. Ég ásaka hann ekki fyrir þennan tillöguflutning. Ég minnti á það, sem mér þykir mikilvægast, að þessi skýrsla sem ég kom með er til. Hún kemur ekki út fyrr en 1986. Ég hef engan þm. heyrt minnast á hana og ég hef ekki heyrt að ríkisstjórnin noti hana sem gagn í sínu máli. Mér finnst þessi skýrsla merkileg og að menn eigi að horfa á hana því að hún er mikill leiðarvísir. Hér er mikil samstaða sem hefur náðst í skoðunum og það er bent á leiðir sem menn eigi að fara í þessu máli. (AðB: Hvað segir um vanda Sunnlendinga? Getur þú lesið það upp fyrir okkur?) Vandi Sunnlendinga er stór. Hann er ekki sérgreindur vandi Sunnlendinga enda er vandi Sunnlendinga ekkert stærri en vandi margra annarra á landsbyggðinni. Við höfum áratugum saman horft á það að þúsund manns hefur flutt sig búferlum af landsbyggðinni á þetta svæði. Það er það sorglega í þessu máli. Það er sú þróun sem ég vil snúa við með stjórnvaldsaðgerðum og ég auðvitað ítreka það, sem formaður þess flokks sem flm. er í tók upp úr minni ræðu, að ég tel brýnast að ríkisstjórnin, og ég tel að henni beri skylda til þess, standi við þau heit sem hún gaf í byggðamálum. Auðvitað kann svo að vera að ef maður sér ekki úrræði eða áræði af hálfu ríkisstjórnarinnar í þeim málum er hægt að hætta stuðningi við hana, þá er hægt að leita nýrra leiða til að mynda ríkisstjórn í þessu landi ef stendur á vilja í einhverjum þessara flokka sem að stjórninni standa sem ég hef enga trú á. Ég trúi því að í öllum þessum þremur flokkum séu byggðastefnumenn sem eru tilbúnir að taka á þessum vanda og muni gera það á næstu vikum.

Ég tel einn stærsta vandann í þessu þann sem ágætur bóndi úr Rangárþingi minnti á á fundi á dögunum. Hann sagði: Hvað er þessi þjóð að hugsa? Hún er í mínum huga eins og í ævintýrinu um hana Gilitrutt. Hvað gerði konan í ævintýrinu um Gilitrutt? Hún sat um kyrrt og vildi kaupa alla vinnu. Hún vildi láta tröllið gera vefinn fyrir sig. Hún spurði ekki hvað það kostaði. En hvað kom á daginn? Hvað vildi Gilitrutt fá í staðinn? Hana sjálfa. Er það ekki þetta sem er að gerast hér? Við liggjum hundflatir fyrir útlendingum. Við erum í sífellu að leggja niður störf sem menn hafa áratugum og öldum saman unnið í landinu. Á hvers bandi verðum við á endanum? Við verðum á valdi útlendinganna ef þannig heldur fram sem horfir.

Rétt er það að við búum orðið við allt of sterkt borgríki á Íslandi. Því miður eru völd og umsvif í einu sveitarfélagi í landinu það mikil að það getur í rauninni ráðið öllum málum sem því dettur í hug. Hvað haldið þið að verslunarhöllin Kringlan hafi gert? Hún spennti kaupið upp, hún gyllti þetta „gósensvæði“, svo dæmi sé nefnt. Það var ekkert verið að spyrja um hvort það væri nóg til af verslunum. Hér geta menn hafið framkvæmdir sem orsaka þenslu, sem stuðla að því að fólk fari að flytja sig af landsbyggðinni. Þetta er því hluti af þeim vanda sem við er að glíma. Það verður að taka á þessum málum í heild sinni með aðgerðum, með lögum og það verður að taka á ýmsu sem sterkustu sveitarfélögin í landinu ætla sér að gera. Því að það er alveg rétt sem komið hefur fram í þessum umræðum að það verður engin hamingja í þessu landi ef svo heldur fram sem horfir. Eins og hv. þm. Albert Guðmundsson minntist á er Suðurland glæsilegt byggðarlag og þar drýpur hunang af hverju strái. Þar eru glæstir möguleikar ef ríkisstjórnin gerir ákveðnar aðgerðir sem snerta atvinnuvegina, ef menn standa saman heima fyrir, en það er mjög mikilvægt og ég hygg að það muni gerast á Suðurlandi, eða það vona ég og finn að fleiri og fleiri eru að átta sig á.

Mér verður hugsað til Eyfirðinga. Þeir stofnuðu með sér iðnþróunarfélag. Þeir hafa með samstilltu átaki, vinnu og vilja, sótt verkefni, sótt heil fyrirtæki hingað á þetta svæði og flutt heim í byggðina sína af því að þeir voru menn til þess og þeir stóðu saman. Þess vegna mæli ég með samvinnu sveitarstjórnarmanna, eigenda fyrirtækja og ríkisvalds.

En ég tel hættulegt að drepa málinu á dreif eina ferðina enn með því að hér setjist nefnd að störfum. Það tók þessa nefnd tvö ár að semja þessa skýrslu. Hún var skipuð 1984, en skýrslan kemur ekki út fyrr en 1986. Þannig yrði þetta á nýjan leik. Ég get tekið það fram að hv. 1. flm. bauð mér að vera meðflutningsmaður að þessari ályktun. Mín skoðun var þessi og er þessi, að okkur sé nær að taka á þessu máli með öðrum og skjótari hætti. Það er fyrst ríkisvaldið. Um leið og við tökum á öllum hinum þáttunum heima.

Eitt stórt mál er rétt að nefna. Það er í sambandi við alla þá sjóði og stofnanir sem búið er að stofna í þessu þjóðfélagi. Ég finn fyrir því sem þm. þegar ég geng erinda kjósenda minna sem eru með djörfung að hefja framkvæmdir, að það er svaraseint og dautt kerfi sem við er að glíma. Svörin eru loðin og svörin eru sein og úrræðin eru ekki skjót. Mánuðum saman mega hugsjónamenn standa við dyr þessara sjóða sem hér hafa verið stofnaðir og eiga að standa með atvinnulífinu. Jafnvel þótt menn úr byggðarlögunum borgi í stórum stíl í þessa sjóði fá þeir ekki einu sinni svör frá þeim. Þetta er eitt af því sem við er að glíma. Við verðum að skerpa línur þjóðfélagsins. Ég heiti á þá ríkisstjórn sem ég styð — og ég veit að það er vilji í öllum þingflokkum sem að henni standa til þess - að taka á þessum málum á næstu vikum.