05.11.1987
Efri deild: 8. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (463)

61. mál, heilbrigðisfræðsluráð

Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. 6. þm. Reykn. orð hennar og góðar undirtektir undir þetta mál. Ég ítreka þau orð mín sem ég sagði um ástæðurnar fyrir því hvers vegna við völdum að hafa ráðið svo stórt, það væri fyrst og fremst hugsað sem gagnabanki. Ég legg líka áherslu á að þetta er hugsað fyrst og fremst til þess að samræma og skipuleggja heilbrigðisfræðslu, hafa yfirumsjón og ábyrgð með því að þessu hlutverki sé sinnt en það sé ekki handahófskennt og bundið áhuga, jafnvel tímabundnum áhuga, og getu ákveðinna óskilgreindra aðila að sinna þessu í þjóðfélaginu. Alls ekki til þess að kæfa niður frumkvæði annarra, miklu fremur til þess að finna þeim sameiginlegan farveg, þannig að átakið til fræðslunnar í þjóðfélaginu nýtist og verði samvirkt, en ekki til að bæla aðra niður eða reyna að koma í staðinn fyrir þá þar sem eitthvað er verið að gera. Það er kannski fyrst og fremst meginatriði þessa frv.

Það var rétt hjá hv. þm. að það barst ekki nema hluti af þeim umsögnum sem beðið var um og ein af ástæðunum var kannski sú að það var rétt fyrir þinglok sem frv. var flutt og fékk umfjöllun á þinginu, þannig að það var mjög naumur tími sem mönnum gafst til að skila umsögnum og hafa e.t.v. ekki talið þess þörf þegar þingi var lokið. Ég vona, þar sem þing er nú rétt nýhafið, að umsagnir verði sendar út fljótlega. Þá ætti mönnum að gefast gott svigrúm til að svara. Sérstaklega þar sem við eigum von á frekari umræðum um stefnumótun í heilbrigðismálum í febrúar getum við sannarlega unað okkur við það á þessu þingi að renna stoðum undir frekari stefnumótun, langtímaáætlun í heilbrigðismálum sem sárlega hefur vantað í íslensku samfélagi.