14.04.1988
Neðri deild: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6481 í B-deild Alþingistíðinda. (4468)
293. mál, áfengislög
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Alþingi samþykkti hinn 7. maí 1981 ályktun með svohljóðandi fyrirsögn: „Um mörkun opinberrar stefnu í áfengismálum“. Tillgr. orðaðist svo að lokinni meðferð þingsins:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta nú þegar undirbúa tillögur að stefnu hins opinbera í áfengismálum sem byggist á þeim grundvallaratriðum
- að draga úr heildarneyslu vínanda;
- að stórauka skipulagðar rannsóknir, fræðslu og umræður um áfengismál;
- að auka stuðning við áhugamannasamtök um áfengismál;
— að skilgreina eðlilega meðferð áfengissjúklinga og kveða á um flokkun meðferðarstofnana;
- að leggja ríkisvaldinu, sem verslar með áfengi, þær skyldur á herðar að vinna gegn ofneyslu áfengis með fyrirbyggjandi starfi, t.d. fræðslustarfsemi, svo og að liðsinna þeim er eiga við áfengisvandamál að stríða.
Tillögur um slíka heildarstefnumótun í áfengismálum verði unnar í samráði við heilbrigðisyfirvöld, áfengisvarnaráð, samtök um áfengisvarnir og vandamál áfengisneytenda, svo sem Stórstúku Íslands, Samtök áhugamanna um áfengismál, AA-samtökin o.fl., löggæslu- og dómsmálayfirvöld, menntmrn. og fjmrn., Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, Læknafélag Íslands og aðra þá aðila sem afskipti hafa af dreifingu og sölu áfengra drykkja og meðferð áfengismála og vandamála áfengissjúklinga. Tillögur þessar og greinargerð skal senda Alþingi í sérstakri skýrslu ásamt tillögum ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á sviði löggjafar og stjórnsýslu.“
Upphafsmaður þessa máls og 1. flm. í Sþ. á sínum tíma var hv. þm. Arni Gunnarsson og flm. með honum voru allir þm. Alþfl.
Þegar hv. allshn. fjallaði um málið gerði hún lítils háttar breytingu og var sammála um afgreiðslu málsins eins og reyndar þingið allt. Þetta var afgreitt með samhljóða atkvæðum, samhljóða samþykkt, en undir nál., þar sem mælt var með samþykkt tillögunnar, skrifuðu þau Jóhanna Sigurðardóttir, Birgir Ísl. Gunnarsson, Guðrún Helgadóttir, Páll Pétursson, Steinþór Gestsson, Guðmundur G. Þórarinsson og Halldór Blöndal. Þetta voru flm. þeirrar tillögu sem að lokum var samþykkt um þetta mál og á grundvelli þessarar tillögu skipaði svo ríkisstjórnin sérstaka nefnd til að vinna að þessu verkefni sem orðið gæti grundvöllur að heildarstefnumörkun fyrir Íslendinga í áfengismálum.
Samþykktina um það efni gerði ríkisstjórnin á gamlársdag 1982 og vísaði þá til orðalags þessarar tillögu og nefndin tók síðan til starfa haustið eftir, þ.e. haustið 1983. Nefndinni voru ætluð þrjú ár til starfsins, en málið var mjög umfangsmikið og mikil vinna lá í því. Að lokum var unnið úr þeim tillögum og sjónarmiðum sem fyrir lágu og nefndin varð sammála um mikið nál. sem felur í sér stórmerkar tillögur á ýmsum sviðum.
Formaður nefndarinnar var Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri heilbrmrn. og verð ég að segja að í þessu sýndist mér embættismenn sýna mikla stjórnvisku að ná sameiginlegu nál. svo fjölmennrar nefndar sem þarna var um að ræða, en þetta var nú engu að síður reyndin. Og ég minnist þess að þegar ég var í menntmrn. var minn ráðgjafi þar í þessum málum og meðlimur í þessari nefnd einmitt hv. núv. varaþm. Níels Árni Lund sem átti sæti í þessari nefnd og lagði afar mikilsverðar tillögur til málanna einmitt um hvernig haga mætti aðgerðum menntmrn. í þessu sambandi. Hann benti mér á hvernig yrði að haga fræðslu um þetta efni mjög smekkvíslega og varlega, ef svo má segja, þannig að fræðslan keyrði ekki út yfir þau mörk að hún breyttist í óþarfa áróður heldur að henni væri haldið fram með þeim hætti að menn gerðu sér grein fyrir því hvaða ábyrgð fylgir því að umgangast áfengi.
Sömuleiðis var fjallað um önnur vímuefni og heildarniðurstaða nefndarinnar var kynnt opinberlega í janúar í fyrra. Hún var sérstaklega lögð fram í ríkisstjórninni og þar var niðurstaðan sú að vegna þess hve nál. var viðamikið og aðgerðirnar komu inn á svið margra ráðuneyta væri rétt að flokka efnisatriðin niður í verkefni hinna ýmsu ráðuneyta þannig að einstakir ráðherrar gætu svo raðað efnum eftir forgangi hver í sínu ráðuneyti. Þessi flokkun var gerð og lögð fram í ríkisstjórninni.
