18.04.1988
Sameinað þing: 70. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6499 í B-deild Alþingistíðinda. (4498)
Töf á afgreiðslu rekstrarlána til bænda
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Ég átti ásamt landbrh. og fjmrh. viðræður við fulltrúa Seðlabanka og þeirra þriggja viðskiptabanka sem einkum annast afurðalán til landbúnaðarins, en það eru Búnaðarbanki, Landsbanki og Samvinnubanki í þeirri röð sem þeir sinna þessu hlutverki, um það hvort þessir bankar gætu fjármagnað vaxtagjaldakostnað vegna sauðfjárafurða, en þarna höfðu safnast upp vaxtagreiðslur vegna breytinga sem urðu á greiðslum ríkissjóðs vegna þess arna á liðnu ári. Niðurstaða þessara viðræðna varð þriðjudaginn eftir páska sú að viðskiptabankarnir féllust á að veita með aðstoð Seðlabankans 241 millj. kr. að láni vegna vaxtagjalda af birgðum sauðfjárafurða. Nú er hafinn undirbúningur að afgreiðslu þessara lána.
Það er rétt, eins og kom fram í máli hv. 2. þm. Vestf., að afgreiðsla bankanna á almennum rekstrarlánum til landbúnaðar dróst vegna óvissunnar um það, hvernig vaxtagjöldin yrðu fjármögnuð. Ég hef aflað mér upplýsinga frá afurðalánadeildum ríkisviðskiptabankanna og ég veit að Búnaðarbankinn hefur þegar hafið útborgun rekstrarlána og Landsbankinn mun hefja afgreiðslu þeirra fyrir lok þessa mánaðar. Samvinnubankinn mun hafa afgreitt venjuleg rekstrarlán til landbúnaðar fyrir mánaðamótin mars-apríl. En lánveitingar vegna vaxtagjalda munu enn ekki hafnar. Bankarnir setja að sjálfsögðu sínum lántakendum ýmis skilyrði út frá sínu eigin mati á viðskiptum hvers og eins, enda vil ég minna hv. þingdeild á og hv. 2. þm. Vestf. að þessi lán eru nú algerlega á forræði viðskiptabankanna.
Mér er kunnugt um það, að Búnaðarbanki Íslands hefur hafið rekstrarlánveitingar og lánveitingar vegna vaxtagjalda til þeirra sláturleyfishafa sem uppfylla ákveðin skilyrði. En þessi skilyrði eru:
1. Að viðkomandi sláturleyfishafi skili inn greiðsluávísun þar sem hann ávísar vaxtagjaldi frá ríkissjóði til bankans þegar það verður greitt.
2. Að viðkomandi sláturleyfishafi geri upp gjaldfallnar afborganir og vexti vegna afurðalána sem veitt voru árið 1987 og eru umfram þær fjárhæðir sem þeir eiga í vændum vegna vaxtalánsins og vegna fyrsta hluta rekstrarlánsins sem hv. þm. spurði um.
Það mun þegar búið að ganga frá nokkrum lánveitingum hjá Búnaðarbankanum og eftir daginn í dag verða a.m.k. átta sláturleyfishafar af þeim 17 sem eru í viðskiptum við Búnaðarbankann búnir að fá skil sinna mála. Eftir því sem ég kemst næst verður framkvæmd hinna bankanna mjög með líkum hætti og í Búnaðarbankanum. Um tengsl þessa máls, þ.e. uppgjörs á þessum lánafyrirgreiðslum við sláturleyfishafana - og þar með á endanum við bændur - við verkfallsboðun í verslun vil ég segja það eitt, að það er ekki mitt að meta. Ég vil segja mjög skýrt að ég tel að ríkisstjórnin hafi gert það sem til hennar friðar heyrði í málinu og að það sé nú í þokkalegum farvegi.