18.04.1988
Neðri deild: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6497 í B-deild Alþingistíðinda. (4490)

293. mál, áfengislög

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Þrátt fyrir allt urðu mér nokkur vonbrigði sú óbilgirni sem kom fram í atkvæðagreiðslunum áðan þar sem allar lagfæringatilraunir á þessu frv. voru felldar, þar með talið að leyfa þjóðinni sjálfri að ráða lyktum í þessu umdeilda máli. Það var einnig fellt að verja ákveðinni peningaupphæð til fræðslu og forvarnarstarfa gegn áfengisneyslu og neyslu annarra vímuefna ef af þessari lagasetningu yrði. Meinlaus till. um nefndarskipan var hins vegar samþykkt. Hún var nógu útþynnt bjórmönnunum sumum hverjum til að segja já.

Eftir þessa niðurstöðu get ég ekki verið annað en eindregnari andstæðingur þessa frv. og vona að hv. Ed. verði það gæfumeiri okkur að fella það. En ég segi nei.