20.04.1988
Efri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6655 í B-deild Alþingistíðinda. (4601)
293. mál, áfengislög
Landbúnaðarráðberra (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir með hv. 7. þm. Reykv. að það sem knýr mig nú upp í ræðustólinn er að mér finnst samvisku minnar vegna ég ekki geta annað en látið það koma fram núna þegar við þessa umræðu hver afstaða mín er til þessa máls sem hér er til umræðu og lýsa yfir andstöðu minni við það.
Ég ætla ekki að breyta út af þeim málflutningi hér á undan að ræða það í rólegum tón og ekki með neinum hávaða. Kannski vita fréttamenn það fyrir fram að þannig verður umræðan hér í deildinni. Þegar þetta mál kom til meðferðar í Nd. voru sjónvarpsmyndavélar og aðrar myndavélar í hverju skoti. En hér sést enginn. (Gripið fram í: Guði sé lof fyrir það.) Já, ég get tekið undir það með hv. þm. að ég harma það ekki. Vonandi er það til þess að málið fái eðlilega umfjöllun í fjölmiðlum hér eftir. En það er eins og það hafi verið aðalmál þingsins það sem af er vetri miðað við umfjöllun fjölmiðla.
Í mínum huga er þetta alvarlegt mál. Það sem kannski er þyngst á metunum í því sambandi er nokkuð svipað og hjá hv. 7. þm. Reykv., þ.e. að ég var í fjögur ár í dómsmrn. og kynntist þá afleiðingum áfengisneyslu í svo ríkum og sorglegum mæli að það hefur hert mína afstöðu í þessu máli frá því sem áður var. Þar komu, má segja daglega, til mín einstaklingar í öngum sínum yfir afleiðingum af áfengisneyslu. Þeir voru búnir að brjóta allar brýr að baki sér í félagslegu og efnahagslegu tilliti. Fjölskyldan var sundruð, eignirnar tapaðar o.s.frv. Þar sem svo illa er komið fyrir einstaklingum sem þangað lenda er því miður fátt að gera annað en að bera fram þá ósk að þeim fækki eitthvað sem í þessari stöðu lenda og þá jafnframt að strengja þess heit að reyna að leggja sig fram um að stuðla að því að svo verði. Því hlýt ég að leggja mig fram um að rökstyðja það a.m.k. sjálfs mín vegna að þetta mál eigi ekki fram að ganga.
Það eru ýmisleg rök sem færð eru fram af hendi flm. þessa máls, eins og það að það eigi að vera frelsi fyrir menn að gera það sem þeir vilja og hver og einn eigi að bera ábyrgð á sínum eigin gjörðum. Nú er það svo með frelsið að sumir gera varla greinarmun á frelsi og stjórnleysi. Um leið og við viljum hafa eitthvert skipulag verðum við að setja einhverjar reglur sem setja þá skorður. Ég er sannfærður um að þetta tal um frelsi sem mjög hefur klingt í eyrum á síðustu árum eigi drjúgan þátt í ýmsu því sem nú fer aflaga í okkar þjóðfélagi á öðrum sviðum.
En það sem mér er ríkast í huga í þessu sambandi eru þó börnin sem eru að vaxa upp í landinu. Ég var beðinn um að taka þátt í umræðu í einum framhaldsskóla hér í borginni í vetur þar sem óskað var eftir að kæmi einn sem væri meðmæltur bjór og annar sem væri andvígur. Eitt af því sem viðmælandi minn taldi bjórnum til ágætis var það að það væri svo gott fyrir börn og unglinga að eiga kost á að fá veikara áfengi en nú er á boðstólum. Þess vegna er ég ekki alveg sannfærður um að hv. síðasti ræðumaður geti verið svo mjög lengi öruggur um að börnin byrji ekki á neyslu á bjór jafnvel þótt ung séu. Við vitum að áfengisaldur færist stöðugt niður og enda þótt í þessu frv. sé ákveðið að flokka bjór með öðru áfengi held ég að slík lagasetning breyti ekki viðhorfi margra til þess að þarna sé um nokkuð annað að ræða, þarna sé um svaladrykk að ræða, eða a.m.k. að það sé notað að yfirvarpi.
Þá er komið að því sem mér finnst vera ömurlegast í málflutningi stuðningsmanna bjórsins, þegar þeir segja að allir eigi að ráða því sjálfir hvort þeir neyta áfengis eða ekki og því sé það í lagi hversu mikill þrýstingurinn frá þjóðfélaginu er til áfengisneyslunnar, og það er gagnvart börnunum. Börnin, þau hafa ekki skapað þjóðfélagið sem þau alast upp í og þau ráða ekki því umhverfi sem þau búa þar við. Hvorki í þjóðfélaginu í heild né á hverju einstöku heimili. Það hefur verið skrifað margt um þetta bjórmál í vetur og ég ætla ekki að fara að lesa þar mikið upp, það væri af mörgu að taka. En ég er hér með fyrir framan mig örfáar setningar um aðstöðu barna áfengissjúklinga eftir einn lækni sem hefur mikla reynslu af meðferð áfengissjúklinga á öllum aldri. Hann segir, með leyfi forseta:
„Börnin vita ekki hvað er óeðlilegt. Þau halda að ástand sem ríkir á heimilinu sé fullkomlega eðlilegt og ekkert við það að athuga. Þau læra að aðlagast spennunni og óvissunni, læra snemma að takast á herðar allt of mikla ábyrgð. Þau fara að taka þátt í lygunum og blekkingunni, segja ósatt í síma um ástandið, ljúga að vinum og kunningjum, þau læra að treysta engum og trúa engu.“
Þetta eru örfá orð sem lýsa því sem reynslan hefur kennt mönnum að áfengisneysla valdi. Því hljótum við sem ekki erum ánægð með þetta að reyna að gera það sem í okkar valdi stendur til að sporna við að því að þetta verði örlög fleiri barna sem þess vegna hljóti að ganga þá ævileið sem allt of margir fara vegna áfengisneyslunnar með þeim afleiðingum sem þetta hefur fyrir þjóðfélagið. Þessi sami aðili hefur bent á að eins og áfengisneysla er hér á landi bitnar hún í ríkari mæli á aðstandendum sjúklinganna en sums staðar annars staðar þar sem sídrykkja er meiri en ofdrykkja þá kannski minni þó að heildaráfengismagn sé meira.
