20.04.1988
Efri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6673 í B-deild Alþingistíðinda. (4623)
293. mál, áfengislög
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason) (frh.):
Hæstv. forseti. Mér fannst leitt að það hlé sem ég gerði á máli mínu skyldi leiða til þeirra orðaskipta við hæstv. forseta, sem fóru fram áðan, þar sem mér virtist forseti ekki gera annað en það sem vanalegt er við slíkar kringumstæður og þá við mál sem fá venjulega málsmeðferð. Virtist mér það koma fram í máli manna áðan, þeirra stuðningsmanna sem hér töluðu, að slíka meðferð ætti þetta mál að hafa.
Það sem kom mér til að standa upp voru, eins og ég sagði í upphafi þessarar ræðu minnar, orð hv. 11. þm. Reykv. um það að þetta mál ætti eiginlega ekki að ræða hér í deildinni, en þó sérstaklega það að með þessu frv. væri verið að stuðla að betra mannlífi og meiri hamingju einstaklinganna.
Þegar ég gerði hlé á máli mínu var ég að víkja að því sem hér var mjög um talað fyrir u.þ.b. tveimur árum, minnir mig, þ.e. bjórlíkinu, og hvernig það var notað til þess að skapa andrúmsloft fyrir meiri áfengisneyslu. Það var reynt að fá fólk til þess að sitja við öldrykkju og þá hygg ég að annað hafi fylgt með. Því miður fór það svo að á suma þessara staða hópuðust þeir sem gjarnan virtust leita eftir einhverjum ólöglegum vímuefnum og sýnir það hvert aðdráttarafl slík neysla hafði. Þess vegna finnst mér það vera algjör öfugmæli að tala um að með slíku andrúmslofti, slíku viðhorfi í þjóðfélaginu, sé verið að skapa betra mannlíf.
Það varð allmikill eða nokkur hávaði frá hendi þeirra sem töldu sig græða á þeim tíma þegar ekki var lengur unnt að halda áfram þessari sölu. Mér er það minnisstætt að daginn eftir að einn af þessum hörmungaratburðum, sem við erum áreiðanlega öll sammála um að þurfi að gera allt til að koma í veg fyrir að gerist, varð við einn veitingastaðinn sáu þessir aðilar ástæðu til að halda sérstaka hátíð hér á götum úti. Óneitanlega hugsaði ég þá um það að æskilegt hefði verið að það hefði verið þarna kippt heldur fyrr í spottana.
Það voru sem sagt þessi atriði sem ég vildi leggja áherslu á hér að gefnu tilefni við þessa 1. umr. Ég ætla ekki að halda langa ræðu frekar en er minn vani og mun því ljúka máli mínu nú en endurtaka það sem ég sagði fyrr að ég vonast til að hv. Ed. beri gæfu til þess að vinna í samræmi við ályktanir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar og annarra þeirra sérfræðinga sem besta hafa þekkingu á þessum málum og reyna að stuðla að því að draga úr framboði og þrýstingi á aukna áfengisneyslu.