25.04.1988
Sameinað þing: 71. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6724 í B-deild Alþingistíðinda. (4673)
Lausn kjaradeilnanna
Guðmundur H. Garðarsson:
Herra forseti. Það er ágætt að hv. alþm. skuli sýna baráttu verslunarfólks samúð. En orð eru ekki nóg né frómar óskir. Ummæli alþm. styrkja væntanlega baráttu verslunarmanna fyrir betri launum og samningar takast væntanlega um betri kjör fyrir verslunarmenn í frjálsum samningum. En orð og ummæli alþm. einna sér duga ekki. Í þessari baráttu verða verslunarmenn að treysta á sjálfa sig. Stjórnmálamenn eiga að láta af þeim ósið að notfæra sér erfiða stöðu fólksins í pólitískum skollaleik. Hv. alþm. ættu frekar að koma með raunhæfar tillögur um það hvernig unnt er að leysa þessa deilu í frjálsum samningum. Ég segi þess vegna: Verslunarfólk kærir sig ekki um pólitíska leiksýningu á hv. Alþingi Íslendinga. Fólkið biður um raunverulegan stuðning.