Það er talað um að við þurfum að breyta okkar löggjöf til þess að við þurfum ekki að vera að útskýra fyrir útlendingum hvernig ástandið er hér. Ég fyrir mig tel að það sé engin þörf á því að vera „akkúrat“ eins og allir aðrir. Það var a.m.k. í sveitinni áður fyrr ekki talið neitt eftirsóknarvert endilega, að sagt var, að það þyrfti að vera eins og hundarnir á hinum bænum. Því finnst mér að það séu heldur léttvæg rök.
En reynsla mín í dómsmrn. kenndi mér annað en það hversu illa áfengið færi með líf margra einstaklinga. Hún kenndi mér líka hversu margir það eru sem vilja græða á áfenginu, selja áfengi og skeyta þar engu um hverjar afleiðingarnar verða. Það voru margir sem sögðu að þeir væru að fara á hausinn og þyrftu að koma í veg fyrir það með aukinni áfengissölu. Það hefur heldur ekki skort á að í ljós hafi komið áhugi ýmissa á því að græða á bjórnum. Við höfum heyrt sögur af mörgum sem væru að tryggja sér umboð og annað slíkt. Og það er alveg áreiðanlega rétt sem hér kom fram áðan að þeir verða margir sem telja sér nauðsynlegt að hafa bjórinn sem víðast á boðstólum til þess að geta grætt. Það er áreiðanlega mjög veigamikil ástæða fyrir þeim þrýstingi sem er fyrir aukinni áfengisneyslu í landinu.
Annað er það sem við höfum áreiðanlega öll fundið að þeim sem neyta áfengis er geysimikið kappsmál að allir sem í kringum þá eru geri það líka. Hver raunveruleg ástæða er fyrir því þori ég ekki að segja um. Stundum hef ég þó orðið var við að þeim finnst það ekki gott ef einhver allsgáður er í slíkum hópi. Það er þessi þrýstingur sem veldur því að raunverulega geta menn ekki alist upp í hlutleysi gagnvart áfengisneyslu. Þrýstingurinn á að neyta þess frá þjóðfélaginu, eins og staðan er í dag, er svo mikill.
Það hefur verið rætt oft og m.a. hér í þessari umræðu að kannski væri best að banna alla áfengisneyslu. Ég held við vitum það að lögum sem ekki njóta hljómgrunns hjá miklum hluta þjóðarinnar verður ekki framfylgt svo lag sé á. Því kemur að sjálfsögðu ekki til greina að setja einhver slík lög sem eru ekki í samræmi við vilja mikils meiri hluta þjóðarinnar. Það sem þarf að gera er að breyta viðhorfi og þar er að sjálfsögðu hlutverk ríkisvaldsins að vinna að slíku. Það vegur miklu þyngra en a.m.k. margs konar fræðsla því að því hefur stundum verið varpað fram að fræðsla gæti a.m.k. verið í því formi að hún yrði að hálfgerðum áróðri og hún vekti forvitni og gæti, a.m.k. ef hún er ekki rétt fram sett, jafnvel ýtt undir unglinga að byrja áfengisneyslu. En að sjálfsögðu þarf að finna þar rétta leið og eins og við vitum öll hefur geysimikið verið unnið að slíku hér síðustu árin, að hjálpa þeim sem illa eru farnir, en enginn veit nákvæmlega hversu afleiðingarnar af áfengisneyslunni eru orðnar þungur baggi fyrir þjóðfélagið efnahagslega, fyrir utan allt annað.
Ég ætla ekki að tala mikið lengur við þessa umræðu. Því hefur verið haldið fram að Alþingi þyrfti að afgreiða þetta mál, losa sig sem fyrst við málið. Þetta mál hefur verið oft til umræðu áður og til meðferðar á Alþingi og Alþingi hefur losað sig við málið. Málið hefur verið fellt hvað eftir annað. Það hefur hins vegar ekki dugað til. Það hefur alltaf verið komið aftur og farið af stað aftur með það af þeim sem hafa viljað þarna breytingu. Því vænti ég þess að svo verði enn í hv. Ed. þó að mér sé lítt kunnugt um hver afstaða einstakra hv. þingdeildarmanna er. En ég vonast til þess að afgreiðsla deildarinnar í málinu verði ótvíræð og vonandi þá þannig að það verði fellt því að samþykkt þess á Alþingi núna tel ég vera mikið slys. Ég held að það sé algjör tímaskekkja á sama tíma og aðrar þjóðir taka alvarlega áskorun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að vinna að því að draga úr heildaráfengisneyslu og telja að leiðin til þess sé að reyna að draga úr framboði á ýmsan hátt og að þá væri lítið samræmi í því fyrir okkur að fara nú að auka framboð. Sérstaklega mundi þetta verða táknrænt fyrir það að nú vildi ríkisvaldið að flóðið yrði meira.