27.04.1988
Neðri deild: 82. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6890 í B-deild Alþingistíðinda. (4836)

301. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Frsm. meiri hl. félmn. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Því miður gat ég ekki verið hér við umræður fyrr í dag vegna sérstakra forfalla. Vegna þess að hv. 4. þm. Norðurl. e. bar hér fram beiðni um upplýsingar þótti mér rétt að koma aðeins inn á þessi mál. Ég bæði gat þess á fundum hv. félmn. í sambandi við þetta sérstaka mál og í upphafi máls míns í gær þegar ég mælti fyrir nál. meiri hl. félmn. tók ég skýrt fram að forsendur fyrir þessari afgreiðslu væri þetta samkomulag formanna stjórnarflokkanna sem dagsett er 3. júlí 1987. Ég þóttist hafa rakið rækilega aðalatriðin í þessu samkomulagi, m.a. það sem hv. 4. þm. Norðurl. e. var að spyrja um áðan. Ég skal endurtaka það hér til að það fari ekkert milli mála. Það er fimmti liður í þessu samkomulagi að því er varðar lánafyrirgreiðslu. Þá er hér átt við þau sveitarfélög sem standa höllum fæti og þurfa á viðbótarfé að halda. En þar stendur, með leyfi forseta:

„Lánafyrirgreiðsla. Ríkisstjórnin mun veita sveitarfélögum sérstaka lánafyrirgreiðslu til að standa straum af 15% byggingarkostnaðar eða kaupverðs. Þessi lánafyrirgreiðsla má nema umsaminni upphæð á þremur árum.“ Og innan sviga sem er sérstaklega undirritað: „Þessi upphæð skal vera 110 millj. á þremur árum. Lánin skulu vera til 25 ára með sömu vöxtum og eru á almennum lánum hjá Byggingarsjóði ríkisins. Lán þessi verði veitt þeim sveitarfélögum og/eða félögum sem samkvæmt könnun þurfa mest á þeim að halda og skulu lánakjör, fyrirgreiðsla og skipting fjármagns ákveðin fyrir fram.“

Þannig hljóðar þessi þáttur í samkomulagi formanna stjórnarflokkanna sem er grundvöllur þessarar afgreiðslu, ég endurtek það. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að ríkisstjórnin standi við þetta ákvæði þó að það sé e.t.v. galli í þessu frv. að þessa er ekki sérstaklega getið þar heldur er þetta ákveðin sérstök fyrirgreiðsla gegnum ríkisstjórnina.

Það er hægt að fallast á ýmis rök sem koma hér fram hjá hv. 4. þm. Norðurl. e. þótt ekki sé ástæða til að taka það inn í þessa afgreiðslu nú. Ég gat þess hér í framsögu að umsögn frá Sambandi ísl. sveitarfélaga hefði ekki borist til nefndarinnar, þrátt fyrir ítrekun, fyrr en eftir að nefndin lauk störfum. Ég gat þess einnig að í þeim umsögnum sem hv. þm. a.m.k. sem eiga sæti í nefndinni hafa undir höndum koma fram áhyggjur sveitarfélaga, í þeim brtt. sem sambandsstjórn gerir, og því lýst yfir að eðlilegt hefði verið að létta af þeim ábyrgðinni, skuldbindingunum og veita meira fjármagn til þeirra sveitarfélaga sem verst standa. Ég vísa aftur til þess samnings sem formenn flokkanna gerðu og ætti að fullnægja a.m.k. meðan heildarendurskoðun á þessum málum fer fram.

Mér finnst þess vegna fullkomin ástæða til að undirstrika að nauðsynlegt er að þetta mál fari í heildarendurskoðun á hinum félagslega þætti húsnæðismála eins og gert er ráð fyrir. Var raunar einn síðasti liðurinn í samningi foringja stjórnarflokkanna að fram fari heildarendurskoðun á lögum, fjármögnun og skipulagi félagslega íbúðarlánakerfisins og í nefndinni verði einnig fulltrúar sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins. Með tilliti til þessa tel ég að eðlilegt sé að gera fastlega ráð fyrir því í þessum umræðum að þrátt fyrir samþykkt þessa frv. nú fari þessi endurskoðun fram sem leiðir e.t.v. af sér betri árangur í þessu máli en hér liggur fyrir.

Þegar ég kom hér inn heyrði ég að komið hefði fram krafa um að fresta afgreiðslu 2. dagskrármálsins, þ.e. 329. máli, eftir einhverri ákveðinni kröfu. Ég vil láta það koma hér fram að ef það á að gerast mun ég leggja fram tillögu um að fresta einnig 301. máli. Þessi mál eiga að fara saman, það er samkomulag um það.