05.11.1987
Efri deild: 8. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í B-deild Alþingistíðinda. (460)

61. mál, heilbrigðisfræðsluráð

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þann áhuga sem fram kemur á heilbrigðisfræðslu og forvarnastarfi með flutningi þessa frv. með þeirri áréttingu og þeim áætlunum sem fram komu í framsöguræðu hv. fyrri flm. frv., 6. þm. Reykv.

Varðandi efni málsins að öðru leyti er gert ráð fyrir því að sett sé á fót stofnun sem nefnist heilbrigðisfræðsluráð og skal þetta ráð skipað 21 fulltrúa og velur síðan úr sínum hópi þriggja manna framkvæmdanefnd. Heilbrigðisfræðsluráðið ræður síðan framkvæmdastjóra og starfsfólk eftir þörfum.

Starfsemi þessa ráðs á að kosta af ríkinu. Að vísu er ekki gert ráð fyrir að fulltrúarnir sjálfir séu launaðir. En auðvitað hlýst af þessu og starfsemi ráðsins kostnaður sem ekki er gert ráð fyrir í frv. eða fylgiskjölum hvað muni kosta.

Sem fylgiskjöl með frv. eru hins vegar birtar svokölluð Alma-Ata-yfirlýsing og grein eftir Pál Sigurðsson ráðuneytisstjóra í heilbrrn. sem birt er í Læknablaðinu 1983 þar sem gerð er grein fyrir samvinnuverkefni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og nokkurra aðildarþjóða um forvarnastörf, greiningu langvinnra sjúkdóma og eftirlit með þeim.

Þegar litið er á fyrirhugað verkefni heilbrigðisfræðsluráðsins er ljóst að gert er ráð fyrir að starfsemi þess sé mjög víðtæk. Ráðið á að ráðleggja um forgang viðfangsefna í heilbrigðisfræðslu, það á að stuðla að rannsóknum og könnunum á heilbrigðismálum, það á að afla upplýsinga um framfarir á læknis-, farsótta-, félags- og sálfræðilegum sviðum til hagnýtingar í starfi sínu. Þá skal heilbrigðisfræðsluráðið, eins og hér er lagt til, stuðla að þjálfun og endurmenntun starfsfólks heilbrigðisstétta. Það er því ljóst að starfssvið heilbrigðisfræðsluráðs, eins og það er sett hér upp, er í raun meira heldur en heiti þess gefur til kynna, þ.e. að fjalla um heilbrigðisfræðsluna sem slíka. Hér er um að ræða ráð sem á að gegna mjög veigamiklu verkefni í sambandi við rannsóknir og kannanir og upplýsingaöflun.

Í lögum um heilbrigðisfræðslu, sem sett voru í apríl 1973, var gert ráð fyrir að sett yrði á stofn Heilbrigðisráð Íslands. Þetta ráð var þannig skipað að í því sátu fulltrúar frá læknadeild Háskólans, Læknafélagi Íslands, Tannlæknafélagi Íslands, Hjúkrunarfélagi Íslands, Sambandi ísl. sveitarfélaga, tryggingaráði, Atvinnuleysistryggingasjóði, samtökum heilbrigðisstétta og þar að auki skipaði ráðherra þrjá fulltrúa án tilnefningar. Formaður ráðsins var síðan landlæknir. Hlutverk Heilbrigðisráðs Íslands var að vera ráðgjafar- og umsagnaraðili um heilbrigðis- og almannatryggingamál. Það var heimilt að skipta ráðinu í deildir eftir sérverkefnum. Heilbrigðisráð Íslands var þrettán manna ráð og skipað til þriggja ára í senn.

Þegar lög um heilbrigðisþjónustu voru endurskoðuð 1983 var litið á hvernig starf Heilbrigðisráðs Íslands hefði verið á þessum tíu árum og niðurstaða þeirra athugana leiddi til að Heilbrigðisráð Íslands var fellt út úr lögum um heilbrigðisþjónustu sem nú gilda vegna þess að þetta fjölmenna ráð hefði ekki náð að starfa eins og gert hafði verið ráð fyrir.

Þetta tek ég til og tíni fram í umræðunni til þess m.a. að benda á það að ég held að reynslan af svo fjölmennum eða stórum ráðum, eins og hér er lagt til, sé ekki góð og tel því fyrirkomulag eins og hér er gert ráð fyrir í sambandi við stjórn heilbrigðismála ekki hagkvæmt. Ég held að það sé ekki skilvirkt og við ættum að finna aðra leið að þeim markmiðum sem þó eru sett fram í frv. og eru í sjálfu sér eins og ég sagði í upphafi góðra gjalda verð og er ástæða til að fagna þeim hugmyndum eða þeim áhuga sem frv. í raun sýnir á forvarnastörfum og fræðslu um heilbrigðismálin.

