19.04.1988
Efri deild: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6541 í B-deild Alþingistíðinda. (4549)

466. mál, ferðamál

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni eitt af frumvörpum núv. ríkisstjórnar í þá átt að selja ríkisfyrirtæki. Þetta er eins og hv. þm. vita eitt af stefnuskráratriðum núv. ríkisstjórnar og var reyndar stefnuskráratriði þeirrar sem þar var á undan líka án þess að þessum söluvilja fylgi nokkur önnur markmið en að þarna skuli verða eignabreyting.

Ég fyrir mitt leyti hef ekki getað gert mér grein fyrir því að það sé óhagstætt að hafa eina ferðaskrifstofu í landinu í eigu ríkisins og tel að því fylgi margir kostir, það sé hægt fyrir stjórnvöld á hverjum tíma að beita slíku fyrirtæki fyrir sig til að vinna sérstaklega að ferðamálum og taka fyrir sérstaka ferðaþætti á svipaðan veg og Ferðaskrifstofa ríkisins hefur gert á undanförnum árum. Eins og hv. þm. er kunnugt var Ferðaskrifstofa ríkisins brautryðjandi í ferðamálum hér á landi undanfarna áratugi. Það eru ekki mörg ár síðan hér á landi var aðeins ein ferðaskrifstofa sem var hægt að nefna því nafni og það var Ferðaskrifstofa ríkisins.

Það er rétt, sem hæstv. ráðherra segir, að nú hafa mál breyst mjög á þann veg að nú eru komnir aðrir aðilar inn í og þetta er orðinn umsvifamikill atvinnuvegur og kemur að vissu leyti til greina að breyta að ýmsu leyti rekstri Ferðaskrifstofu ríkisins, en í fljótu bragði sé ég ekki að það sé bein ástæða til að selja fyrirtækið úr höndum ríkisins og beinlínis að hafa það að markmiði að þarna sé breytt eignarformi. Ég finn ekki nein sérstök rök fyrir því.

Hitt er rétt hjá ráðherra að það er vont fyrir fyrirtæki eins og Ferðaskrifstofu ríkisins að hafa yfirvofandi ár eftir ár að það eigi að fara að breyta eignarfyrirkomulaginu. Eins og kom fram í ræðu hæstv. ráðherra er þessi umræða búin að vera í gangi í nokkur ár, þ.e. á þessu tímabili sem ég nefndi áðan, tímabili núv. ríkisstjórnar og líka tímabili fyrrverandi ríkisstjórnar. Á tímabili ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar voru samþykkt lög þar sem heimilað var að breyta þessu fyrirtæki í hlutafélag og að starfsmönnum stofnunarinnar gæfist tækifæri til að eignast 30% af eigum fyrirtækisins. Úr því hefur ekki orðið og nú er verið að ganga nokkru lengra, þ.e. að bjóða upp á að starfsmenn fyrirtækisins eða aðrir hluthafar, fyrst og fremst er hér talað um starfsmenn, skuli geta eignast 2/3 hluta af hlutafé ríkissjóðs.

Ráðherra upplýsti að starfsmenn Ferðaskrifstofu ríkisins væru 20 og þeir væru allir ríkisstarfsmenn. Ég held að þetta sé að vissu leyti ansi hártoganlegt vegna þess að starfsmenn Ferðaskrifstofu ríkisins og Edduhótelanna eru mikið stærri hópur en þetta. Hér er fyrst og fremst verið að ræða um starfsmennina sem eru á ferðaskrifstofunni. Það er að mínu mati ekki nema hluti af starfsliði ferðaskrifstofunnar. Það fólk sem á undanförnum árum hefur staðið fyrir rekstri Edduhótelanna, og fyrst og fremst hafa það verið þeir sem hafa haft þar yfirstjórn og reyndar fleiri, hafa starfað þar ár eftir ár og eru orðnir þjálfað starfsfólk í þessari grein, mér finnst að þessir aðilar, ef hægt er að tala um einhvern rétt þarna, eigi sama rétt til þess að gerast eigendur að þessu fyrirtæki ef um eignaskipti verður að ræða.

Þetta frv. kemur til umfjöllunar hjá þeirri nefnd sem ég á sæti í og ég ætla ekki að orðlengja mikið frekar um þetta frv. nú, en sjálfsagt verður það skoðað í nefnd. En ef það er ákveðinn vilji ríkisstjórnarinnar að koma þessu máli fram fyrir þinglok er sjálfsagt að stuðla að því. Ég held að það sé ekki góður kostur að halda rekstri ferðaskrifstofunnar áfram á þann veg, sem hefur verið á undanförnum árum, að það sé alltaf yfirvofandi að það eigi að fara að breyta þessu fyrirtæki. Ef það er vilji stjórnvalda í landinu að það verði gert er sjálfsagt að stuðla að því að þetta mál fái góða afgreiðslu í nefnd þannig að ekki mun ég standa á móti því að það gangi fljótt fyrir sig í samgöngunefnd eftir að við erum búnir að skoða málið á eðlilegan máta og fá þær upplýsingar sem við teljum okkur þurfa.

En ég held að það væri rétt að fá smáupplýsingar frá hæstv. ráðherra við 1. umr., hvernig er hugsuð framtíðin á rekstri Edduhótelanna, hvort gera má ráð fyrir að Edduhótelin verði á næstu árum rekin með svipuðu sniði og gert hefur verið. Á því máli eins og mörgum öðrum eru tvær hliðar, flestum öðrum. Það er ekki neinn vafi á að Ferðaskrifstofa ríkisins hefur unnið mjög gott starf í sambandi við rekstur Edduhótelanna víða um landið og hefur tryggt stórum hópi erlendra ferðamanna góða þjónustu. Hinu verður ekki á móti borið að þeir aðilar sem hafa verið með hótelrekstur ferðaþjónusturekstur um landið vítt og breitt, hafa kvartað undan því hvernig Ferðaskrifstofa ríkisins hefur rekið þessa starfsemi á þann veg að það hefur helst ekki mátt fara út af „rútu“ Edduhótelanna. Ferðamaður sem hefur stigið á land á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins eða verið gripinn hér í Reykjavík á vegum Ferðaskrifstofu ríkisins hefur ekki komist út úr þessum hring allt í kringum landið. Þetta er að vissu leyti gagnrýnisvert. Þarna hefur borið á nokkurri einokunarkennd hjá þessu fyrirtæki. Þetta þyrfti að laga, en ég sé ekki ástæðu til þess að það þurfi endilega að breyta þessu fyrirkomulagi með því að þarna eigi sér stað eignabreyting. Það hefði verið eðlilegt einmitt af ríkisstofnun að hún hefði verið sveigjanlegri í þessum rekstri á undanförnum árum en hún hefur verið. Ef aftur á móti á að færa þetta nú yfir í hlutafélagsform, hefja einkarekstur, yrði erfiðara fyrir ríkið að hafa áhrif á að þessi þjónusta dreifist betur til þeirra aðila sem annast hafa þessa þjónustu en verið hefur á undanförnum árum.