14.04.1988
Sameinað þing: 69. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6465 í B-deild Alþingistíðinda. (4456)

20. mál, kaup og sala fasteigna á vegum ríkisins

Málmfríður Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég þakka þá skýrslu sem hér liggur frammi þó ófullkomin sé og allir mega sjá að þetta er plagg sem inniheldur nokkuð mörg nöfn og margar stærðir og nær yfir kaup og sölu ríkisins á fasteignum um næstum fjögurra ára skeið þó að öll kurl séu þar ekki komin til grafar. Þó ber að harma að sum ráðuneytin hafa ekki talið skyldu sína að svara eftirgrennslan um þessi mál og ég verð að segja að mér finnst það lýsa í hæsta máta virðingarleysi við ráðherra og Alþingi.

Skýrsla eins og þessi er þörf og minnir okkur enn einu sinni á að aðhalds og aðgætni er vissulega þörf þar sem farið er með sameiginlegt fé okkar allra. Þetta eru auðvitað mjög gagnlegar upplýsingar það sem þær ná, en það er engan veginn auðvelt að meta þær því til þess þarf að skoða grannt og skyggnast á bak við nöfn og tölur. Og það kann að reynast torsótt að verða einhvers vísari við það. Því hefði verið æskilegt að skýrslan hefði verið nokkuð fyllri um þessar 105 fasteignir sem um er að ræða. T.d. er ekki getið um stærð á 23 þeirra og fasteignamat og brunabótamat er alls ekki alls staðar fyrirliggjandi. Í skýrslunni segir að vísu að flatarmáls eigna sé getið þar sem það sé tiltækt, en sú spurning hlýtur að vakna hvers vegna það sé þá ekki tiltækt eins og það er orðað. Vita menn ekki um hvaða hluti er að ræða?

Vitanlega er nauðsynlegt bæði að byggja og kaupa húsnæði fyrir hina ýmsu starfsemi sem fer fram á vegum ríkisins og fæstir efast um gagnsemi kaupanna í sjálfu sér né heldur nauðsyn þeirrar starfsemi sem verið er að veita húsaskjól. En eins og ég sagði áðan hefði verið æskilegt að skýrslan væri fyllri og veitti meiri upplýsingar, t. d. um það þegar húsnæði er keypt til ákveðinnar starfsemi, hvort sé verið að kaupa yfir hana í fyrsta sinn eða verið sé að flytja eldri starfsemi úr öðru húsnæði og hafði áður verið leigt eða átti ríkið fyrra húsnæði og væri svo, hvað var gert við það? Var það selt eða var önnur starfsemi flutt þangað eða var það sett í leigu? Var verið að stækka húsnæði viðkomandi starfsemi eða draga saman? Þetta eru upplýsingar sem virðist að ætti að liggja fyrir einhvers staðar, t.d. í fjárlögunum, en það er töluverður brestur á því.

Ýmis af þessum kaupum vita flestir mætavel að nauðsyn ber til að gera svo sem eins og húsnæði yfir embættismenn á landsbyggðinni og heilsugæslu. Ég tek t.d. Greiningarstöð ríkisins sem var í alls óviðunandi húsnæði. Þar virðist hafa verið staðið skynsamlega að málum og sama má segja um Unglingaheimili ríkisins. En því er ekki að leyna að það hafa oft heyrst efasemdarraddir um að ýmis fasteignakaup ríkisins hafi verið skynsamleg eða jafnvel réttlætanleg. Má í því sambandi minna á umræður um húsið við Laugaveg 166 sem nánast var endurbyggt innan með ærnum tilkostnaði og ýmsir hafa talið meira en vafasamt að þar væri um hagkvæma framkvæmd að ræða.

Það er nú svo að það hafa oft verið keypt gömul hús á ríkisins vegum og menn hafa í bjartsýni sinni trúað því sjálfir og talið öðrum trú um að kaupin væru hagstæð. En hvað skeður svo þegar þarf að breyta skipulagi innanhúss og innréttingum? Þá fer oftar en ekki svo að allt vex og margfaldast, kostnaðurinn bólgnar út úr öllum skorðum og byggingin verður dýrari en tali tekur. Þá er málið afgreitt með því að framkvæmdin hafi ekki verið of dýr heldur hafi kostnaðaráætlunin verið of lág. Þvílík ummæli finnst mér eiginlega grátbrosleg og mér finnst hæpið að telja fólki trú um að verkfræðistofnanir séu ekki færar um að gera raunhæfa kostnaðaráætlun. Sá grunur læðist óhjákvæmilega að að stundum séu húsakaup ákveðin fyrst og fremst til að hrinda einhverjum góðum málum áleiðis sem er í sjálfu sér góðra gjalda vert, en það þarf að skoða endinn í upphafi.

Ég hefði kosið að fá að vita hvað er fyrirhugað um nýtingu á húsunum við Sölvhólsgötu og Lindargötu, hvaða ríkisstofnanir verða fluttar þangað og hvað verður gert við það húsnæði sem þær hinar sömu höfðu áður. Einhverjar áætlanir hljóta að liggja fyrir um þetta þannig að það sé hægt að fá að fylgjast með því.

Það er margs að minnast um húsakaup og byggingar, svo sem flugstöðvarinnar margumræddu. Sú framkvæmd hefur sannarlega ekki styrkt trú almennings á að farið sé með almannafé af skynsemi og sparnaði og þá vaknar sú spurning hvort lög um opinberar framkvæmdir veiti nóg aðhald, hvort ekki sé ástæða til að skerpa á þeim á einhvern hátt.

Þessi skýrsla segir okkur ekki allt. Hún segir okkur raunar allt of fátt. Hún sýnir okkur að vísu sívaxandi þörf húsnæðis yfir ríkisstarfsemi sem eins og allir vita bólgnar út með ári hverju, en það kemur hvergi fram í skýrslunni hvort eða hvað sparast á móti. Og þar á ég við, þegar orðið er of þröngt um einhverja starfsemi og stærra húsnæði er keypt, hvað verður þá um hið fyrra. Skýrslan segir okkur lítið sem ekkert um hvort ráðdeild og hagsýni hafi verið í fyrirrúmi um kaup og sölu. Vitanlega á fólk að geta treyst því að svo sé, en því miður heyrast allt of oft efasemdaraddir um þau efni.

Í skýringum við skýrsluna er þess getið að sé eign seld eða keypt án heimildar sé um það fyrirvari í samningi að sú heimild fáist. Þá vaknar sú spurning hvort svo geti ekki farið, ef slík kaup hafa verið gerð, að fjvn. sé í raun stillt upp við vegg og gert að samþykkja orðinn hlut. Er eitthvað sem hindrar að slíkt geti gerst? Reyndar drap hæstv. fjmrh. að nokkru á þetta í máli sínu áðan. Væri ekki full ástæða til að einhver aðili væri til ráðuneytis eða ráðgjafar um fasteignakaup ríkisins, óháður aðili með góða yfirsýn um fasteignamarkaðinn sem legði mat á hagkvæmni kaupa?

Ég tel líka að skrá um kaup og sölu fasteigna hjá ráðuneytum ætti að vera tiltæk í hverju ráðuneyti fyrir sig því að það er full þörf á að búa svo um hnútana varðandi þessi mál að almenningur treysti því að það sé farið af skynsemi og ráðdeild með sameiginlegt fé okkar allra.