18.04.1988
Neðri deild: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6495 í B-deild Alþingistíðinda. (4483)
293. mál, áfengislög
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég tel að hér sé ekki stærra mál á ferðinni en mörg önnur sem afstaða er tekin til á Alþingi án þess að þjóðin fái um það sérstaklega að fjalla, en vegna þess að skoðanir eru mjög skiptar í landinu um þetta mál og mikið kapp á báða bóga vil ég ekki leggja stein í götu þess að þjóðin segi álit sitt og greiði ekki atkvæði.