28.04.1988
Sameinað þing: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6901 í B-deild Alþingistíðinda. (4850)
410. mál, mengun í álverinu í Straumsvík
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Á þskj. 757 hef ég leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp. til hæstv. heilbrmrh. um mengun í álverinu í Straumsvík:
„1. Hvaða athuganir hafa verið gerðar á mengun í álverinu í Straumsvík vegna gallaðra rafskauta?
2. Hver er afstaða heilbrmrn. og Hollustuverndar ríkisins til þessa máls og hvaða kröfur hafa verið gerðar um úrbætur?"
Eins og vafalaust hefur ekki farið fram hjá hv. þm. hefur ríkt mikið vandræðaástand í álverinu í Straumsvík um langt skeið vegna innri mengunar á vinnustað. Um er kennt gallaðri framleiðslu, gölluðum rafskautum sem notuð hafa verið við álbræðsluna sem valda mikilli rykmengun innan húss til óþæginda, angurs og hugsanlega heilsutjóns fyrir starfsmenn sem þar vinna. Ástandið hefur verið mjög slæmt að mati starfsmanna síðan í júní 1987. Sumir tala um hrikalegt ástand, í öllu falli óviðunandi ástand.
Álverið í Straumsvík var á sínum tíma reist án mengunarvarna, ákveðið af ríkisstjórn á 7. áratugnum. Hún ætlar að verða Íslendingum dýrkeypt sú ákvörðun sem þá var tekin. Eftir mikinn þrýsting tókst að knýja fram aðgerðir af hálfu eigenda, þ.e. Alusuisse, en þá tekst ekki betur til en svo að sú tæknilega lausn sem valin er af þeim er allsendis ófullnægjandi, ekki síst þegar til kemur gölluð framleiðsla frá sama fyrirtæki, Aluchemie, þ.e. dótturfyrirtæki Alusuisse í Hollandi á rafskautum sem leiðir til þess ástands sem ég hef nefnt hér.
Það hlýtur að sjálfsögðu að vera krafa opinberra aðila að úr slíku ástandi sé bætt og til að heyra um aðgerðir af hálfu heilbrigðisyfirvalda hef ég borið fram þessa fsp. til hæstv. heilbrmrh.