28.04.1988
Sameinað þing: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6908 í B-deild Alþingistíðinda. (4860)

481. mál, mengunarútbúnaður bifreiða

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Fyrirspyrjandi spyr í fyrsta lagi hvort athugað hafi verið hvort skylda eigi innflytjendur bifreiða til að flytja aðeins inn til landsins þær bifreiðar sem búnar eru mengunarútbúnaði og hvað slíkri athugun líði.

Svar mitt er að umferðarlögin kveða á um að ráðherra skuli setja reglur um gerð og búnað ökutækja. Mengunarútbúnaður eða búnaður til að koma í veg fyrir mengun, hvort heldur er vegna vökva, hávaða eða útblásturs, fellur undir þetta ákvæði og reglurnar hafa ávallt tekið tillit til þessara atriða. Nýjar reglur um gerð og búnað bifreiða frá því í febrúar sl. gera ráð fyrir því að settar verði viðmiðunarreglur um mengun vegna hávaða og útblásturs. Þær reglur hafa enn ekki verið settar. En í drögum að reglum um þetta efni, sem eru í undirbúningi hjá Bifreiðaeftirlitinu, er hins vegar við það miðað að þessar reglur verði strangari að því er varðar bifreiðar sem skráðar verða frá og með næstu áramótum. Þessar reglur miða við mælingu á útblæstri frá bifreiðum, en slíkar mælingar þarf að framkvæma í sérstakri skoðunarstöð. Þetta verk hefur m.a. verið haft í huga við hönnun nýrrar skoðunarstöðvar á vegum hins nýja Bifreiðaeftirlits eins og tillögur liggja fyrir hv. Ed. um að koma á fót.

Ég minni líka á að umræða um blýlaust bensín er tiltölulega nýhafin hér á landi, en slíkt bensín er forsenda fyrir mengunarvörnum í hverjum bíl, eins og hv. fyrirspyrjandi er hér að vekja máls á.

Ég bendi á að upp á síðkastið hefur aðallega verið flutt inn blýlaust bensín. Forsrh. skipaði nýlega nefnd til þess að athuga hvort slík tilhögun ætti að vera viðvarandi. Ég veit ekki hvað störfum þeirrar nefndar líður.

Þá er spurt hvort búast megi við löggjöf er takmarki mengun af völdum bifreiða. Ég get svarað fyrir þau ráðuneyti sem ég fer með fyrirsvar fyrir, að þar er ekki í undirbúningi sérstök löggjöf um þetta efni. Ég tel að umferðarlögin hafi nægar heimildir til að setja slíkar reglur. Hins vegar hljóta slíkar reglur að mótast af almennu viðhorfi til mengunarvarna og þær þarf að móta og ákvarðanirnar þarf að taka í samráði við þá sem fara með mengunarmál almennt. Ríkisstjórnin undirbýr nú tillögur um skipulag umhverfismála og ekki síst umhverfisverndar og má ætla að þá verði tekin afstaða til þessa máls á réttum vettvangi, ekki síst á vettvangi heilbrigðismála.