20.04.1988
Neðri deild: 79. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6681 í B-deild Alþingistíðinda. (4650)

126. mál, mat á sláturafurðum

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég tek undir síðustu orð hv. 3. þm. Norðurl. e., frsm. nál., en það er skaði að hæstv. landbrh. skuli ekki vera viðstaddur því að ekki er víst að gefist mörg tækifæri umfram þetta til að spyrja hann hver sé fyrirætlan hæstv. ríkisstjórnarinnar um framkvæmd á þeirri endurskipulagningu sláturhúsanna í landinu sem hér var vikið að og margnefnd og þykk skýrsla um sláturhús, sem veifað var hér í ræðustólnum áðan, fjallar um.

Hér er það niðurstaða hv. landbn. að lengja þann frest sem frv. gerði ráð fyrir um tvö ár þannig að hæstv. ráðherra hafi heimildir til að gefa undanþágur til ársins 1990, þ.e. til 1. júní 1990. Ég vil spyrja hv. frsm., ef hæstv. landbrh. getur ekki komið og tekið þátt í umræðunni, hvort beri að skilja þessa tveggja ára viðbót sérstökum skilningi í samhengi við framkvæmd ríkisstjórnarinnar á endurskipulagningu sláturhúsanna og hvort þess sé að vænta að framkvæmdum á því sviði verði frestað sem þessu nemi.