19.04.1988
Efri deild: 77. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6560 í B-deild Alþingistíðinda. (4564)
385. mál, söluskattur
Salome Þorkelsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég á ekki sæti í þeirri nefnd sem fær þetta frv. til umfjöllunar og þess vegna þótti mér rétt að koma hér og segja álit mitt á þeim viðhorfum sem koma fram í frv. til almenningssamgangna, ekki kannski síst vegna þess að hv. 1. flm. frv. nefndi mitt nafn í því sambandi þar sem ég var 1. flm. þáltill. um almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem hér hefur verið flutt og samþykkt á Alþingi.
Ég vildi taka undir að mér finnst þetta vera athyglisverð tillaga sem hér hefur verið lögð fram um breytingu á söluskattslögum og fyrst og fremst vil ég taka undir það sem kemur fram í grg. um þjóðhagslega hagkvæmni almenningssamgangna hér á höfuðborgarsvæðinu, ekki síst með tilliti til þeirrar miklu fjölgunar bifreiða sem orðið hefur á undanförnum áratug eða hálfum öðrum áratug, þar sem svo er komið að lætur nærri að nú sé bffl á hverja tvo íbúa. Það segir sig sjálft að þó vegakerfið sé í sífelldri endurskoðun og reynt hafi verið að aðlaga það breyttum aðstæðum hefur ekki tekist nægjanlega að halda í við slíkan hraða á fjölgun bifreiða sem raun ber vitni og enginn hafði kannski búist við á svo skömmum tíma.
En ég vildi fyrst og fremst taka undir að það skiptir miklu máli að gera allt sem hægt er til að auka áhuga almennings á notkun almenningsvagna og ekki síst að þeirra þjónusta sé þannig að það sé raunhæft að halda uppi slíkum áróðri. Ég þekki það úr mínu byggðarlagi sem bjó við það að íbúafjölgun varð mikil á stuttum tíma og skapaði vandamál, sérstaklega fyrir það fólk sem flutti í byggðarlagið og var vant öðruvísi almenningsvagnasamgöngukerfi, en var hægt að bjóða upp á í Mosfellssveit á sínum tíma. Þetta leiddi til þess að það var um tvennt að ræða fyrir fólk sem átti t.d. börn í framhaldsskólum eða þurfti að sækja vinnu til Reykjavíkur. Annars vegar að bæta við bílaeign fjölskyldunnar eða að flytja aftur í borgina. Ég held, einmitt vegna þess að það hefur ekki nægjanlega verið gert átak í því að bæta almenningssamgöngurnar, laða þær að þörfum fjölskyldunnar, að almenningsvagnar séu ekki eins mikið notaðir og annars mundi vera. Það var reynt á sínum tíma að semja við Strætisvagna Reykjavíkur og aðlaga sérleyfisferðir úr Mosfellssveit í borgina til að koma þarna til móts við þarfir íbúanna og það tókst að vissu leyti, en mætti vera enn þá betur gert.
Ég vildi aðeins láta þetta koma fram sem innlegg í þá umræðu hvað það hefur mikla þýðingu að bæta umferðaröryggi sérstaklega á þessu svæði og að það sé mögulegt að auka þjónustu almenningsvagnanna í því skyni. Hvort þetta er eina leiðin eða ein af leiðunum skal ég ekki um segja. Það verður væntanlega fjallað um það. En mér heyrðist hæstv. fjmrh. vera jákvæður í sjálfu sér til frv. og benti á að það mætti þá væntanlega vísa því til ríkisstjórnarinnar með tilliti til þess að verið væri að endurskoða lög í þessu efni og mér fyndist það nú vera út af fyrir sig áfangi sem hv. flm. gætu sætt sig við.
En ég vildi sem sagt fyrst og fremst taka undir þýðingu þess að það þurfi að gera átak til þess að bæta almenningssamgöngur með betri þjónustu almenningsvagna, a.m.k. hér á höfuðborgarsvæðinu.