18.04.1988
Neðri deild: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6495 í B-deild Alþingistíðinda. (4481)
293. mál, áfengislög
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Miðað við það kapp sem lagt hefur verið á þetta mál á báða bóga og miðað við þá miklu athygli og áhuga sem almenningur hefur sýnt á þessu máli og fjölmiðlar, eins og þessi atkvæðagreiðsla ber vissulega vott um, og miðað við að ég er eindregið á því að það ætti oftar að gefa þjóðinni kost á að fella dóm sinn um mál á beinan lýðræðislegan hátt segi ég hiklaust já.