14.04.1988
Neðri deild: 76. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6486 í B-deild Alþingistíðinda. (4471)
293. mál, áfengislög
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Það var fámennt í þingsölum í gærkvöld þegar ég mælti fyrir þeirri brtt. sem hefur orðið meginefni þeirrar umræðu sem nú fer fram og ég tel þess vegna nokkra ástæðu til þess að ég endurtaki nokkur þau meginatriði sem liggja til grundvallar flutningi þessarar brtt.
Ég mun ekki hnakkabítast við hv. þm. Ólaf G. Einarsson, enda hefur málflutningur hans verið sérstaklega málefnalegur. Okkur greinir á um grundvallaratriði þessa máls. Um það þýðir ekki að fást og frekari dellur um þau atriði gagnast líklega hvorugum. Ég vil þó aðeins koma inn á það atriði, sem hann nefndi, að brtt. af þessu tagi kynni að ganga í berhögg við stjórnarskrá lýðveldisins og um væri að ræða valdaafsal þingsins. Mér þætti skjóta nokkuð skökku við ef það væri valdaafsal þings, sem þjóðin kýs, að þingið fari fram á það við þjóðina að hún staðfesti ákvörðun þingsins í mjög umdeildu og veigamiklu máli. Ég mun hins vegar ekki gera ágreining um þetta og það verða okkur fróðari menn að skera úr um hvort hér er á ferðinni tillaga sem kunni að ganga í berhögg við stjórnarskrá lýðveldisins. Ég hygg hins vegar að svo sé ekki.
Um annað meginatriði í máli hv. þm. Ólafs G. Einarssonar verð ég að fara nokkrum orðum, þ.e. áhyggjur hans af svokölluðu áróðursstríði og þeirri sundrungu sem þjóðaratkvæðagreiðsla gæti haft í för með sér.
Ég vil í fyrsta lagi benda á að það mun ekkert síður valda hugsanlegri sundrungu ef bjórfrv. yrði samþykkt hér á Alþingi því andstæðingar þess úti í þjóðfélaginu sætu ekki sáttir eftir að þingið tæki ákvörðun í jafnveigamiklu máli gegn vilja kannski upp undir helmings þjóðarinnar. Ég hygg að það yrði ekkert minna sundrungarefni en hitt þó að þjóðaratkvæði yrði viðhaft í þessu viðkvæma máli og þjóðin fengi að segja lokaorðið í raun og veru.
Ég hygg einnig að sú umræða, sem af því skapaðist fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, gæti orðið til góðs. Hún yrði upplýsandi, henni fylgdi mikill fróðleikur um áfengis- og hvers konar vímuefnamál. Það veitir ekkert af þeirri umræðu í okkar annars ágæta þjóðfélagi. Það hefur verið allt of lítið rætt á fræðilegan hátt, á upplýstan hátt um áfengis- og vímuefnamál og við stöndum í raun og veru á þröskuldi mjög alvarlegra þáttaskila í vímuefnanotkun vegna aukinnar vímuefnanotkunar, sérstaklega meðal unglinga í þessu landi. Þetta geta margir staðfest. Ekki meira um orð hv. þm. Ólafs G. Einarssonar.
Ég skal fara hratt yfir þetta, forseti. Ég hef heitið því að tefja ekki þessa umræðu og hef gert mér far um það. Sú brtt. sem hér liggur fyrir mun ekki breyta eðli þess frv. sem um ræðir að öðru leyti en því að þjóðin fær að segja lokaorðið í þessu máli. Það er ekki verið að tefja gildistöku hugsanlegra laga um heimild til bruggunar og sölu áfengs öls. Að vísu tefst gildistakan um fjóra mánuði. Það er af tæknilegum ástæðum, m.a. vegna þess að frv. sjálft gerir ráð fyrir því að innlendir ölframleiðendur fái aðlögunartíma til að geta háð þá fyrirsjáanlegu samkeppni sem þeir munu eiga í við erlenda ölbruggara.
