27.04.1988
Neðri deild: 82. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6883 í B-deild Alþingistíðinda. (4825)

444. mál, Atvinnuleysistryggingasjóður

Frsm. heilbr.- og trn. (Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks. Þetta er leiðrétting og staðfesting á kjarasamningi. Það hefur verið svo að þar sem vinnustað skipa færri en tíu hefur fólk ekki notið þessara réttinda en hér er verið að setja alla undir sama hatt.

Nefndin mælir með samþykkt frv.