05.11.1987
Efri deild: 8. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (456)

68. mál, almenn hegningarlög

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Hér er svo sannarlega hreyft máli sem tímabært er að taka til umræðu ef verða mætti til þess að leið fyndist til að stemma stigu við þeim afbrotum sem hér hefur verið rætt um.

Hv. 6. þm. Reykn. talaði hér og minntist á frv. sem flutt er á þskj. 5. Umræðan sýnir okkur að við höfum vaknað til meðvitundar um það alvarlega ástand sem ríkir í þessum málum og ég undirstrika rækilega að tímabært var að taka til umræðu.

Ég ætla ekki að tala langt mál. Ég þarf þess ekki vegna þess að þetta mál á þskj. 71 kemur til umfjöllunar í þeirri nefnd sem ég á sæti í og mér gefst þar tækifæri til að koma skoðunum mínum á framfæri. En ég kem fyrst og fremst upp til að þakka það að þessum málum skuli hér vera hreyft og ég þakka sérstaklega flm. þessa frv. á þskj. 71 fyrir að vekja okkur til meðvitundar um það sem er að gerast í allra næsta nágrenni við okkur.