Meginástæðurnar fyrir flutningi þessarar tillögu eru þessar:
Í fyrsta lagi: Á undanförnum árum hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin beint þeim tilmælum til aðildarlanda sinna að þau beiti öllum ráðum til þess að draga úr heildarneyslu áfengis. Flestar þjóðir Vesturlanda heyja nú harða baráttu gegn áfengisvandanum, m.a. með því að reyna að draga úr framboði, en á sama tíma er þjóðþing Íslendinga að fara þveröfuga leið. Á þjóðþingi Íslendinga er barist fyrir því að auka framboð á áfengi þvert ofan í niðurstöður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Ég vil í öðru lagi, herra forseti, benda á að það er ekki rétt að áfengur bjór verði eingöngu seldur í verslunum ÁTVR. Sölustaðir hans verða 140 til viðbótar sem eru öll þau veitingahús sem hafa vínveitingaleyfi. Þetta hefur gleymst hér í umræðunni, allkyrfilega. Dreifingin á bjórnum verður miklu, miklu meiri en menn hafa í barnaskap sínum viljað vera láta.
Í þriðja lagi: Hér er á ferðinni, herra forseti, mjög viðkvæmt mál sem getur haft ófyrirsjáanleg áhrif á allt heilbrigðiskerfi þjóðarinnar og leitt til mikillar útgjaldaaukningar í heilbrigðisgeiranum. Aukin heildarneysla áfengis, sem verður fylgifiskur samþykktar þessa frv. ef marka má allar þær upplýsingar sem aflað hefur verið og fram hafa komið, mun hafa mikil og neikvæð félagsleg áhrif, snerta allar fjölskyldur í landinu beint og óbeint eins og áfengisneysla hefur gert en yrði í mjög auknum mæli.
Í fjórða lagi, virðulegur forseti: Málið er þverpólitískt. Fjölskyldur skiptast í afstöðu og svo virðist að mínu mati sem andstaða gegn bjórnum hafi farið vaxandi að undanförnu eftir því sem á hefur liðið umræðuna. Heilbrigðisstéttirnar eru klofnar í afstöðunni til málsins og við atkvæðagreiðslu við 2. umr. á hinu háa Alþingi var mjög mjótt á munum um hvort málið kæmist áfram.
Í fimmta lagi: Mín persónulega skoðun er sú að mál þetta hafi of oft hér á hinu háa Alþingi verið rætt af fremur lítilli þekkingu og margir lítt gert sér far um að kynna sér þær staðreyndir og þær upplýsingar sem fyrir liggja frá öðrum löndum um áhrif aukins áfengisframboðs á alkóhólisma upp til hópa. Ég vil m.a. benda á að menn hafa ekki svarað þeirri staðreynd, sem hér hefur verið flutt, að eftir að sterkur bjór var leyfður í Finnlandi, svo tekið sé dæmi, jókst heildarneysla á áfengi í því landi um 116% á örfáum árum, að mig minnir þremur árum. Ég hef nefnt að drykkjusiðir Íslendinga og Finna eru mjög líkir. Þeir eru í raun og veru mjög svipaðir og margir hafa haft orð á því að drykkjusiðirnir séu ótrúlega líkir. Og því skyldi eitthvað annað gerast hér en í Finnlandi? Þetta er spurning sem ég hef ekki fengið svarað.
Þá liggja fyrir ómótmælanlegar staðreyndir, sem mér finnst að allir fullorðnir menn verði að hugsa um og einkum og sér í lagi foreldri, að áfengisneysla barna og unglinga, einkum neysla á áfengum bjór, leiðir iðulega til notkunar á sterkari vímugjöfum. Um þetta geta borið vitni félagsfræðingar, lögreglumenn í ekki stærri borg en Reykjavík.
