14.04.1988
Sameinað þing: 69. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6463 í B-deild Alþingistíðinda. (4455)

20. mál, kaup og sala fasteigna á vegum ríkisins

Guðrún Helgadóttir:

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans því að þau gerðu vissulega það gagn að sýna fram á nauðsyn þess að slík beiðni um skýrslu væri lögð fram. En það var á síðasta þingi í upphafi þings að við þingmenn Alþb. ásamt hv. 7. þm. Norðurl. e. Málmfríði Sigurðardóttur lögðum fram beiðni um skýrslu sem hljóðaði svo, með leyfi forseta: „Með vísan til 30. gr. laga um þingsköp Alþingis óskum við undirritaðir alþm. eftir því að fjmrh. gefi Alþingi skýrslu um kaup og sölu fasteigna sem fram hafa farið á vegum ríkisins frá 26. maí 1983 til þessa dags.“ - En þetta var í október á sl. ári. — „Í skýrslunni verði getið kaup- og söluverðs hverrar fasteignar, fasteigna- og brunabótamats og greiðsluskilmála. Gerð verði grein fyrir stærð húsnæðis, afhendingartíma og kostnaði við breytingar. Einnig komi fram í skýrslunni hvort heimild var fyrir viðskiptunum í fjárlögum þegar viðskiptin fóru fram. Þess er óskað að skýrslan verði tekin til umræðu á fundi sameinaðs Alþingis þegar henni hefur verið dreift meðal þingmanna.“

Nú bar svo við á síðasta þingi að aldrei komu nein svör við umræddri beiðni um skýrslu. Þegar ég innti starfsmenn fjmrn. eftir því undir þinglok á sl. ári var ég beðin afsökunar á þessu og lofað að svörin mundu berast í byrjun næsta þings. Þess vegna ákváðum við að leggja þessa beiðni fram að nýju sl. haust.

En um svörin má hins vegar segja ýmislegt eins og hæstv. ráðherra hefur raunar þegar gert. Í svari ráðherra segir svo, eftir að hér er talin upp talnaröð um sölu fasteigna þessi umræddu ár, með leyfi forseta: „Hér á eftir fer skrá yfir fasteignakaup og fasteignasölu yfir fyrrgreint tímabil. Skráin er unnin upp úr gögnum fjmrn., en þar eð ekki bárust svör frá öllum ráðuneytum er ekki full vissa fyrir því að allar fasteignir sem keyptar eða seldar voru á umræddum tíma séu í skránni.“

Síðan kom fram í máli hæstv. ráðherra að einungis fjögur ráðuneyti svöruðu beiðni fjmrn. um upplýsingar um sölu og kaup fasteigna og má það satt að segja með ólíkindum teljast að slíkt virðingarleysi sé í frammi haft við hæstv. fjmrh. Hinu má svo einnig spyrja að: Allar heimildir í 6. gr. fjárlaga eru vitanlega heimildir, eins og hæstv. ráðherra réttilega sagði, til hans sjálfs og hans ráðuneytis. Þá hlýtur maður að spyrja hvers vegna í ósköpunum er ekki til skrá í því sama ráðuneyti um kaup og sölu fasteigna. Mér sýnist alveg ljóst að þarna sé pottur brotinn.

Síðan segir í svarinu: „Til skýringar á skránni skal eftirfarandi getið“, með leyfi forseta:

„1. Í öllum tilvikum er getið um notanda fasteignar, nema þar sem engin starfsemi er.“ - Spurning mín er: Hvers vegna eru keyptar fasteignir þar sem engin starfsemi er? Við athugun á skýrslunni má sjá að margfræg jörð, Kotmúli í Fljótshlíð í Rangárvallasýslu, virðist hafa verið keypt til engra nota og því getur sjálfsagt hæstv. fyrrv. fjmrh. svarað til hvers sú jörð var keypt þar sem ekki sýnast vera nein merki þess enn þá að hún nýtist einum eða neinum.

„2. Staðsetningar.“ Þeirra er getið.

3. Flatarmáls eigna er getið, nema þar sem það er ekki tiltækt, hvorki í samningum eða vinnugögnum með samningum né hjá Fasteignamati ríkisins.“ - Það væri fróðlegt að vita hvers konar eignir þetta eru.

„4. Kaup- og söludagsetninga er alls staðar getið þegar tiltækar eru.

