26.04.1988
Neðri deild: 80. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6828 í B-deild Alþingistíðinda. (4755)

Frumvarp um viðskiptabanka

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Þessi málafylgja er öll hin undarlegasta. Tekið er til umræðu 9. mál á dagskrá og hlaupið yfir mál sem eru á dagskránni til 2. umr. til að leyfa hæstv. viðskrh. að mæla fyrir frv. um viðskiptabanka, sem síðan er upplýst að er ekki stjfrv. og því enn þá kynlegra að málið skuli tekið hér fram fyrir, og umræðu síðan frestað um málið. Hvaða skýring er á málsmeðferð af þessu tagi af hálfu virðulegs forseta?

Síðan kemur fram að mál þetta hefur ekki fengið afgreiðslu aðila að ríkisstjórn, eins og upplýst hefur verið af þingflokksformanni Framsfl., og svo kemur hæstv. viðskrh. og vill hafa það að engu. Ég ætla svo sem ekki að fara að blanda mér mikið inn í heimilisfriðinn þarna á þessu Höllustaðaheimili. Það verða aðrir sáttasemjarar að koma þar til en við úr stjórnarandstöðunni. En það sýnist vera fullkomin ástæða til þess eins og háttar þarna, þrátt fyrir miðstjórnarfund Framsfl. og það sem þar gerðist um síðustu helgi, að ráðherrarnir hafi skriflega undirskrift frá samstarfsaðilum sínum áður en þeir fara að leggja málin fram í þeirri trú að þeir séu að mæla fyrir stjfrv. Þetta er mjög einkennileg auglýsing sem hæstv. viðskrh. efnir til á samstarfinu í ríkisstjórninni.