Í sjötta lagi hygg ég, herra forseti, að á það hafi skort að almenn fræðsla um áhrif áfengs öls á drykkjuvenjur hafi borist til almennings, einkum barna og unglinga. Þetta kemur m.a. fram í brtt. við bjórfrv. frá nokkrum hv. þm., þar af nokkrum stuðningsmönnum bjórfrv., þar sem lagt er til að ráðherra skipi nefnd sem geri tillögur um fræðsluherferð. Spurning mín er auðvitað sú til þessara manna. Af hverju leggja þeir fram þessa tillögu? Er það vegna þess að þeir hafa áhyggjur af áhrifum þess að leyfa áfengan bjór á Íslandi? Getur verið að þeir séu farnir að fá eftirþanka? Er það hugsanlegt? Er þetta smyrsl á einhvers konar samviskubit? Ég hygg að tímann fram að þjóðaratkvæðagreiðslu mætti nota til fræðslu af þessu tagi þannig að allir yrðu hæfari til að taka afstöðu í þessu geypilega mikilvæga máli sem menn vilja sumir hverjir gera lítið úr.
Í sjöunda lagi hygg ég, herra forseti, að bjórmálið hafi í raun mikla sérstöðu í hópi þeirra mála sem rædd hafa verið á hinu háa Alþingi. Ástæðurnar eru margvíslegar og ég vil ekki tefja tímann með því að rekja þær. Þjóðaratkvæði hefur áður verið notað til ákvarðanatöku í áfengismálum hér á landi. Það eru því fordæmi fyrir hendi.
Þá vil ég, herra forseti, undir lokin nefna eitt geysilega mikilvægt atriði og vona að hv. þm. taki eftir. Stuðningsmenn bjórfrv., a.m.k. nokkrir þeirra, hafa lýst yfir því að þeir sem snúist hafa gegn bjórnum séu haldnir forræðishyggju. Þeir vilji ákvarða hvort þjóðin fái að drekka áfengt öl eða ekki. Með þessari brtt. er sú forræðishyggja lögð svo rækilega til hliðar að betur er ekki hægt að gera. Það yrði miklu fremur forræðishyggja að samþykkja frv. og að koma þannig á sölu og bruggun á sterkum bjór í landinu. Nú vil ég skora á þá menn sem hafa andmælt forræðishyggju okkar andstæðinga bjórsins að koma til liðs við okkur og fella niður það forræði sem þeir telja að við viljum hafa í málefnum þjóðarinnar og hlúa að frelsinu, frelsi þjóðarinnar til ákvarðanatöku. Ég held að þessi þáttur málsins geti orðið áður en lýkur býsna mikið umræddur úti í samfélaginu að það kunni að koma í ljós að miklu fleiri vilji fá að taka ákvörðun í þessu máli en við hyggjum.
Herra forseti. Ég ætla að ljúka þessum orðum mínum með því að hafna þeirri skoðun að þjóðin hafi ekki vit eða þekkingu til að taka ákvörðun í jafnveigamiklu máli og bjórmálið er. Menn segja hér iðulega að um fátt sé meira rætt á hvers konar mannfundum, veislum, samkomum öðrum slíkum en bjórmálið. Og af hverju skyldi það vera? Það er vegna þess að skoðanir eru skiptar af eðlilegum ástæðum. Ég vona og treysti að menn, í þessu máli upp til hópa, taki afstöðu til þess, ekki vegna þess að þeim þyki bjór vondur eða góður heldur vegna þess að þeir geti það samkvæmt bestu sannfæringu og með bestu hugsanlegu samvisku. Það held ég að sé mikilvægasti þátturinn í þessu.
Ég vil að endingu þakka þeim andstæðingum í þessu máli sem hafa flutt mái sitt á skýran og skilmerkilegan hátt og látið hjá líða stóryrði og hvers konar orðavaðal um einstaka þingmenn og skoðanir þeirra. Þetta mál verður ekki leyst með slíku tali. Þetta mál verður fyrst og fremst leyst á grundvelli bestu fáanlegu upplýsinga um hvort málið horfi til heilla fyrir þjóðina eða ekki.