19.04.1988
Efri deild: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6526 í B-deild Alþingistíðinda. (4530)

474. mál, meðferð opinberra mála

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Í frv. því sem hér er til umræðu og dreift hefur verið á þskj. 824 eru lagðar til breytingar á 112. gr. laga um meðferð opinberra mála, nr. 74/ 1974.

Í 1. gr. frv. er lögð til sú breyting að heimilt verði að gera dómsátt í málum sem hafa í för með sér sviptingu ökuréttinda í þrjú ár eða skemmri tíma. Samkvæmt gildandi lögum er þessi heimild bundin við að svipting ökuréttinda sé eitt ár eða skemmri tími.

Í nýju umferðarlögunum sem tóku gildi 1. mars sl. var breytt ákvæðum um ökuleyfissviptingar á þann veg að fyrir ítrekaðan ölvunarakstur er nú gert ráð fyrir að dæmd verði tímabundin ökuleyfissvipting í 2–3 ár en samkvæmt eldri lögum var skylt að svipta menn ökuleyfi ævilangt fyrir ítrekaðan ölvunarakstur. Í dómsframkvæmd er langalgengast að dæmd sé sekt fyrir ítrekaðan ölvunarakstur og í flestum tilfellum eru þessi brot skýlaust sönnuð.

Ég tel að það sé bæði sökunaut og dómskerfinu í hag að þessi mál fái eins greiða meðferð og kostur er. Þá tel ég að refsing sem kemur í sem beinustu framhaldi af brotinu hafi ríkari áhrif og jákvæðari en þegar langur tími líður frá afbroti til viðurlaga.

Á undanförnum árum hafa borist til fullnustu 450–600 sektardómar á hverju ári, og þótt það hafi ekki verið athugað sérstaklega tel ég ekki fjarri lagi að ætla að um 300 af þessum 450–600 sektardómum hafi verið fyrir ítrekaðan ölvunarakstur. Fyrir dómskerfið hefði það umtalsverða hagræðingu í för með sér að heimilt verði að ljúka þessum málum með dómsátt. Ég ætla að reyna að skýra þetta nánar.

Mál sem sætir ákæru og dómi fer fyrst frá lögreglu til ríkissaksóknara sem gefur út ákæru og sendir viðkomandi dómstól sem kveður upp dóm og sendir ríkissaksóknara sem síðan sendir hann dómsmrn. ef ekki er um áfrýjun að ræða og ráðuneytið sendir hann áfram lögreglustjóra til fullnustu sem að fullnustu lokinni sendir hann ráðuneytinu á ný. Á öllum stigum fer fram ákveðin vinnsla og meðferð á málinu, misjafnlega tímafrek. Í flestum tilfellum þegar um dómsátt er að ræða fer málið hins vegar beint frá lögreglu til dómstóls og þaðan til lögreglunnar á ný til fullnustu. Þetta ákvæði um að heimila dómsáttir í þessum málaflokki held ég að gæti verið mjög til bóta.

Í 2. gr. frv. er svo lagt til að fjárhæðir í 112. gr. laga um meðferð opinberra mála verði hækkaðar, en þarna er um að ræða sektarheimildir lögreglustjóra og lögreglumanna og heimild lögreglustjóra til að ákveða eignaupptöku vegna brota sem sektarheimild hans nær til, svo og heimild dómara til að ákveða eignaupptöku ef brot er skýlaust sannað en sökunautur finnst ekki eða er ókunnugur. Fjárhæðir þessar hafa staðið óbreyttar frá árinu 1982. Þessar sektar- og upptökuheimildir hafa gefið góða raun og létt verulega álagi af dómstólunum. Til þess að heimildirnar séu virkt úrræði þurfa þær auðvitað að fylgja verðlagsþróun og er hér gerð tillaga um að þessar fjárhæðir verði hækkaðar til samræmis við verðlagsþróun.

Hæstv. forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv. og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn. þessarar deildar.