20.04.1988
Efri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6658 í B-deild Alþingistíðinda. (4602)

293. mál, áfengislög

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Það var ekki hugmynd mín að taka þátt í umræðu um bjórmálið við 1. umr. þess hér í hv. deild. Ég tel að það sé best eftir þau miklu læti sem fjölmiðlar eru búnir að gera úr þessu máli að við höldum ekki málinu neitt óeðlilega lengi hér í deildinni og að það fari á þinglegan hátt til nefndar og verði þar skoðað eins og formaður allshn. nefndi áðan, skoðað vel og því skilað hér inn aftur í hv. deild, vel unnu, og að vel sé að því hugað hvort hér sé verið að koma með mál sem eigi að bæta þjóðfélagið, að við reynum að leita að rökum fyrir því hvort svo sé. Ef þau rök finnast ekki, sem ég hef svona frekar trú á að verði erfitt að finna, komi málið hér inn í hv. deild eingöngu til þess að fella það. Ég mun svo sem kostur er í hv. allshn., þar sem ég á setu sem áheyrnarfulltrúi, beita mér fyrir því að málið verði þar yfirfarið á þennan máta sem ég nefndi.

Það sem kom mér hins vegar hingað og mér fannst endilega að ég þyrfti að mótmæla voru fullyrðingar hv. 8. þm. Reykn., formanns allshn., um þann tvískinnung sem andstæðingar bjórsins héldu uppi í sambandi við þessa umræðu og þann tvískinnung sem væri ríkjandi með þeirri áfengislöggjöf sem við búum við í dag. Ég held, og það kom reyndar alveg fram í ræðu hv. þm., að tvískinnungurinn sé ekki okkar megin sem erum á móti bjórnum, heldur hinna sem leggja nú ofurkapp á það að bæta við einni áfengistegundinni á sama tíma og þeir tala um að það þurfi að leggja mikið á sig til þess að uppfræða almenning um hættu áfengisins á sama tíma og þessir menn hafa ekki hreyft sig mikið til þess að breyta því ástandi sem við búum við sem jafnvel sumir hverjir af okkur sem erum andstæðir þessu bjórfrv. hefðum getað staðið að. Við hefðum jafnvel getað staðið að þeirri tillögu sem hv. 8. þm. Reykn. nefndi. Við eigum bara að banna allt. Ég gæti vel staðið að því, sagði hv. þm. (Gripið fram í: Nei.) Það væri leið í málinu. (Gripið fram í.) Já. (JE: Það væri til umræðu. Ég sagðist ekki standa að því.) Það var a.m.k. mjög nálægt því sem sagt var og þessu hafa menn verið að halda fram og tengja, að ef ekki er leyfður bjór á ekki að vera að leyfa viskí eða vodka. Ja, mikill óskapa tvískinnungur er nú þetta. Það hníga öll rök að því að aukið áfengisframboð kallar á aukna neyslu.

Við vitum aftur á móti að það er næstum því óframkvæmanlegt og verður ekki framkvæmt að setja á allsherjar áfengisbann. Í því felst tvískinnungur að halda því fram að það verði að breyta ríkjandi ástandi. Ég sé ekki nokkur rök sérstaklega fyrir því. Það sem verið er að tala um jöfnum höndum, banna þetta, af hverju ekki hitt? Banna það þá líka. — Það er því miður illframkvæmanlegt.

