20.04.1988
Neðri deild: 79. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6677 í B-deild Alþingistíðinda. (4636)

271. mál, framhaldsskólar

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ástæðan fyrir því að hér er gerð tillaga um einn kafla frv. í heilu lagi er sú að við alþýðubandalagsmenn teljum að þessi kafli stjfrv. einkennist af óhæfilegri miðstýringu framhaldsskólakerfisins og að allir þræðir stefni í hendur eins manns, menntmrh. Við teljum að það þurfi að breyta þessu þannig að um valddreifingu verði að ræða í hendur fræðsluráða, skólameistara, kennara og nemenda og til þess þurfti að sjálfsögðu að breyta öllum ákvæðum þessa kafla. Ég held þess vegna að það sé eðlilegt að greiða atkvæði um þetta í einu lagi og segi hiklaust já.