Síðan var áliti þessu, sem ég hef hér í höndum, Skýrsla áfengismálanefndar ríkisstjórnarinnar heitir álitið, útbýtt hér á borð hv. þm. fyrir rúmu ári. Því miður var það ekki í formi skýrslu ráðherra. Þá hefði málið komið inn í Alþingistíðindi. En tilgangur minn með því að útbýta þessari skýrslu á borð þingmanna var einmitt sá að menn hefðu heildartillögurnar í höndum, gætu kynnt sér þær rækilega og því væri auðveldara verkefni að ræða málið á Alþingi þegar ráðherra legði það svo fyrir á næsta þingi í formi þáltill. E.t.v. hefði sá ráðherra viljað breyta einhverjum atriðum, e.t.v. hefði þingið viljað breyta einhverjum atriðum í heildartillögunni, en því nefni ég þetta að mér virðist það vera augljóst, sem hefur komið oft fram í ræðum manna hér um þetta mál, að það sé eðlilegt að marka heildarstefnu í þessum málum, að auka forvarnir, m.a. fræðslu o.fl. Það er fleira forvarnir en fræðsla, ég vek athygli á því. Þegar á árinu 1978 innleiddi Halfdan Mahler, forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, þetta mál þar á þingum og nefndi einkanlega þrjú atriði sem mikilvirkustu forvarnarráðstafanirnar. Það var í fyrsta lagi takmörkun á dreifingu, í öðru lagi var það fræðslan og í þriðja lagi var það takmörkun á innflutningi og framleiðslu. Allt þetta var talið til mjög mikilvægra forvarnaraðgerða og ekkert eitt af þessu dugar. Það held ég að flestum mönnum sé fyrir löngu ljóst.
Það liggur því fyrir að það verkefni sem skv. brtt. sem hér liggur fyrir er ætlað enn þá nýrri nefnd hefur þegar verið unnið og það liggur fyrir í þessari skýrslu. Ríkisstjórn og Alþingi eiga hins vegar eftir að taka efnislega afstöðu til þessara tillagna. Út af fyrir sig geta menn haldið áfram að skipa nýjar og nýjar nefndir og mönnum er eitthvað rórra a.m.k. svona fyrsta kastið eftir að slíkar nefndir eru skipaðar, en ég verð að segja að mér finnst það við hæfi að við sýnum þeim sem unnu þetta mikla verk þá virðingu að fjalla um þeirra tillögur sem þeir gerðu vegna samhljóða ályktunar Alþingis og fyrirmæla ríkisstjórnarinnar, og ekki einnar ríkisstjórnar heldur tveggja ríkisstjórna. En hvað gerist? Síðan látum við þetta liggja og gerum ekki nokkurn skapaðan hlut með það. Og svo erum við að tala um að skipa nýja nefnd og snúa okkur einungis að því að lögfesta einn þátt áfengismálanna, einn einasta þátt sem er síður en svo til þess að draga úr heildarneyslu áfengis. En það var grunntónninn í öllum þessum tillögum. Þar miðast allt við að draga úr heildarneyslunni.
Nú er Alþingi komið á þröskuldinn að taka út úr eitt einasta atriði sem við vitum öll að verður til þess að auka heildarneysluna og lögleiða það sérstaklega. Ég vona að mér leyfist að segja það, og verði ekki lagt það út sem svigurmæli - ég sé ekki betur en það sé tvískinnungur ef nokkuð er tvískinnungur að henda þessum ályktunum frá sér, heildarstefnumörkuninni. Allir samþykktu nauðsyn þeirrar stefnumörkunar fyrir nokkrum árum, þar á meðal margir þeirra hv. þm. sem lýst hafa sig samþykka þessu frv. nú. Fyrir nokkrum árum vildu þeir allir draga úr heildarneyslu áfengis. Núna er þeim orðið rétt sama. Þeir eru orðnir svo leiðir á því að vera beittir þrýstingi af þeim sem vilja fá þetta mál í gegn. Þetta er kjarkur þeirra.
En hvað um það? Við höfum nokkrir þingmenn komist að samkomulagi um að leggja til við hv. Alþingi að hætta við að taka þetta eina atriði úr heildarstefnumörkuninni út úr og skekkja þar með alla myndina í áfengismálum Íslendinga. Viljum við að þetta mál sé ekki lögleitt á meðan Alþingi og ríkisstjórn hafa ekki fjallað um tillögur sinnar eigin nefndar um heildarstefnumörkun í áfengismálum og þess vegna berum við fram tillögu um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar, ásamt mér þau hv. þm. Geir Gunnarsson og hv. þm. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. Við þrjú berum fram svohljóðandi tillögu, með leyfi hæstv. forseta:
„Með skírskotun til ályktunar Alþingis frá 7. maí 1981 um mörkun opinberrar stefnu í áfengismálum og með því að áfengismálanefnd ríkisstjórnarinnar hefur skilað skýrslu á grundvelli þessarar ályktunar en Alþingi og ríkisstjórn hafa ekki enn þá tekið afstöðu til þessara tillagna nefndarinnar um heildarstefnumörkun telur Alþingi ekki tímabært að lögfesta breyting á þeim eina þætti áfengismála sem í frv. felst og vísar málinu til ríkisstjórnarinnar.“