Svo er hinn þátturinn. Ef þetta frv. okkar, sem við erum að fjalla um, verður ekki samþykkt, það var reyndar sagt í hv. Nd., verðum við að banna allsherjar meðferð á bjórnum. Það má ekki leyfa þá stöðu sem við búum við í dag. Það er tvískinnungur, segja þeir. Ég er nú á því að það ástand, með einhverjum kannski tiltölulega litlum breytingum, skapi okkur vissa stöðu, það að hægt sé að flytja inn takmarkað magn af bjór. Það dregur úr því og reyndar gerir það óþarft að í gangi sé mikið smygl, ólöglegur innflutningur á þessum hlutum. Það er svo með mörg mál að það er næstum því ógerningur að framfylgja þeim að fullu. Við vitum það vel að því miður er oft ekið dálítið hraðar á Reykjanesbrautinni en leyfilegt er og það er næstum því ómögulegt að framfylgja því að það verði ekki einhvern tíma gert. Og við förum alls ekki út í það að stilla upp lögregluþjóni við lögregluþjón við Reykjanesbrautina til að þetta gerist ekki. Við reynum að hafa viss áhrif á að það verði sem fæstir sem brjóta þetta þó að við vitum að það sé brotið. Við verðum oft á tíðum að horfa svona fram hjá og það getur líka verið gott í eðli sínu að hafa vissar undanþágur löglegar. Ég er á því að sú undanþága sem verið hefur í gildi í sambandi við bjórinn geri það að vissu leyti mögulegt að framfylgja bjórbanni á Íslandi með nokkurri reisn.

Það er nú svo að það kemur fyrir að menn mega ekki heyra hlátur, þá halda þeir að verið sé að gera grín að sér. Þeir menn eru kallaðir spéhræddir. Hv. þm. nefndi það hér í ræðustól áðan að hann hefði margsinnis orðið var við það á Keflavíkurflugvelli að vel settir menn í þjóðfélaginu, kannski ekki embættismenn, hefðu verið að koma frá útlöndum eða verið að taka á móti gestum og notað tækifærið til að fá sér bjór, notað smuguna þarna, sem er lögleg, og fengið sér bjór. Og útlendingar hefðu hlegið að þessu. Ja, mikið voðalegt var nú það að útlendingar skyldu hlæja að þessu. Ég hef heyrt útlending hlæja að því að við erum með fornafn föður okkar í nafninu okkar. Honum fannst það óskaplega skrýtið að Íslendingar skyldu vera með þessa sérvisku að hafa fornafn föður síns í nafni sínu, vera ekki með ættarnafn. Ja, það skal mikið á sig leggja til að losna við það að hlegið sé að manni. Við megum búast við því nokkuð lengi, ef við Íslendingar ætlum að reyna að fá af okkur öll séreinkenni, að hlegið verði að okkur. Ég held að við megum vera stolt af því að hlegið sé að okkur vegna þess að við höfum ekki bjór. Sú spéhræðsla, hvort sem það er spéhræðsla hv. þm. eða annarra Íslendinga, er dálítið langt sótt.

Ég skal ekki hafa þessi orð mikið lengri. En því ber að fagna að fréttastofurnar íslensku, ekki síst íslenska sjónvarpið og ríkisfjölmiðlarnir, skulum við segja, hafa meiri áhuga núna á því sem er að gerast í Nd. en því sem verið er að fjalla um hér. Þeir hafa núna meiri áhuga á framhaldsskólafrv. en bjórumræðu. Öðruvísi mér áður brá, þegar sjónvarpið íslenska þurfti að koma með stóran flokk manna og tæki til að taka upp og senda út með beinni útsendingu atkvæðagreiðslu um bjórmálið í hv. Nd. í fyrradag. Er það komið á það stig að íslenska sjónvarpið telji nauðsynlegt að sýna svona atriði úr starfsemi Alþingis frekar en mörg, mörg önnur góð mál sem hér er verið að fjalla um? Það er ekki verið að sýna atkvæðagreiðslu þegar verið er að takast á um ýmis menningarmál, ýmis framfaramál landsbyggðar, vegáætlun eða annað þess háttar. Nei, hér eru sett upp stór tæki til þess að geta sent út í beinni sjónvarpssendingu til landsmanna hvernig hv. Nd. greiðir atkvæði um bjórmálið. Nota bene. Nd. var aðeins fyrri áfanginn í umræðunni. Það var ekki verið að sýna úrslitin í bjórmálinu. Þau ákvarðast hér í Ed. Ég vænti þess að hv. Ed. muni, þegar málið kemur hér til lokaafgreiðslu, sýna það að svo sem oft áður muni deildin taka afstöðu til þessa máls á þann hátt sem ég er sannfærður um að er til hagsbóta fyrir okkar þjóð, þ.e. á þann veg að þetta mál verði fellt.