18.04.1988
Sameinað þing: 70. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6524 í B-deild Alþingistíðinda. (4526)
Óvissa um ráðningu kennara
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Þessar umræður eru á réttum stað miðað við samningsstöðuna milli ríkis og kennara. Það hlýtur að valda okkur verulegum áhyggjum í hvaða stöðu þessi mál eru og hvaða viðhorf eru ríkjandi hjá ríkisstjórninni í þessum efnum eins og það kom fram hjá hæstv. fjmrh. Það liggur fyrir að á þessu starfsári skólanna eru yfir 700 starfsmenn við grunnskóla án réttinda, skilgreindir sem leiðbeinendur lögum samkvæmt og yfir 300 í framhaldsskólunum og það er skert kennsla víða um land í einstökum námsgreinum, alveg sérstaklega í greinum eins og myndmennt, tónmennt og heimilisfræði, jafnvel hér í höfuðstaðnum. Ástandið í þessum efnum er hins vegar mun lakara á landsbyggðinni og eitt af því sem veldur óöryggi fólks þar varðandi búsetu. Það er geysileg tilfærsla innan skólanna á starfsliði og álít veldur þetta losi og lausung í uppeldisstarfi sem er algjörlega óþolandi og óviðunandi. Þetta gildir ekki bara um grunnskóla og framhaldsskóla, þetta á einnig við um dagvistarheimili og stöðu fóstra sem búa við hrakleg kjör svo sem kunnugt er og eru að leita víða í önnur störf.
Starfsskilyrði skólanna víða ýta auk þess undir þetta los og ýta undir að kennarar leiti í önnur störf. Hér vantar samhent tök þeirra sem í hlut eiga, bæði hæstv. fjmrh. og menntmrh. sem fer með faglega umsjón þessara mála. Það verður að koma til stefnubreyting í þessum efnum. Hún þarf að birtast í bættum launakjörum kennara. Hún þarf að birtast í bættum aðbúnaði að skólunum og einnig í aukinni virðingu kennarastarfsins með því að gera eðlilega við þá sem starfa að þessum mikilvægu störfum í okkar þjóðfélagi.