18.04.1988
Sameinað þing: 70. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6520 í B-deild Alþingistíðinda. (4519)
465. mál, flugmálaáætlun 1988--1991
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég hef hlustað á ræður manna hér. Það komu fram hjá ráðherrum kostnaðaráætlanir við að gera ákveðna flugvelli að varaflugvöllum og innan ramma þessara kostnaðaráætlana leyfir ekki sú upphæð sem talin hefur verið, þessi heildarkostnaður í hverju tilfelli fyrir sig, þær framkvæmdir sem varaflugvöllur kallar á. Ef flugvél lendir á ágætri flugbraut, sem er nógu góð og löng flugbraut til þess að hvaða flugvél sem er geti lent, þarf að vera á staðnum ýmislegt það sem ekki hefur verið talað um, flugvöllurinn sjálfur, brautin, þarf að vera þannig úr garði gerð að flugvélarnar geti lent á hvaða tíma sólarhrings sem er og að þær geti tekið sig á loft á hvaða tíma sólarhrings sem er og jafnvel í slæmum veðrum þó það sé kannski ekki eins slæmt veður á þeim staðnum og er á þeim stöðum þar sem þeir aðalflugvellir eru lokaðir. Það þarf að vera eldhús. Eldhúsið eitt fyrir slíka þjónustu kostar þá upphæð sem ég hef heyrt minnst á í sambandi við þá varaflugvelli sem hér hafa verið ræddir. Það þarf að vera aðstaða til að hvíla farþega sem þurfa að bíða þar til veðri slotar. Þetta allt kemst ekki í neina ramma sem talað hefur verið um sem kostnaðarramma við þá varaflugvelli sem ræddir hafa verið. Ég tek undir það með hv. 4. þm. Norðurl. e. að það er ýmislegt til á Akureyri sem hægt er að samnýta með varaflugvelli, og þarf ekki að fjárfesta í vegna þess að það er komið á staðinn. Það er líka ýmislegt til á Sauðárkróki þó að það vanti enn þá meira þar en á Akureyri. Sama má segja um Austfirðina, um Egilsstaði.
Þær upphæðir sem talað hefur verið um eru svo langt út úr myndinni að mér fannst fyllilega tilefni til að spyrja: Hvað er varaflugvöllur í huga samgrh.? Hann byggir enga flugbraut fyrir þær upphæðir sem komið hafa fram hvað þá varaflugvöll. Það er alveg útilokað.