Í þessu sambandi langar mig einnig að minna á að í þeirri heilbrigðisáætlun sem lögð var fram sem þingskjal á síðasta þingi og hv. frsm. greindi reyndar frá segir m.a. í markmiði 5 sem hv. 6. þm. Reykv. las upp úr. Mig langar aðeins að vitna í það líka. Þar segir:

„Komið verði á fót stofnun forvarna- og heilbrigðisfræðslu. Þessi stofnun annist ráðgjöf um heilbrigða lifnaðarhætti, gerð fræðsluefnis og endurmenntun starfsliðs í heilsugæslu.

Til þessarar stofnunar færist starfsemi áfengisvarnaráðs, tóbaksvarnanefndar, manneldisráðs, tannverndarstarfsemi og starfsemi CINDI-verkefnis.“ Það er verkefnið sem til er vitnað í fylgiskjali II með frv. til laga um heilbrigðisfræðsluráð, þessu frv. sem er til umræðu.

Enn fremur segir í markmiði 5:

„Til þess að stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum verður lögð á það áhersla að starfslið heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa fái grundvallarmenntun og kennslu í heilbrigðisfræðslu og kennslu í heilsufræði til þess að geta miðlað þeim sem þangað leita. Samvinna verði hafin við skóla og félög um að þau taki þátt í herferð fyrir heilbrigðari lifnaðarháttum fjölskyldna og einstaklinga.“

Vegna fyrirspurnar hv. þm. um framhald þessa máls, þ.e. hvað verði gert varðandi þessa íslensku heilbrigðisáætlun og þær hugmyndir sem þar eru settar fram og ég hef vitnað til, var þessari áætlun dreift sem þingskjali í fyrra, ekki sem till. til þál. og ekki í frv.-formi, heldur sem skýrslu og aðeins til upplýsinga. Hún var ekki rædd. Mín hugmynd er að framfylgja ákvæðum sem nú eru í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 59/1983, um að halda svokallað heilbrigðisþing. Þar segir að heilbrigðisþing skuli halda fjórða hvert ár, en það munu nú sjö ár liðin frá því að slíkt þing var síðast haldið. Stefnt er að því að halda heilbrigðisþing í febrúarmánuði nk., nánar tiltekið 5. febrúar, og þar er mín hugmynd að fjallað verði um þessa íslensku heilbrigðisáætlun, hún verði lögð til grundvallar í þeirri umræðu. Það er verið að hefja undirbúning að þessu heilbrigðisþingi og við höfum hugsað okkur að setja á fót nokkra starfshópa sem vinni að þeim undirbúningi og, eins og ég sagði, noti þessar hugmyndir sem hér eru settar fram og tillögur í heilbrigðisáætluninni sem útgangspunkta. Að þessu þingi loknu munu þær hugmyndir sem þar koma fram og niðurstöður þess þings verða lagðar til grundvallar við að endurskoða þessa áætlun og leggja hana þá á ný fyrir þingið. Ég hafði fremur hugsað mér að það gæti þá orðið í formi þáltill. sem ég vænti að þingið gæti samþykkt og yrði þá stefnuáætlun í heilbrigðismálum til næstu ára, e.t.v. til ársins 2000 sem hefur verið til viðmiðunar í þessari áætlun: „heilbrigði fyrir alla árið 2000“. Það er vissulega rétt eins og kom fram í framsöguræðu hv. þm. að það er nauðsynlegt að setja sér markmið og móta stefnu í heilbrigðismálum okkar betur og meir en gert hefur verið.

Varðandi markmið 5 sem við höfum vitnað til í þessari áætlun, þar sem fjallað er um forvarnaráð eða stofnun, er nú í heilbrmrn. unnið að gerð lagafrv. til ,þess að hrinda í framkvæmd þessu markmiði. Ég vænti þess að frv. í anda þess verði lagt fyrir það þing sem nú situr. Þetta starf er þegar í gangi og ég get vel hugsað mér, eins og reyndar kom fram í lokaorðum frsm., að það frv. til laga sem liggur fyrir og er hér til umræðu verði tekið til athugunar í sambandi við það starf sem við erum að vinna í ráðuneytinu og skoðað hvort hægt er að samræma sjónarmið hvað það varðar, annars vegar okkar hugmyndir og hins vegar það sem hér er lagt til og þá einkum hvað varðar uppbyggingu ráðsins, hvort sem það heitir nú fræðsluráð eða forvarnaráð eða forvarnastofnun. Vegna þess sem ég gerði athugasemd við áðan, að mér fyndist þetta vera of fjölmennt ráð, of stórt og of þungt í vöfum og að reynslan segi okkur að það hafi ekki gefist vel, tel ég að stofnun sem annast heilbrigðisfræðslu og með því sniði sem gert er ráð fyrir í okkar tillögum, fámennari stofnun, sé vænlegri til að skila árangri en það fyrirkomulag sem lagt er til í frv. sem er til umræðu.

