18.04.1988
Sameinað þing: 70. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6509 í B-deild Alþingistíðinda. (4509)
467. mál, vegáætlun 1987--1990
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Það var aðeins út af þeim fullyrðingum hv. 5. þm. Austurl. og hv. 2. þm. Norðurl. v. um það að staðið hafi verið við fjárframlög til vegagerðar á undanförnum árum eða kannski frekar, þeir hafa kannski ekki sagt það berum orðum, hitt að það hafi tekist að sinna þeim framkvæmdum, vinna þau verkefni sem áætlað var með langtímaáætlun að gerð yrðu á þessum tíma.
Ég hef heyrt þessa fullyrðingu ansi oft einmitt úr herbúðum þeirra sjálfstæðismanna, enda hafa þeir verið með forustu í þessum málum, þ.e. samgönguráðherra hefur verið sjálfstæðismaður á undanförnum árum. Mér er alveg óskiljanlegt hvernig þessir þm. geta haldið þessari skoðun fram vegna þess að það er viðurkennt að þau 20% sem ekki hefur verið skipt í sambandi við framkvæmdaáætlun, það var alltaf í upphafi langtímaáætlunar talað um það að 20% af framkvæmdafé skuli vera óskipt, hafa aldrei runnið til framkvæmda. Aftur á móti hafa menn verið að reyna að fullyrða að framkvæmdir, miðað við þær framkvæmdir sem áætlaðar voru, þ.e. 80% framkvæmdanna, hafi staðist. Það má segja það að þær hafa staðist að vissu leyti en þó á þann veg að víða hafa þær framkvæmdir sem gerðar hafa verið ekki verið á þann hátt sem áætlað var samkvæmt langtímaáætlun eða vegáætlun í hvert skipti vegna þess að gripið hefur verið til þess ráðs að leggja vegi með bundnu slitlagi með bráðabirgðaundirbyggingu. Þeir eru orðnir ansi margir kílómetrarnir vítt um landið sem hafa verið unnir á þann veg. Við þurfum ekki að fara nema upp í Hvalfjörð, um Borgarfjörð, um Stafholtstungur, Norðurárdal, og lausnin hefur verið sú að smyrja yfir gamla veginn með bundnu slitlagi, með tiltölulega lítilfjörlegri undirbyggingu. Með þessu móti hefur tekist að teygja hið bundna slitlag að þeirri áætlun sem gerð hefur verið. (EgJ: Fram yfir hana.) Sums staðar kannski hefur verið smurt ákafar. Kannski það hafi verið gert á Austfjörðum, hv. þm., en með þessum hætti.
Það þarf í eðli sínu kannski ekkert sérstaklega að mótmæla þessari aðferð. Það er hægt að gera þetta á þennan hátt og leysa ákveðin vandamál. En það er ekki hægt í sama orðinu að segja að áætlunin hafi verið framkvæmd. Það hefur ekki verið gert, því miður. Og þetta hefur gerst vegna þess að það hefur verið of lítið fjármagn til þessara framkvæmda. Forustumenn vegagerðar hafa leitað ýmissa leiða til þess að reyna að nýta þá peninga sem þeim hafa verið fengnir til þess að byggja upp vegina og þeir hafa, það skal viðurkennt, farið ýmsar leiðir sem gott hefur komið út úr, m.a. þetta. Í sumum tilfellum hefur kannski tekist að fá með útboðum hagkvæmari vinnu en annars hefði verið, en ég held að það jafni sig á hinn veginn að sums staðar hafi útboðin farið á hinn verri veg þannig að út úr því hefur ekki komið mikið.
Ég vildi vekja athygli á þessu, að það er því miður alls ekki á þann veg að staðið hafi verið við langtímaáætlun í sambandi við fjárframlög og ekki heldur framkvæmdir.