27.04.1988
Neðri deild: 82. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6884 í B-deild Alþingistíðinda. (4828)
263. mál, almannatryggingar
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Í þessu frv. er kveðið á um aukinn rétt sjúklinga og aðstandenda þeirra til þátttöku almannatrygginga í fargjaldi og dvalarkostnaði þegar ekki er hægt að veita nauðsynlega meðferð í heimabyggð. Enn fremur er þar kveðið á um rétt til dagpeninga ef veikindi náinna ættingja valda vinnu- og launatapi. Þetta réttlætismál varðar töluvert marga einstaklinga sem verða fyrir þungbærri reynslu, ekki aðeins tilfinningalegri, heldur einnig fjárhagslega þungbærri reynslu. Þessu síðarnefnda er ekki á bætandi aðra erfiðleika þessu samfara.
Það var mat okkar sem fluttum þetta frv. að hér væri um svo brýnt mál að ræða að það þyldi ekki bið. Að sjálfsögðu hefðum við kosið og töldum eðlilegt að nefndin mælti með samþykkt þess.
Þessi afgreiðsla er þó e.t.v. skiljanleg, m.a. með tilliti til afstöðu hæstv. heilbrrh. sem kom fram í umræðu um málið hér í deildinni. Við kjósum að líta svo á að þessi afgreiðsla sýni jákvæða afstöðu. Mér er kunnugt um að það fékk góða og velviljaða umfjöllun t.d. í tryggingaráði og víðar.
Þó að við séum vonsviknar yfir því að nefndin hafi ekki treyst sér að afgreiða málið og mæla með samþykkt þess er það von okkar að þessi afgreiðsla tryggi að tekið verði myndarlega á þessu máli við þá heildarendurskoðun tryggingalaganna sem margsinnis hefur verið vísað til og að þar verði þetta frv. lagt til grundvallar. En ég hlýt að taka undir með hv. 7. þm. Norðurl. e., að okkur hefði þótt betra að þetta hefði verið afgreitt frá Alþingi með jákvæðri umsögn vegna þess að þessi heildarendurskoðun hefur tekið býsna langan tíma og ekki séð fyrir endann á henni enn þá.