20.04.1988
Efri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6672 í B-deild Alþingistíðinda. (4617)
Frumvarp til áfengislaga
Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):
Að gefnu tilefni vil ég í fyrsta lagi taka fram að forseti bað ekki hæstv. landbrh. að gera hlé á máli sínu. Forseti spurði ræðumanninn hvort hann væri að ljúka máli sínu og kysi að ljúka því eða hvort hann ætti langt mál eftir og vildi gera hlé. Ræðumaður valdi að gera hlé.
Það hafa þrír þm. í þessum umræðum farið fram á að fundur verði haldinn kl. 6. Fyrsta beiðni kom til mín þar sem ég sat hér í forsetastóli. Mér hefur ekki verið unnt vegna starfa minna að ráðfæra mig við aðra þm. eða þingflokksformenn til þess að athuga hvort slíkt væri fært. Það er engin ástæða til annars en að kanna það, eins og ég hef þegar sagt, og að sjálfsögðu rétt að taka tillit til óska allra þm. eins og frekast er unnt. Þess vegna mun ég að sjálfsögðu kanna það hvort hægt er að halda hér fund kl. 6. Fundi hefur reyndar enn ekki verið slitið þannig að það er hægur vandi að fresta fundi hvort sem hann heldur síðan áfram kl. 6 eða eftir helgina.