26.04.1988
Efri deild: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6814 í B-deild Alþingistíðinda. (4738)

422. mál, Tónlistarháskóli Íslands

Jóhann Einvarðsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu mikið þar sem það hefur þegar komið fram í máli hæstv. menntmrh. að frv. er nánast einungis lagt fram til kynningar á þessu stigi og verður sent, eins og kom fram hjá formanni menntmn. þar sem ég á líka sæti, út til umsagnar til Félags ísl. tónlistarkennara, Félags tónlistarskólastjóra og e.t.v. fleiri.

Mér sýnist að það geti verið rétt að það hafi valdið einhverjum vandræðum að hafa ekkí háskólagráður þegar þeir hafa farið til framhaldsnáms erlendis, en það sem mér finnst vanta í frv. er hvernig það á að tengjast tónlistarfræðslunni í landinu í heild og tónlistarskólunum um hina dreifðu byggð sem eru milli 60 og 70 og hafa hver á sínu sviði unnið að mörgu leyti kraftaverk á þeim stöðum þar sem þeir eru. Mér finnast ekki tengslin í frv. á milli þeirra og Tónlistarháskólans hér í Reykjavík vera nægilega skýr. Kannski byggist það á því að eins og kemur fram í grg. með frv. hefur ekki verið haft samband við tónlistarskólana eða þau félög, sem ráðherrann minntist á að senda skyldi frv. til umsagnar, við samningu frv. á sínum tíma.

Einnig finnst mér það koma sérkennilega fyrir sjónir, þó getur verið að það dæmi gangi upp, að það á að vera tónlistarháskóli í Reykjavík og það er unnt að veita honum heimild til að reka skóla á lægra plani en háskólastigi í samvinnu við Reykjavíkurborg. Ég hef litið svo á að annaðhvort væru háskólar háskólar eða ekki. Þess vegna sýnist mér heildarmynd tónlistarfræðslunnar í landinu ekki skýrð nógu vel í frv.

Ég tek hins vegar undir að það er gott að fá frv. fram á þessum tíma. Það verður sent til umsagnar og er fyrst og fremst til kynningar. Ég fæ svo tækifæri bæði í nefndinni og á síðari stigum til að ræða efnisatriði einstakra greina í frv.