18.04.1988
Neðri deild: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6496 í B-deild Alþingistíðinda. (4486)
293. mál, áfengislög
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Till. þessi gerir ráð fyrir því að bundið verði í áfengislögum að verja allverulegri upphæð til fræðslu og forvarnarstarfa á næstu árum ef frv. þetta verður samþykkt. Mér þótti rétt að láta á það reyna hver hugur fylgir máli hjá þeim hv. þm. sem tala fögrum orðum um að lykilorðin séu fræðsla og forvarnarstarf þegar áfengismálin eru annars vegar. Hér gefst þeim hv. þm. sem og öðrum tækifæri til að sýna hug sinn í verki, að breyta orðum sínum í gjörðir. Ég segi já.