5. Afhendingardagsetninga er alls staðar getið þegar tiltækar eru.

7. Fasteignamat er skráð þar sem það liggur fyrir.

8. Brunabótamat er skráð þar sem það liggur fyrir. "

Í 11. lið er sagt: „Skráður er kostnaður við byggingu eða breytingu húsnæðis þar sem við á.“

Í stuttu máli verð ég að segja eins og er að mér þykja þessi svör jaðra við að vera móðgun við alþm. sem óskar eftir að fá upplýsingar um kaup og sölu fasteigna á vegum ríkisins því þetta eru svör sem engum manni gagnast. En ég skal hvorki vera hér að níðast á fyrrv. hæstv. fjmrh. né núverandi og ég virði það við hæstv. núverandi fjmrh. að hafa sagt hér í sinni framsöguræðu að þessi mál væru í mesta ólestri vegna þess að það var það sem hann beinlínis sagði.

Vitanlega er það fullkomlega óábyrgt að Alþingi fylgist ekkert með hvort eignir eru keyptar án heimildar í fjárlögum því það viðgengst og það vitum við. Jafnframt er það fullkomið ábyrgðarleysi að við skulum ekki fylgjast með eða fá skrá yfir nýtingu eigna ríkisins. Það er vitað mál að menn hafa komið til ráðuneytisins og spurst fyrir um lausar ríkisjarðir. Menn hafa beinlínis enga hugmynd um hverjar þær eru og hvað margar. Vitaskuld ber ríkinu og fjmrn. fyrir þess hönd að sjá um að eðlilegur arður sé af ríkiseignum, beinn eða óbeinn. Það er alvitað að ríkisjarðir eru leigðar fyrir nær engan pening.

Ég veit um dæmi um blómlega jörð norður í Skagafirði þar sem ýmis hlunnindi eru, svo sem laxveiði, sem er leigð fyrir 71 kr. á ári. Ég hlýt að spyrja hæstv. fjmrh.: Getur hann ekki beitt sér fyrir því að unga fólkið í Reykjavík fái leigða íbúð fyrir 71 kr. á ári? Ég hygg að hann yrði farsæll í næstu kosningum ef hann beitti sér fyrir því. Vitanlega er þetta engin nýting og fullkomlega óeðlileg útleiga á sameiginlegri eign okkar allra.

Nýlega hefur okkur þingmönnum borist skýrsla Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 1987 sem ber að fagna því hér er nýlunda á ferðinni sem er auðvitað afsprengi laga um Ríkisendurskoðun frá 16. apríl 1986 þegar Ríkisendurskoðun var færð beint undir hið háa Alþingi. Ég hef spurst fyrir um hvort vænta megi sams konar skýrslu um B-hluta fjárlaga þar sem hér er um að ræða A- hlutann og svarið var jákvætt og því ber jafnframt að fagna. Það sem ég hins vegar held að hæstv. fjmrh. sé neyddur til að beita sér fyrir er að gerð verði ítarleg skrá um eignir íslenska ríkisins, um fasteignir, lóðir og lendur íslenska ríkisins og verðgildi þessara eigna verði fært upp á raunhæfan hátt samkvæmt núvirði. Vitanlega verðum við að vita hvað við eigum. Það verður að segjast eins og er að hefði hæstv. ráðherra hér verið að tala fyrir einkafyrirtæki er ég ansi hrædd um að það þætti ekki vel rekið fyrirtæki sem hefði nánast ekki hugmynd um hvað væri selt og keypt árlega á vegum fyrirtækisins.

Ég vil endurtaka þakkir mínar til hæstv. ráðherra fyrir að hafa þó kjark til að tala fyrir þessari heldur aumkunarverðu skýrslu, sem ráðuneyti hans hefur lagt upp í hendur hans, og einkum og sér í lagi fyrir að játa að hér sé þörf á umbótum, en ég held að jafnvel þó að það verk tæki 11/2–2 ár að skrá eigur íslenska ríkisins væri það verk sem kæmi til með að borga sig þegar til lengdar væri litið svo að hægt væri að halda þessum eignum í eðlilegu verðgildi og hafa af þeim eðlilegan arð.

Ég geri ekki aðrar athugasemdir við þessa skýrslu en þær að mér þykir hún öldungis ófullnægjandi og ein ákveðin athugasemd liggur á borðinu sem er hvers vegna Kotmúli í Fljótshlíð var keyptur án þess að sýnilegt sé að nokkur maður þurfi að nýta þá jörð. Hv. 5. þm. Reykv. verður að gera það upp við sig hvort hann svarar því sem fyrrv. hæstv. ráðherra. Ég geri ráð fyrir að núv. hæstv. fjmrh. hafi ekki hugmynd um til hvers hann var keyptur. En að endingu þetta: Ég vil beinlínis fara fram á það og við sem þessa beiðni bárum fram að gerð verði ítarleg úttekt á þessum sameiginlegum eignum okkar og verðgildi þeirra reiknað til núvirðis svo að hægt sé að fylgjast með hvað sé gert við þessar eignir sem eru eins og við öll vitum ólitlar.

Svo þakka ég að lokum hæstv. ráðherra fyrir svar hans.