27.04.1988
Neðri deild: 82. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6880 í B-deild Alþingistíðinda. (4818)
116. mál, læknalög
Frsm. heilbr.- og trn. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Frv. að nýjum læknalögum hefur legið í bunka heilbr.- og trn. þessarar deildar um nokkurt skeið og málið verið athugað vandlega, bæði innan nefndarinnar og af öðrum aðilum faglegum. Það hefur hlotið vandaðan undirbúning í heilbrmrn. í samráði við landlækni, Læknafélag Íslands og læknadeild Háskólans og ég má segja að allir þessir aðilar eru sammála um þá niðurstöðu sem nú er fengin í þessu frv. ásamt þeim lítils háttar brtt. sem nefndin var sammála um að bera fram og ræddi á fundi sínum við formann Læknafélagsins, forseta læknadeildar og Ingimar Sigurðsson, yfirlögfræðing í heilbrmrn. Enn fremur hefur verið haft samband við landlækni. Vonast ég til að það sé víðtæk samstaða um þetta mál, enda hefur það verið til meðferðar á Alþingi áður og orðið mjög tímabært að það fái afgreiðslu héðan því að núgildandi læknalög eru að stofni til frá fyrstu árum 4. áratugarins, margt hefur breyst síðan og tímabært að setja ný læknalög.
Það er eitt atriði sem ég vil vekja sérstaka athygli á í frv. vegna þess að ég tel að ákvæði í öðru frv., sem er til meðferðar í Ed., skarist nokkuð við þetta, en það varðar þagnarskyldu lækna. Í því sambandi vil ég einungis undirstrika eitt, að þagnarskylda lækna er fyrst og fremst til komin vegna hagsmuna sjúklings, ekki vegna hagsmuna læknanna sjálfra nema að því leyti sem þeir hafa umsjá með sjúklingi og búa yfir trúnaðarupplýsingum frá sjúklingi. Þess vegna teljum við það mjög mikilvægt að að svo miklu leyti sem önnur yfirvöld en heilbrigðisyfirvöld þurfa að koma nálægt gögnum lækna, og í því sambandi á ég fyrst og fremst við landlæknisembættið sem hefur lögum samkvæmt eftirlitsskyldu, þá sé það ljóst að eftirlit og athugun á gögnum lækna, sem ástæða er talin kunna að verða til að gera, fari fram fyrir atbeina og ásamt landlækni.
Þetta er atriði sem er ekki ástæða til að taka sérstaklega upp í þessu frv. Það er gert ráð fyrir þessu í frv. Hins vegar vek ég athygli á að það kann að vera ástæða til þess að breyta ákvæði í frv. um Ríkisendurskoðun, sem nú er í Ed., ef það frv. nær fram að ganga nú á þessu þingi.
En um þetta mál og brtt. við það varð öll nefndin sammála. Það mun því miður vera fyrir einhvern misskilning sem fulltrúi Kvennalistans var ekki á þeim fundi þar sem þetta mál var afgreitt, en ástæðan fyrir því hefur nú skýrst og henni verið gerð nákvæm grein fyrir allri meðferð málsins.
Ég leyfi mér að leggja til, herra forseti, að þessu máli verði að lokinni þessari umræðu vísað til 3. umr. og ég vænti þess að samstaða sé í hv. deild um afgreiðslu málsins.