Hv. flm. frv. spurði mig um þróun svokallaðs SPIN-verkefnis sem á að fjalla um heilbrigðisfræðslu í skólum. Þá verð ég að segja þingheimi það og viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér framgang þess verkefnis og mér er ekki ljóst á hvaða stigi það er í dag. Reyndar mun það hafa verið fyrir þremur eða fjórum árum síðan sem Íslendingar voru þátttakendur í þessu verkefni. Ég veit hins vegar að yfirlæknir ráðuneytisins, sem jafnframt gegnir embætti skólayfirlæknis, hefur verið að vinna í samráði við menntmrn. að endurskoðun á námsefni um heilsufræði eða heilbrigðisfræðslu í grunnskólunum. Ég mun afla mér upplýsinga um það frekar á hvaða stigi það er og hvernig þetta verkefni sem var vitnað til gæti komið inn í þá endurskoðun sem þar er í gangi.

Flm. spurði mig líka um málefni áfengisvarnaráðs og manneldisráðs og afdrif þeirra í meðferð fjárlagafrumvarpsins. Því er til að svara að að vísu er ekki svo langt gengið að engar fjárveitingar séu til áfengisvarnaráðsins. Það er reyndar nokkur upphæð sem ég hef þó ekki fyrir framan mig hver er og man ekki. En það er vissulega rétt að þar hefur verið dregið úr fjárveitingum. M.a. hygg ég að það hafi komið til vegna umræðu um þessa fyrirhuguðu forvarnastofnun. Ljóst er að hún verður ekki til nú um áramót og trúlega ekki á næsta ári og jafnvel þótt við kæmum frv. inn í þingið á þessum vetri og fengjum það samþykkt er ekki líklegt að starfsemi slíkrar stofnunar yrði mjög virk á næsta ári. Mér þykir því sýnt að fjárveitingar til áfengisvarnaráðsins verði að endurskoða í meðferð Alþingis á fjárlaga

frv. Hvað manneldisráð varðar er það svo með nokkra fjárveitingaliði sem hafa verið settir undir safnlið í heilbrmrn. að mér er sjálfsagt ætlað, eða okkur þar, að kosta starfsemi ráðsins af sameiginlegum óskiptum lið. Sjálfsagt er það eins og með svo marga aðra fjárveitingarliði að þar er smátt skammtað og við vildum gjarnan hafa meira til ráðstöfunar en þar er. Það mun hafa verið meiningin við uppsetningu fjárlagafrv. að fjárveitingar til manneldisráðs féllu undir þennan óskipta safnlið en ekki að starfsemin væri lögð niður vegna þess að fjárveiting væri ekki sérmerkt. Þetta vona ég að svari a.m.k. að nokkru fsp. hv. flm. frv.

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara um þetta öllu fleiri orðum. Ég ítreka aftur að ég fagna í sjálfu sér þeim hugmyndum sem hér eru fram settar um það að heilbrigðisfræðslu og forvarnarstarfsemi þurfi að efla. Ég hef lagt á það áherslu í mínum málflutningi þær vikur sem ég hef gegnt embætti heilbr.- og trmrh. að mikilvægur þáttur í okkar heilbrigðisþjónustu sé að efla forvarnarstarf. Auðvitað er forvarnarstarf sem slíkt afar víðtækt og víðfeðmt viðfangsefni og ég veit að starfsfólk í heilbrigðisstéttum greinir nokkuð á um mikilvægi þess. Má kannski í því sambandi minna á blaðaskrif í sumar og haust þar sem starfsfólk heilbrigðisstétta hefur skipst á skoðunum um þetta mál. Ég hef reyndar heyrt það líka frá einstaklingum í þessum störfum að þeirra viðhorf væru mjög misjöfn. Mér hefur verið bent á það t.d. að bættar samgöngur og bætt vegakerfi séu liður í forvarnarstarfi og það er vissulega rétt. Eftir því sem vegir eru betri er minni hætta á slysum og í því er fólgin mikilvæg forvörn. Þetta er því kannski bara dæmi um það hvað hugtakið sem um er að ræða getur spannað yfir vítt svið.

Ég legg aftur á það áherslu að í heilbr.- og trmrn. er verið að vinna að undirbúningi fjv. um forvarnaráð og forvarnastofnun og mér þætti eðlilegt að það frv. sem er til umræðu og meðferðar væri tekið til athugunar í heilbrmrn. af þeirri nefnd sem vinnur að undirbúningi lagafrv. og athugað hvort ekki mætti samræma sjónarmið.